Stefán Einar svarar Skúla og segir bókina standa óhaggaða og óhrakta

Stefán Einar Stef­áns­son, höf­undur nýrrar bókar um WOW air, svarar ummælum Skúla Mogensen í hans garð og segir full­yrð­ingar sínar um fall WOW air standa ó­hagg­aðar.

Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta hjá Morgunblaðinu.
Stefán Einar Stef­áns­son, frétta­stjóri við­skipta hjá Morg­un­blað­inu. Mynd: Aðsend mynd

Stefán Einar Stef­áns­son, frétta­stjóri við­skipta á Morg­un­blað­inu og höf­undur nýrrar bókar um upp­gang og fall WOW air, segir svör Skúla Mogensen, stofn­andi og for­stjóri WOW air, um full­yrð­ingar sem birt­ust í bók­inni ein­ungis sýna fram á mik­il­vægi bók­ar­innar. Skúli fór hörðum orðum um bók Stefáns Einars í stöðu­færslu á Facebook í gær og taldi fram sex dæmi um það sem hann segir vera dylgjur og ósann­indi í mál­flutn­ingi Stefáns Einars. Í stöðu­færslu á Facebook í dag svarar Stefán Einar þeim sex atriðum.

Segir fréttina hafa verið rétta og sannleikanum samkvæmt

[links]Skúli skrif­aði í gær að Stefán Einar hafi áður borið fram alvar­legar ásak­anir og rang­færslur í garð WOW air sem áttu ekki við rök að styðj­ast. Hann sagði að alvar­leg­ast hafi verið þegar hann full­yrti að WOW air skuld­aði Isavia tvo millj­arða í stórri for­síðu­grein sem Morg­un­blaðið birti 15. sept­em­ber 2018 rétt fyrir skulda­bréfa­út­boð WOW air í sept­em­ber. „Núna liggja fyrir gögn sem sýna svo ekki verður um villst að skuld okkar við Isavia var nær einum millj­arði á þessum tíma en ekki tveim millj­örðum eins og Stefán Einar full­yrti. Þessi frétt og sú umræða sem skap­að­ist í fram­hald­inu hafði mjög nei­kvæð áhrif á skulda­bréfa­út­boðið og starf­semi WOW air,“ segir Skúli í stöðu­upp­færsl­unni.

Stefán Einar vísar þessum full­yrð­ingum Skúli á bug og segir að öll gögn sem komið hafi fram annað hvort í hans hendur eða opin­ber­lega hafi stað­fest að fréttin hafi verið rétt og sann­leik­anum sam­kvæmt.

„Í byrjun októ­ber 2018 und­ir­rit­aði Skúli leyni­legt og for­dæma­laust sam­komu­lag við Isavia þar sem hann fór á bak við sína nán­ustu sam­starfs­að­ila. Þar stað­festi hann að WOW air væri í van­skilum við Isavia upp á ríf­lega millj­arð króna vegna starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins á Kefla­vík­ur­flug­velli í júní og júlí 2018. Þegar fréttin var birt í Morg­un­blað­inu var einnig ágúst­mán­uður og helm­ingur sept­em­ber­mán­aðar lið­inn og WOW air búið að stofna til útgjalda upp á tæpan millj­arð til við­bótar við van­skila­skuld­ina. Þess vegna var rétt sem Morg­un­blaðið hélt fram að WOW air skuld­aði um tvo millj­arða, þar af um helm­ing­inn gjald­fall­inn á þeim tíma. Skúli getur ekki haldið því fram að einu skuldir WOW air hafi verið þær sem komnar voru fram yfir greiðslu­fresti. Allir vita að maður sem skuldar 20 millj­ónir í fast­eigna­lán skuldar þá fjár­muni þótt hann sé alltaf í skilum við lán­veit­anda sinn. Samkvæmt skil­grein­ingu Skúla virð­ist þó sem sá sami maður sé skuld­laus svo lengi sem hann geri upp sín mál fyrir eindaga,“ segir í stöðu­upp­færslu Stefáns Einars.

Vissu frá upphafi hvað pöntunin gæti leitt yfir félagið

Auk þess­ara taldi Skúli til sex atriði í stöðu­færslu sinni sem hann segir Stefán Einar hafa farið rangt með í bók sinni. Í fyrsta lagi vísar Skúli því á bug að Ben Baldanza hefði komið inn í stjórn WOW air fyrir til­stuðlan eða þrýst­ing frá Airbus eða öðrum hags­muna­að­ilum. Stefán Einar segir þá full­yrð­ingu Skúla ganga í ber­högg við þær upp­lýs­ingar sem hann býr yfir frá aðilum sem hann leit­aði til við skrif bók­ar­innar. Hann hafi enga ástæðu til þess að efast um trú­verð­ug­leika þeirra upp­lýs­inga.

Enn fremur gefur Stefn Einar lítið fyrir full­yrð­ingar Skúla um að það sé rangt að Airbus og aðrir leigusalar fyr­ir­tæk­is­ins hafi haft áhyggjur af rekstri WOW árið 2016 en Stefán segir sömu heim­ild­ar­menn og hann vís­aði áður til hafa stað­fest að slíkar full­yrð­ingar voru til staðar. „Margir þeirra sann­færð­ust strax árið 2016 að það stefndi í alvar­legt óefni hjá WOW air, einkum eftir að upp­lýst var um það í nóv­em­ber 2015 að félagið hygð­ist taka í þjón­ustu sína þrjár A330-300 breið­þotur. Skúli hefur reyndar við­ur­kennt að „kaupin“ á þessum vélum hafi reynst bana­biti félags­ins. Vandinn er aðeins sá að hann sá það ekki fyrr en um seinan en reynslu­boltar í flug­heim­inum vissu frá upp­hafi hvað pönt­unin gæti leitt yfir félagið,“ segir Stefán Einar. 

Þriðja atriðið sem Skúli tekur fyrir er full­yrð­ing Stefán Einars um að hann ásamt stjórn félags­ins hafi vilj­andi hundsað aðvör­un­ar­orð ann­arra í flug­heim­inum. Hann sagði að það liggi fyrir að mis­tök hafi verið gerð en þau hafi talið þær vera réttar á sínum tíma. Stefán bendir hins vegar á að gríð­ar­leg starfs­manna­velta hafi verið meðal stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins sem hann segir að hafi oft verið til komin vegna ágrein­ings um ákvarð­anir sem teknar voru. Auk þess bendir hann á opin­ber ummæli Baldanza um að ekki hafi verið hlustað á ráð­legg­ingar þeirra.

Segir Skúla ekki hafa náð að hrekja það sem gögnin benda til

Skúli sagði jafn­framt að full­yrð­ing Stefáns Einars um að helm­ing­ur­inn af sex millj­arða króna skulda­bréfa­út­boði WOW air hafi verið skulda­leið­rétt­ing eða skuld­breyt­ing sé alfarið röng. „Þetta er rangt og stenst enga skoðun enda hefur ekk­ert komið fram sem styður þessa full­yrð­ingu Stefán Ein­ar­s.“

Stefán segir aftur á móti að gögn hans bendi sterk­lega til þess og að Skúla hafi ekki tek­ist að hrekja þau. Hann segir að ljóst sé að þátt­taka Airbus, ALC, Avolon, Arion banka og fleiri aðila hafi verið bundin skil­yrðum af því tagi. Auk þess hafi Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, sem lagði félag­inu til 3 millj­ónir evra, tjáð sig um efni bók­ar­innar með afger­andi hætti en ekki gert athuga­semd við þennan þátt máls­ins.

Enn fremur sagði Skúli að við­ræður sínar við Icelandair hafa verið á óform­legum nótum. Hann hafi fyrst hitt Ómar Bene­dikts­son fyrir til­viljun á flug­ráð­stefnu þar sem þeir spjöll­uðu saman. Í kjöl­farið var tekin ákvörðun um um að hitt­ast í kaffi ásamt Boga Nils Bogasyni, for­stjóra Icelandair. 

Stefán Einar segir hins vegar að við­ræð­urnar hafa verið aðeins meira en kaffi­spjall þar sem til­lögur að eign­ar­hlut Skúla í sam­ein­uðu félagi Icelandair og WOW voru lagðar fram. Þá hafi fleiri komið að við­ræð­unum en þau sem Skúli nefnir og aðeins greint frá því í bók­inni að Icelandair hafi talið nauð­syn­legt að til­kynna mark­aðnum um við­ræð­urnar. Sú stað­reynd hafi ekki verið hrakin. 
„Skúli var á öðru máli. Það var ekki í eina skiptið sem Skúli taldi óþarft að upp­lýsa við­skipta­menn sína um mik­il­vægar ákvarð­anir eða vend­ingar í rekstri félags­ins,“ skrifar Stefán.

Segir bókina standa óhaggaða og óhrakta

Þá segir Stefán Einar ekk­ert í orðum Skúla hrekja það sem fram kemur í bók­inni um aðkomu Sam­göngu­stofu og ann­arra opin­berra aðila að mál­efnum WOW air. Í bók­inni sé gerð skil­merki­lega grein fyrir til­raunum for­svars­manna félags­ins til að bjarga því og aldrei haldið því fram að þeir ein­stak­lingar hafi ekki haft trú á því sem þeir voru að gera. „Það breytir ekki þeirri stað­reynd að Sam­göngu­stofa vinnur eftir strangri reglu­setn­ingu sem stofn­un­inni er ekki heim­ilt að sveigja eða beygja, jafn­vel þótt Skúli Mogensen eigi í hlut. Á það hef ég bent, líkt og fleiri og nú hefur Rík­is­end­ur­skoðun það verk­efni með höndum að fara ofan í saumana á því máli,“ skrifar Stefán Einar.

Að lokum skrifar Stefán Einar að nú séu fjöl­margir aðilar að rann­saka mál­efni WOW air og á kom­andi mán­uðum muni mála­rekstur innan dóm­stóla og utan leiða sann­leik­ann fram með enn skýr­ari hætti en honum var unnt að gera á þeim fimm vikum sem rit­un­ar­tími bók­ar­innar var. Hann segir að hvað sem líður „stór­yrtum“ yfir­lýs­ingum Skúla Mogensen í hans garði standi bókin hans um WOW air óhögguð um og óhrakin.

„Ég er algjör­lega sann­færður um að sú mynd sem þar verður dregin upp verði í sam­ræmi við það sem ég hef sagt um þetta mál fram til þessa. Hins vegar verður myndin skýr­ari og ég veit fyrir víst að þar munu einnig birt­ast frek­ari upp­lýs­ingar sem eiga ekki síður erindi við íslenskt sam­fé­lag en það sem ég hef gert að umfjöll­un­ar­efni í skrifum mínum,“ segir Stefán Einar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár