Aðför að grundvallarréttindum launafólks ógnar friði og stöðugleika

Í 72 pró­sent landa heims hefur verka­fólk engan eða tak­mark­aðan aðgang að rétt­ar­kerf­inu sé á því brotið.

Mótmæli
Mótmæli Mynd: EPA

Skipu­lögð aðför að grund­vall­ar­rétt­indum launa­fólks, svo sem verk­falls­rétt­inum og rétt­inum til að mót­mæla, ógnar víða friði og stöð­ug­leika. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða­sam­bands verka­lýðs­fé­laga (ITUC) en frá þessu er greint á vef ASÍ.

Í frétt ASÍ um málið segir að ofbeldi og frels­is­svipt­ingar á verka­fólki sem reynir að standa á sínu hafi ágerst á Indlandi, í Tyrk­landi og Víetnam.

Samkvæmt skýrsl­unni eru Alsír, Bangla­desh, Brasilía, Fil­ips­eyjar, Gvatemala, Kasakstan, Kólumbía, Saudi-Arabía, Tyrkland og Zimbabve þau verstu þegar kemur að ofbeldi og brotum á rétt­indum verka­fólks. Í 72 pró­sent landa heims hefur verka­fólk engan eða tak­mark­aðan aðgang að rétt­ar­kerf­inu sé á því brotið.

Í skýrsl­unni kemur fram að Ísland sé í flokki 1 ásamt Ástralíu, Danmörku, Finn­landi, Þýska­landi, Írlandi, Ítalíu, Hollandi, Noregi, Slóvakíu, Svíþjóð og Úrúgvæ. Það þýðir að í þessum löndum er brotið á rétt­indum verka­fólks „stöku sinnum“. Í flokki 5 er ástandið verst – þar sem rétt­indi eru ekki tryggð – en þar eru 34 lönd og þeirra á meðal eru þau lönd sem áður voru upp­talin.

Stjórnvöld víða um heim þagga markvisst niður í óánægjuröddum

Sharan Burrow, fram­kvæmda­stjóri ITUC, segir að frá Hong Kong til Márit­aníu og Fillips­eyjum til Tyrk­lands reyni stjórn­völd mark­visst að þagga niður í óánægju­röddum meðal verka­fólks með því að tak­marka mál­frelsi og hindra fund­ar­höld.

„Hnignun sam­fé­lags­sátt­mál­ans milli launa­fólks, rík­is­stjórna og atvinnu­rek­enda hefur orðið til þess að fjöldi landa sem meina verka­fólki að vera í verka­lýðs­fé­lögum fór úr 92 árið 2018 í 107 árið 2019. Og fjölgun slíkra landa var mest í Evrópu þar sem helm­ingur ríkj­anna úti­lokar hópa verka­fólks frá aðild að stétt­ar­fé­lögum. Ákveðin stór­fyr­ir­tæki neita starfs­fólki sínu um rétt­indi sem áður þóttu góð og gild,“ segir Burrow.

Hann bætir því við að eng­inn verka­maður eigi að vera skil­inn eftir vegna þess að atvinnu­rek­and­inn ákveði ein­hliða að taka upp við­skipta­módel þar sem sjálf­sögð rétt­indi á vinnu­mark­aði þvælist fyrir græðginni. Fyr­ir­tæki sem hafa hingað til hunsað rétt starfs­manna sinna standi núna frammi fyrir mót­mælum víða um heim. Þetta séu fyr­ir­tæki eins og Uber, Amazon og Ryanair.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsbarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár