Ójöfn fjölskylduábyrgð hefur áhrif á stöðu kvenna í atvinnulífinu

Konur bera enn meg­in­á­byrgð á heim­il­inu, bæði er kemur að börnum, heim­il­is­störfum og umönnun aldr­aðra for­eldra.

Stað­al­myndir, frami kvenna í fyr­ir­tækjum og ólík fjöl­skyldu­á­byrgð hafa sér­stak­lega mikil áhrif á launa­mun kynj­anna og stöðu kvenna í atvinnu­líf­inu. Sú ein­staka aðgerð sem fljótt hefði mikil áhrif væri að lengja tíma fæð­ing­ar­or­lofs feðra.

Þetta kemur fram í nýrri rann­sókn Snjólfs Ólafs­sonar, Erlu S. Krist­jáns­dóttur, Láru Jóhanns­dóttur og Þóru H. Christiansen sem birt­ist vor­hefti Tímarits um við­skipti og efna­hags­mál. Vef­út­gáfu tíma­rits­ins má nálg­ast hér. Rann­sóknin miðar að því að finna þætti sem áhrif á stöðu kynj­anna í íslensku atvinnu­lífi.

[adspot]Í rann­sókn­inni kemur fram að launa­munur kynj­anna á Íslandi mælist gjarnan á bil­inu 5 til 10 pró­sent, hlut­fall kvenna í fram­kvæmda­stjórnun er um 15 pró­sent og engin kona stýri skráðu fyr­ir­tæki á mark­aði. Enn fremur kemur fram að kjara­rann­sóknir sýni ótví­rætt að konur hafi umtals­vert lægri laun en karlar.

Kyn­bund­inn launa­munur í VR var til að mynda 10 pró­sent árið 2018 og 11,3 pró­sent árið 2017.

Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar hefur bætt fæð­ing­ar­or­lof áhrif á jafn­ari fjöl­skyldu­á­byrgð, bæði í gegnum brúun umönn­un­ar­bils­ins og í gegnum jafn­ari töku fæð­ing­ar­or­lofs. Bætt fæð­ing­ar­or­lof hefur einnig áhrif á vald­efl­ingu kvenna sem hefur áhrif á stað­al­myndir, að því er kemur fram í rann­sókn­inni. Jafnari fjöl­skyldu­á­byrgð hefur svo áhrif á fyr­ir­myndir og stað­al­myndir sem hefur áhrif á kynja­skipt­ingu starfa.

Staðalmyndir fjari út

Ein helsta stoðin í að jafna stöðu kynj­anna í íslensku atvinnu­lífi er að stað­al­myndir fjari út, að því er kemur fram í rann­sókn­inni. Þá er mik­il­vægt að bæta fæð­ing­ar­or­lof og fyr­ir­myndir í sam­fé­lag­inu.

[links]Ákveðið hefur verið að lengja fæð­ing­ar­or­lof í tveimur áföngum á árunum 2020 og 2021. Fyrra skref aðgerð­arinnar kveður á um að sam­an­lagður réttur for­eldra barna sem fæð­ast á árinu 2020 nemi 10 mán­uð­um. Í seinna skref­inu er svo rétt­ur­inn lengdur í tólf mán­uði, en hann á við um for­eldra allra barna sem fæð­ast þann 1. jan­úar 2021 eða síð­ar.

Rann­sak­endur telja að fleiri fyr­ir­myndir að konum í leið­toga­störfum væri ein breyta til þess að auka frama kvenna í fyr­ir­tækjum sem stuðli einnig að jafn­ari hlut­föllum í fram­kvæmda­stjórnun og minnkar launa­mun kynj­anna. Breyting á stað­al­myndum myndi einnig leiða til auk­innar vald­efl­ingar kvenna og þar með auka frama þeirra í fyr­ir­tækjum.

Jafnari fjölskylduábyrgð minnkar kynbundinn launamun

Í rann­sókn­inni er vísað til ann­arra rann­sókna sem sýna að enn beri konur meg­in­á­byrgð á umönnun barna og heim­ilis, karlar séu fremur fyr­ir­vinnur og konur í for­stjóra­stöðum upp­lifi meiri ábyrgð á umönnun fjöl­skyld­unnar en karlar í sömu stöðum. Enn fremur vinna karlar lengri vinnu­dag utan heim­ilis.

Rannsókn Maskínu frá árinu 2017 sýnir einmitt fram á að 39 pró­sent kvenna segj­ast sjá um heim­il­is­störf að mestu leyti.

Bætt öldr­un­ar­þjón­usta myndi jafna fjöl­skyldu­á­byrgð „vegna þess að konur axla að öllu jöfnu meiri ábyrgð á öldruðum for­eldrum og jafn­vel tengda­for­eldrum en karlar sem hefði áhrif á stöðu þeirra á vinnu­mark­aði,“ skrifa rann­sak­end­urnir í rann­sókn­inni um þætti sem áhrif á stöðu kynj­anna í íslensku atvinnu­lífi.

Jafnari fjöl­skyldu­á­byrgð gæti þar af leið­andi leitt til minni kyn­bund­ins launa­muns við ráðn­ingu ef jöfn fjöl­skyldu­á­byrgð þætti sjálf­sögð.

Jafnlaunavottun jafnar stöðu kynjanna

Lög­bind­ing jafn­launa­vott­unar jafnar stöðu kynj­anna í atvinnu­líf­inu þar sem hún stuðli að jafn­ari hlut­föllum í fram­kvæmda­stjórnun sem dregur úr launa­muni kynj­anna og að minna kynj­uðu náms­vali nem­enda, að því er kemur fram í rann­sókn­inni.

Rann­sak­endur benda á að laun í mörgum hefð­bundnum kvenna­störfum eru lægri en í karla­störfum sem fælir karla frá þeim. Rann­sak­endur taka sem dæmi mun launa leik­skóla­kenn­ara og tölv­un­ar­fræð­inga.

Efling kynjafræðslu getur hjálpað

Rann­sak­endur benda á að hug­ar­fars­breyt­ing í þjóð­fé­lag­inu sé nauð­syn­leg til þess að jafna stöðu kynj­anna í atvinnu­líf­inu. „Fjöl­miðlar, ein­staka stjórn­endur og fjöl­margir aðrir hafa sitt hlut­verk í þess­ari vinnu, en stjórn­völd geta þó leikið lyk­il­hlut­verk. Lög um jafn­launa­vottun er dæmi um slíkt og einnig er aug­ljóst að breyt­ingar á fæð­ing­ar­or­lofi sem leiddu til þess að feður myndu verja meiri tíma með unga­börnum gætu haft mikil áhrif,“ segir í rann­sókn­inni.

Rann­sak­endur telja að stjórn­völd geti sem dæmi eflt kynja­fræðslu og við­fangs­efni í skóla­kerf­inu til þess að jafna stöðu kynj­anna í atvinnu­líf­inu.

„Þáttur fyr­ir­tækja og stjórn­enda er einnig stór og sýnir áhrifaritið að atvinnu­lífið þarf að taka höndum saman við stjórn­völd og ein­stak­linga til að vinna að því að jafna stöðu kvenna og karla,“ skrifa rann­sak­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár