Stjórnarráðið án jafnlaunavottunar

Fimm ráðu­neyti hafa ekki enn hlotið jafn­launa­vottun en ráðu­neytin áttu að öðl­ast jafn­launa­vottun fyrir lok síð­asta árs. Ráðu­neytin eru nú á loka­stigum vott­unar en miklar annir hjá vott­un­ar­stofum eru sagðar ástæður þess að ráðu­neyt­unum seinkar.

Stjórnarráðið hefur ekki uppfyllt skilyrði jafnlaunavottunar þrátt fyrir að öll tíu ráðuneytin hafi átt að hljóta jafnlaunavottun fyrir lok síðasta árs. Forsætisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið og velferðarráðuneytið, sem hefur nú verið skipt upp í tvö ráðuneyti, hafa öll hlotið jafnlaunavottun. Ráðuneytin fimm sem eiga eftir að öðlast jafnlaunavottun eru dómsmálaráðuneytið, samgöngu- og sveitastjórnaráðuneytið, utanríkisráðuneytið, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið. Kjarninn spurðist fyrir í ráðuneytunum hvar hvert ráðuneyti stæði í jafnlaunavottunarferlinu en öll ráðuneytin fimm eru nú í lokaúttekt vottunar og búast öll við niðurstöðu síðar í þessum mánuði. 

Markmiðið að vinna gegn kynbundnum launamun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Jafnlaunavottun var lögfest í júní 2017 með breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Samkvæmt lögunum skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85. Samkvæmt jafnréttisstofu á staðallinn að tryggja fagleg vinnubrögð sem fyrirbyggja beina og óbeina mismunun vegna kyns. Með innleiðingu hans geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.

Fram­lengdur frestur nær ekki til Stjórnarráðsins

[links]Lögin sem lög­fest voru í júní 2017 kveða meðal ann­ars á um að fyr­ir­tæki með fleiri en 250 starfs­menn skuli vera búin að inn­leiða jafna­launa­vottun fyrir lok árs­ins 2018. Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra til­kynnti síðan í sept­em­ber síð­ast­liðnum að fram­lengdur yrði frestur fyr­ir­tækja og stofn­ana til að inn­leiða jafn­launa­vottun um ár. Fyr­ir­tækin sem hafa fengið jafn­launa­vottun til þessa eru ein­ungis 42 tals­ins en í byrjun októ­ber voru þau ein­ungis fimmtán svo það hefur bæst tals­vert við á síð­ustu þremur mán­uðum. Auk­inn frestur sam­kvæmt ákvörðun ráð­herra nær þó ekki til opin­berra stofn­ana, sjóða og fyr­ir­tækja sem eru að hálfu eða að meiri hluta í eigu rík­is­ins með 25 starfs­menn eða fleiri að jafn­aði á árs­grund­velli. Frest­ur­inn nær því ekki til Stjórn­ar­ráðs­ins sem átti, eins og áður sagði, að hafa öðl­ast jafn­launa­vottun í lok síð­asta árs. [adspot]

Aðeins þrjár vottunarstofur

Til að öðl­ast jafn­launa­vottun þurfa fyr­ir­tæki og stofn­anir að fá fag­gildan vott­un­ar­að­ila til að meta hvort að öll skil­yrði jafn­launa­stað­als­ins hafi verið upp­fyllt, séu þau upp­fyllt veitir vott­un­ar­að­il­inn við­kom­andi fyr­ir­tæki eða stofnun jafn­launa­vottun. Framan af voru aðeins tvær vott­un­ar­stofur starf­andi her á landi en nýlega fékk sú þriðja leyfi til þess að votta.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hafa öll fimm ráðu­neytin verið að vinna að jafn­laun­vottun bróð­ur­part­inn af 2018 og voru flest til­búin fyrir form­lega jafn­launa­út­tekt hjá vott­un­ar­að­ila í des­em­ber. En vegna anna hjá vott­un­ar­stofum eru ráðu­neytin enn að bíða eftir unnt sé að ljúka vott­un­ar­ferl­ina, öll ráðu­neytin búast þó við að hljóta jafn­launa­vottun fyrir lok þessa mán­aðar. 

Hvert ráðu­neyti fyrir sig ber ábyrgð á fram­kvæmd jafn­launa­vott­unar innan sinnar starf­semi og semur sjálf­stætt við vott­un­ar­að­ila um fram­kvæmd­ina, segir í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans. Þau sex ráðu­neytið sem Kjarninn hafði sam­band við fengu ann­að­hvort Vottun hf. eða BSI vott­un­ar­stofu til að gera úttekt á jafn­launa­kerfi ráðu­neyt­anna.

For­sæt­is­ráðu­neytið hlaut jafn­launa­vottun þann 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn frá Vottun hf. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans er kostn­aður for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vegna þjón­ustu Vottun hf. á árinu 2018 áætl­aður 589.248 krónur. Samkvæmt heima­síðu Vottun hf. fer kostn­aður við vottun fer eftir umfangi hennar, t.d. stærð fyr­ir­tæk­is­ins, fjöl­breytni starf­sem­innar og hversu dreifð hún er. Verð fyrir vottun mið­ast við tíma­gjald fyrir vinnu við yfir­ferð á skjölum og úttektir á verk­lagi en auk þess er greitt umsókn­ar­gjald í upp­hafi og síðan fast árgjald eftir að vott­orð hefur verið gefið út.

Engum dagsektum beitt á ráðuneytin

Jafn­rétt­is­stofa hefur heim­ild til að beita þau fyr­ir­tæki, sem ekki hafa fengið vottun, allt að 50 þús­und króna dag­sektum. Katrín Björg Rík­harðs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Jafn­rétt­is­stofu, segir það ólík­legt að dag­sektum verði beitt í til­felli Stjórn­ar­ráðs­ins, í sam­tali við Morg­un­blaðið þann 7. jan­úar. Hún segir að ekki sé rokið upp til handa og fóta með það beita dag­sektum heldur frekar meta stöð­una. Katrín segir að ef fyr­ir­tæki, hvort sem það séu ráðu­neyti eða fyr­ir­tæki á almennum mark­aði, standi í jafn­launa­vott­un­ar­ferl­inu þá sé eðli­legt að gefa þeim tæki­færi til þess að kom­ast áfram í ferl­inu áður en farið er að beita ein­hverjum refs­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár