Fyrrverandi eigandi Primera Air greiddi sig frá málsóknum

Andri Már Ing­ólfs­son, fyrr­ver­andi eig­andi Primera Air, greiddi þrota­búi flug­fé­lags­ins tæp­lega 200 millj­ónir til þess að forð­ast mál­sóknir. Hann féll jafn­framt frá tveggja millj­arða króna kröfum sínum í búið.

Andri Már Ingólfsson, fyrrverandi aðaleigandi Primera Air, greiddi þrotabúi Primera Air tæplega 200 milljónir króna í reiðufé gegn því að fallið yrði frá málsóknum á hendur honum. Andri Már samþykkti til viðbótar að falla frá þeim kröfum sem hann hafði áður lýst í þrotabúið. Kröfur hans og félaga á hans vegum námu samanlagt ríflega tveimur milljörðum króna. Frá þessu er greint í Markaðinum, fylgiriti Fréttablaðsins, í dag.

Náðu samkomulagi í síðasta mánuði

[links]Primera Air hætti í októ­ber síð­­ast­liðnum starf­­semi eftir fjórtán ár í rekstri og var flug­­­fé­lag­ið, ásamt dótt­­ur­­fé­lögum sínum í Dan­­mörku og Lett­landi, í kjöl­farið tekið til gjald­­þrota­­skipta. Stjórn­­endur flug­­­fé­lags­ins sögð­u í kjölfar gjaldþrotsins að horfur á flug­­­mark­aði hefðu farið hratt versn­andi, með hækk­­andi olíu­­verði og lækk­­andi flug­­far­­gjöld­um, og ekki hefði tek­ist að tryggja félag­inu fjár­­­mögnun til langs tíma. ­

Samkvæmt heimildum Markaðarins náðist samkomulag á milli Andra Más og þrotabús Primera Air á Íslandi, sem hæstaréttarlögmaðurinn Eiríkur Elís Þorláksson stýrir, í síðasta mánuði. Lýstar kröfur í búið nema rúm­lega 10 millj­örðum króna af þeim nema kröfur frá Arion banka samtals um 4,8 milljörðum króna. Arion banki þurfti að færa niður tæplega þrjá milljarða króna í ábyrgðum og lánveitingum vegna gjaldþrotsins. Andri Már var næst stærsti kröfuhafi búsins á eftir bankanum en líkt og greint var frá hér á ofan samþykkti Andri Már að falla frá þeim kröfum sem hann hafði áur lýst í þrotabúið. Samkvæmt heimildum Markaðarins námu kröfur hans og félaga á hans vegum, þar á meðal félags í eigu dönsku ferðaskrifstofunnar Bravo Tours, námu samanlagt ríflega tveimur milljörðum króna.

Í febrúar í fyrra var greint frá því að rann­sóknir skipta­stjóra búsins hefðu leitt í ljós að mögu­legt væri að fyr­ir­svars­menn félags­ins hefðu bakað því tjón í að minnsta kosti tveimur til­vika. Í rannsóknarskýrslu skiptastjórans kom jafn­framt fram að athugun skipta­stjóra á reikn­ings­skilum flug­fé­lags­ins gætu leitt til mögulegrar fjár­kröfu á hendur þeim sem báru ábyrgð á reikn­ings­skil­un­um. Þá hygði skipta­stjórinn að höfða rift­un­ar­mál fyrir dóm­stól­um, meðal ann­ars á hendur Andra Már per­sónu­lega vegna tveggja ráð­staf­ana Primera Air að fjár­hæð sam­tals 520 millj­ón­ir. Nú er aftur á móti ljóst að ekkert verður af málsóknum gegn fyrrverandi aðaleiganda Primera-samstæðunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár