Frestur til að öðlast jafnlaunavottun framlengdur um 12 mánuði

Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur ákveðið að fram­lengja frest fyr­ir­tækja og stofn­ana til að öðl­ast jafn­launa­vottun sam­kvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur ákveðið að fram­lengja um 12 mán­uði frest fyr­ir­tækja og stofn­ana til að öðl­ast jafn­launa­vottun sam­kvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þetta kemur fram í frétt ráðu­neyt­is­ins.

[links]Fram­leng­ingin tekur til fyr­ir­tækja og stofn­ana, óháð stærð þeirra. Reglu­gerð ráð­herra þessa efnis tók gildi í dag.

Reglu­gerðin felur í sér við­bót­ar­á­kvæði við reglu­gerð um vottun á jafn­launa­kerfum fyr­ir­tækja og stofn­ana á grund­velli stað­als­ins ÍST 85. Með ákvörðun sinni nýtir ráð­herra heim­ild sína til frest­unar sem kveðið er á um í bráða­birgða­á­kvæði VI sam­kvæmt breyt­ingu á fyrr­nefndum lögum sem sam­þykkt var á Alþingi 1. júní árið 2017.

Framlengdur frestur nær ekki til allra

Aukinn frestur sam­kvæmt ákvörðun ráð­herra nær ekki til opin­berra stofn­ana, sjóða og fyr­ir­tækja sem eru að hálfu eða að meiri hluta í eigu rík­is­ins með 25 starfs­menn eða fleiri að jafn­aði á árs­grund­velli, segir í frétt­inni. Fram­antaldir aðilar skulu hafa öðl­ast vottun á jafn­launa­kerfi og fram­kvæmd eigi síðar en 31. des­em­ber á næsta ári.

Aukinn frestur nær heldur ekki til Stjórn­ar­ráðs Íslands sem skal hafa öðl­ast vottun eða stað­fest­ingu á jafn­launa­kerfi og fram­kvæmd þess sam­kvæmt lögum, eigi síðar en 31. des­em­ber næst­kom­andi.

Ákvörðun ráð­herra um auk­inn frest, líkt og kveðið er á um í reglu­gerð­inni sem tók gildi í dag var unnið í sam­ráði við helstu hags­muna­að­ila, segir í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár