Flestar nýskráningar í fjármála- og byggingarstarfsemi

Fjöldi nýskráðra fyr­ir­tækja hefur auk­ist um tæpan helm­ing á fyrri hluta þessa árs, miðað við sama tíma­bil í fyrra. Mest hefur skrán­ingum fjár­mála­fyr­ir­tækja fjölgað, en hún hefur einnig verið mikil á meðal fyr­ir­tækja í bygg­ing­ar­starf­semi.

Borgartún, fjármálahverfi Reykjavíkur.
Borg­ar­tún, fjár­mála­hverfi Reykja­víkur. Mynd: Bára Huld Beck

Alls voru rúm­lega tvö þús­und félög og fyr­ir­tæki nýskráð á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, en það er 47 pró­sent aukn­ing frá sama tíma­bili í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu um nýskrán­ingar fyr­ir­tækja og félaga.

Samkvæmt töl­unum var langstærstur hluti nýju fyr­ir­tækj­anna einka­hluta­fé­lög, en einnig var nokkuð um skrán­ingar sam­lags­hluta­fé­laga, hús­fé­laga og félaga­sam­taka. Líkt og sést hér að neðan var fjöldi nýskrán­inga nokkuð stöð­ugur áður en far­ald­ur­inn hófst, en tók að fjölga skömmu eftir að fyrsta bylgja hans var liðin í maí í fyrra.

Síðan þá fjölg­aði nýskrán­ingum nokkuð jafnt og þétt þangað til þær náðu hámarki í mars í fyrra, en þá voru 456 félög og fyr­ir­tæki skráð.

Mesta aukn­ingin í nýskrán­ingum hefur verið á meðal fyr­ir­tækja í fjár­mála- og vátrygg­inga­starf­semi, en þær voru alls 224 á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, miðað við 87 á sama tíma í fyrra. Aukn­ingin hefur einnig verið mikil ef miðað er við fyrri hluta árs­ins 2019, en þá voru þær þriðj­ungi færri heldur en í ár. [adspot]

Næst­mesta aukn­ingin á þessu tíma­bili var á meðal fyr­ir­tækja í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð, en nýskrán­ingum þar fjölg­aði um 122 á milli ára. Þetta er einnig mikil aukn­ing ef miðað er við fyrstu sex mán­uði árs­ins 2019, þar sem þær voru 90 færri en núna þá.

Þrátt fyrir mik­inn sam­drátt í ferða­þjón­ust­unni frá upp­hafi heims­far­ald­urs­ins fjölg­aði nýs­r­káðum fyr­ir­tækjum nokkuð í rekstri gisti­staða og veit­inga­rekstri, en þau voru um 30 fleiri í ár heldur en í fyrra og árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fyrirtæki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár