Listi yfir fyrirtæki án jafnlaunavottunar birtur í lok árs

Einungis 2,8 pró­sent fyr­ir­tækja með 25-89 starfs­menn hafa hlotið jafn­launa­vottun enn sem komið er.

Fyr­ir­tæki og stofn­anir með 250 starfs­menn eða fleiri hafa til lok árs að fá jafn­launa­vottun. Hafi slík fyr­ir­tæki ekki öðl­ast vott­un­ina fara þau á opin­beran lista Jafn­rétt­is­stofu, að því er kemur fram í svari frá Jafn­rétt­is­stofu við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Slíkur listi yfir fyr­ir­tæki og stofn­anir sem þegar hafa hlotið jafn­launa­vottun er nú þegar til og aðgengi­legur á vef­svæði Jafn­rétt­is­stofu. Hann hefur þó enn ekki verið búinn til fyrir þau fyr­ir­tæki og stofn­anir sem ekki hafa slíka vottun, þar sem frest­ur­inn er enn ekki lið­inn.

Um einn lista verður að ræða þegar upp verði staðið, að því er kemur fram í svari Jafn­rétt­is­stofu. Tímamörk um hvenær vott­un­ar­ferl­inu skal vera lokið er mis­mun­andi og fer eftir fjölda starfs­manna.

[adspot]Fyr­ir­tæki og stofn­anir geta hlotið frest til þess að inn­leiða jafn­launa­kerfi sem upp­fyllir kröfur stað­als­ins. Núver­andi frestur gildir frá 31. des­em­ber 2019 fyrir fyr­ir­tæki og stofn­anir með 250 eða fleiri starfs­menn, allt til 31. des­em­ber árið 2022 fyrir fyr­ir­tæki og stofn­anir með 25-89 starfs­menn.

2,8 prósent fyrirtækja með 25-89 starfsmenn með vottun

Nú eru um 862 fyr­ir­tæki með 25-89 starfs­menn. Þar af hafa ein­ungis 24 hlotið jafn­launa­vottun. Það þýðir að ein­ungis um 2,8 pró­sent fyr­ir­tækja í þeim flokki eru með jafn­launa­vottun.

Vert er þó að hafa í huga að tala þeirra 862 fyr­ir­tækja með slíkan fjölda starfs­manna getur verið breyti­legur. Auk þess hafa slík fyr­ir­tæki til 31. des­em­ber 2022 til þess að öðl­ast slíka vottun.

Jafnréttisstofa getur beitt dagsektum.

Samkvæmt reglu­gerð um jafn­launa­vottun hefur Jafn­rétt­is­stofa rétt til að beita dag­sektum. Dag­sekt­irnar verða gerðar sam­kvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Jafn­rétt­is­stofa getur beitt fyr­ir­tæki sem ekki hafa fengið vottun en ber skylda til að fá slíka allt að 50 þús­und króna dag­sektum, að því er kemur fram í fyrri umfjöllun Kjarnans.

Jafn­rétt­is­stofa hefur heim­ild til að beita þau fyr­ir­tæki, sem ekki hafa fengið vott­un, allt að 50 þús­und króna dag­sekt­um. Jafn­launa­vottun skal vera end­ur­nýjuð á þriggja ára fresti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár