Samningur gerður um birtingu Jafnlaunastaðals

Mark­mið stað­als­ins er að auð­velda atvinnu­rek­endum að koma á og við­halda launa­jafn­rétti kynja á sínum vinnu­stað. Stað­all­inn á að nýt­ast öllum fyr­ir­tækjum og stofn­unum óháð stærð, starf­semi, hlut­verki og kynja­hlut­falli.

Jafnlaunamerkið
Jafn­launa­merkið Mynd: Velferðarráðuneytið

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið og Staðla­ráð Íslands hafa gert með sér sam­starfs­samn­ing sem tryggir almennan aðgang að Jafn­launa­staðl­inum ÍST 85. Með samn­ingnum er brugð­ist við áliti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis í aðdrag­anda laga­setn­ingar um skyldu til vott­unar jafn­launa­kerfa.

Frá þessu er greint í frétt á vef­síðu Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Með breyt­ingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt karla á kvenna sem sam­þykkt var á Alþingi síð­ast­liðið vor var kveðið á um lög­fest­ingu skyldu til vott­unar jafn­launa­kerfa hjá stofn­unum og fyr­ir­tækjum þar sem starfa 25 starfs­menn eða fleiri. Meg­in­mark­mið er að eyða kyn­bundnum launa­mun og stuðla að jafn­rétti kynj­anna á vinnu­mark­aði. Samkvæmt lög­unum sem öðl­ast gildi 1. jan­úar næst­kom­andi skal jafn­launa­vottun byggj­ast á staðl­inum ÍST 85 en Staðla­ráð Íslands fer með höf­und­ar­rétt stað­als­ins.

Í áliti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, þann 30. maí 2017, var lögð áhersla á að þar sem verið væri að lög­festa skyldu fyr­ir­tækja og stofn­ana til að nota jafn­launa­stað­al­inn yrði að tryggja aðgengi að staðl­inum en gæta jafn­framt að því að höf­und­ar­réttur Staðla­ráðs Íslands að staðl­inum væri virtur. Var því beint til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins, í sam­ráði við Staðla­ráð Íslands, að semja um aðgang að honum.

Markmið stað­als­ins er að auð­velda atvinnu­rek­endum að koma á og við­halda launa­jafn­rétti kynja á sínum vinnu­stað. Stað­all­inn á að nýt­ast öllum fyr­ir­tækjum og stofn­unum óháð stærð, starf­semi, hlut­verki og kynja­hlut­falli. Hann á einnig að tryggja fag­leg vinnu­brögð sem fyr­ir­byggja beina og óbeina mis­munun vegna kyns.

Samkvæmt samn­ingnum sem Þor­steinn Víglunds­son félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra og Guðrún Rögn­vald­ar­dóttir fram­kvæmda­stjóri Staðla­ráðs Íslands und­ir­rit­uðu í dag mun Staðla­ráð Íslands setja upp kerfi á sér­stakri vef­síðu sem tryggir les­að­gang að staðl­inum ÍST 85 Jafn­launa­kerfi – Kröfur og leið­bein­ingar, not­endum að kostn­að­ar­lausu.

Samn­ing­ur­inn tryggir með þessu móti not­endum aðgang að staðl­inum um leið og höf­und­ar­réttur Staðla­ráðs er virtur en Staðla­ráði Íslands er jafn­framt bætt áætlað tekju­tap af sölu stað­als­ins sem leiðir af birt­ingu hans.

Samn­ing­ur­inn gildir til fjög­urra ára með mögu­leika á fram­leng­ingu í allt að fjögur ár til við­bótar, segir í frétt Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár