89 fyrirtæki og stofnanir með jafnlaunavottun

Háskóli Íslands hlaut nýverið jafn­launa­vottun. Fyr­ir­tæki með 25-89 starfs­menn hafa frest til 31. des­em­ber 2022 til að fá vott­un­ina.

Alls hafa 89 fyr­ir­tæki og stofn­anir hlotið jafn­launa­vottun, en lög um jafn­launa­vottun ná yfir öll fyr­ir­tæki og stofn­anir með 25 starfs­menn eða fleiri. Jafn­rétt­is­stofa hefur rétt til að beita fyr­ir­tæki sektum nái þau ekki að upp­fylla kröfur um vottun fyrir til­settan tíma.

Háskóli Íslands hlaut nýverið jafn­launa­vottun, sem er jafn­framt fjöl­menn­asta stofn­unin til að fá slíka vottun á Íslandi hingað til. Háskól­inn hefur um 4.800 starfs­menn. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Háskóla Íslands hófst úttekt innan hans á launa­kerfi hans stuttu eftir að lög um jafn­launa­vottun voru stað­fest á Alþingi árið 2017.

[adspot]Meg­in­mark­mið ­jafn­launa­vott­un­ar er að vinna gegn kyn­bundnum launa­mun og stuðla að jafn­rétti kynj­anna á vinnu­mark­aði. Jafn­launa­vottun var lög­fest í júní 2017 með breyt­ingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Vottunin var lögð fram af hálfu Þor­steins Víglunds­sonar, fyrrum félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra.

Samkvæmt upp­lýs­ingum á vefsvæði Stjórn­ar­ráðs­ins ná lögin til 1.180 atvinnu­rek­enda, það er um 147.000 launa­manna alls sem jafn­gildir um 80 pró­sent þeirra sem virkir eru á vinnu­mark­aði.

Sam­kvæmt lög­unum skal jafn­launa­vottun byggj­ast á Jafn­launa­staðl­inum ÍST 85. Stað­all­inn á að tryggja fag­leg vinnu­brögð sem fyr­ir­byggja beina og óbeina mis­munun vegna kyns, sam­kvæmt Jafn­rétt­is­stofu. ­Með inn­leið­ingu hans geta fyr­ir­tæki og stofn­anir komið sér upp stjórn­un­ar­kerfi sem tryggir að máls­með­ferð og ákvörðun í launa­málum bygg­ist á mál­efna­legum sjón­ar­miðum og feli ekki í sér kyn­bundna mis­mun­un.

Launamunur óásættanlegur

Sér­stökum stýri­hóp var komið á um jafn­launa­vottun innan Háskól­ans og var um flókið verk að ræða, að því er kemur fram í til­kynn­ing­unni, þar sem verk­efnið náði til starfs­manna við kennslu og rann­sóknir, til fast­ráð­ins starfs­fólks og þeirra sem eru í tíma­bundnum stöðum, stjórn­sýslu og stoð­þjón­ustu og þeirra sem vinna við stunda­kennslu.

Samkvæmt nið­ur­stöðum launa­grein­ingar innan Háskól­ann var með­al­munur á upp­reikn­uðum heild­ar­launum karla og kvenna án til­lits til skýri­breyta 11,9 pró­sent körlum í hag. Þegar tekið var til­lit til helstu bak­grunns­þátta, svo sem mennt­unar, stöðu í skipu­riti, ald­urs, starfs­ald­urs, breyti­legra yfir­vinnu­tíma, tíma í stunda­kennslu og starfs­heitis reynd­ist með­al­launa­munur á upp­reikn­uðum heild­ar­launum vera 1,5 pró­sent körlum í hag.

Að sögn Jón Atla Bene­dikts­sonar, rekt­ors Háskóla Íslands, er mik­il­vægt að tryggja að eng­inn launa­munur verði til staðar innan skól­ans, allt annað sé óásætt­an­legt.

Faggiltur vott­un­ar­að­ili metur hvort öll skil­yrði stað­als­ins hafi verið upp­fyllt og séu þau upp­fyllt veitir hann við­kom­andi fyr­ir­tæki eða stofnun jafn­launa­vottun, að því er segir á vef­síðu Jafn­rétt­is­stofu.

[adspot]Öll ráðu­neyti á Íslandi hafa nú hlotið jafn­launa­vottun, en í byrjun árs höfðu fimm ráðu­neyti ekki enn hlotið jafn­launa­vottun. Kjarninn hefur áður fjallað um jafn­launa­vot­anir. Þar kom fram að aðeins eru þrjár vott­un­ar­stofur á Íslandi, það er Vottun hf., BSI og iCert. Fag­gildir vott­un­ar­að­ilar geta metið hvort fyr­ir­tæki eða stofn­anir upp­fylli skil­yrði jafn­launa­stað­als­ins og geta því næst veitt þeim jafn­launa­vottun. Kom fram að kostn­aður ­for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins ­vegna jafn­launa­vott­unar á árinu 2018 hafi verið áætl­aður 589.248 krón­ur, en kostn­aður fer eftir umfangi hennar.

Dagsektir möguleiki

Jafn­rétt­is­stofa getur beitt fyr­ir­tæki sem ekki hafa fengið vottun en ber skylda til að fá slíka allt að 50 þús­und króna dag­sektum, að því er kemur fram í fyrri umfjöllun Kjarnans.

Jafn­rétt­is­stofa hefur heim­ild til að beita þau fyr­ir­tæki, sem ekki hafa fengið vott­un, allt að 50 þús­und króna dag­sekt­um. Jafn­launa­vottun skal vera end­ur­nýjuð á þriggja ára fresti.

89 fyrirtæki og stofnanir hafa hlotið vottun

Jafn­rétt­is­stofa heldur skrá yfir þær stofn­anir og fyr­ir­tæki sem hlotið hafa vottun. Í júní 2019 höfðu 89 fyr­ir­tæki og stofn­anir hlotið jan­flauna­vottun.

Þá heldur Jafn­rétt­is­stofa skrá yfir fyr­ir­tæki og stofn­anir þar sem 25 eða fleiri starfs­menn starfa að jafn­aði á árs­grund­velli, sem hafa ekki öðl­ast vottun. Skal þar koma fram hvort hlut­að­eig­andi fyr­ir­tæki eða stofnun hafi leitað eftir úttekt vott­un­ar­að­ila á jafn­launa­kerfi við­kom­andi og fram­kvæmd þess í því skyni að öðl­ast vottun. Skulu sam­tök aðila vinnu­mark­að­ar­ins hafa aðgang að skránni.

Til­gangur jafn­launa­vott­unar er að „draga úr kyn­bundnum launa­mun og miða að auknu launa­jafn­rétti kynj­anna, efna­hags­legu jafn­ræði sem að end­ingu mun meðal ann­ars skila sér í jafn­ari líf­eyr­is­greiðslum kvenna og karla.“ Þar að auki er mark­miðið að„jafn­launa­vott­un­ar­ferlið auki almenna starfs­á­nægju og trú starfs­manna á að mannauðs­stjórnun atvinnu­rek­anda sé fag­leg og að það bæti sýn stjórn­enda á starfs­manna- og launa­mál sem auð­veldi þeim starfs­manna­hald og rök­stuðn­ing við launa­á­kvarð­anir. Afrakst­ur­inn verði gagn­særra og rétt­lát­ara launa­kerfi.“

Frestur allt til 31. desember 2022

Tímamörk um hvenær vott­un­ar­ferl­inu skal vera lokið er mis­mun­andi og fer eftir fjölda starfs­manna. Fyr­ir­tæki og stofn­anir geta hlotið frest til þess að inn­leiða jafn­launa­kerfi sem upp­fyllir kröfur stað­als­ins. Núver­andi frestur gildir frá 31. des­em­ber 2019 fyrir fyr­ir­tæki og stofn­anir með 250 eða fleiri starfs­menn, allt til 31. des­em­ber árið 2022 fyrir fyr­ir­tæki og stofn­anir með 25-89 starfs­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fyrirtæki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár