Björgólfur Thor keypti skuldabréf í WOW en var aldrei hluthafi

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son segir að hann hafi aldrei verið hlut­hafi í WOW air og að fyrsta aðkoma hans að félag­inu hafi verið þátt­taka í skulda­bréfa­út­boði 26. sept­em­ber í fyrra. Hann hafi tekið þátt til að styðja Skúla Mogensen.

Félag í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, Reliquum, átti engar kröfur á WOW air þegar það keypti skulda­bréf á félagið með reiðufé þann 26. sept­em­ber í fyrra. Alls var fjár­fest­ingin upp á þrjá millj­ónir evra, um 415 millj­ónir króna á gengi dags­ins í dag.

[links]Þetta segir Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Björg­ólfs Thors, í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Þar segir einnig að með kaupum hafi Björgólfur Thor fyrst og fremst vilja „styðja Skúla Mogensen, sem hafði unnið þrek­virki við upp­bygg­ingu flug­fé­lags­ins.“

Í nýrri bók Stefáns Einars Stef­áns­sonar, við­skipta­rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, sem ber nafnið WOW – Ris og fall flug­fé­lags og kom út í síð­ustu viku, var í fyrsta sinn greint frá því að Björgólfur Thor hefði tekið þátt í skulda­bréfa­út­boð­inu WOW air haustið 2018.

[adspot]Þar var einnig greint frá því að ríf­lega helm­ingur þess fjár­magns sem safn­að­ist með skulda­bréfa­út­gáfu WOW air í fyrra hafi runnið frá þátt­tak­end­unum til þeirra sjálfra í gegnum fléttu sem mið­aði að því að breyta skamm­tíma­skuldum þeirra í lang­tíma­skuldir. Alls hafi þetta átt við um 51 pró­sent þess hluta­fjár sem safn­að­ist og þeir aðilar sem Stefán Einar sagði hafa fallið undir þennan flokk voru flug­véla­leigu­fyr­ir­tæk­in Avolon og AirLease Corporation (ALC), flug­véla­fram­leið­and­inn Airbus, fé­lagið Reliquum, sem er í eigu Björg­ólfs Thors, Arion banki, REA ehf., Örygg­is­mið­stöðin og S9 ehf., sem er í eigu Mar­grét­ar Ásgeirs­dótt­ur, fyrr­ver­andi eig­in­konu Skúla.

Kom fyrst inn í september 2018

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Björg­ólfs Thors vegna þessa og spurði hvenær Reliquum eða hafi upp­haf­lega fjár­fest í WOW air. Í svari Ragn­hildar kom fram að Reliquum hafi fjár­fest í skulda­bréfa­út­boð­inu rétt í lokin á útboðs­ferl­inu í sept­em­ber 2018. „Fjár­fest­ingin var metin eins og hver önnur fjár­fest­ing þar sem ávöxtun þótti í sam­ræmi við áhættu miðað við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar á þeim tíma. Reliquum átti engar kröfur á WOW á þeim tíma og var greitt fyrir hin keyptu skulda­bréf með reiðufé hinn 26. sept. sl.“ Aðspurð um hvort að Björgólfur Thor eða önnur félög á hans vegum hafi fjár­fest með ein­hverjum hætti í WOW air fyrir þennan tíma svar­aði Ragn­hildur því neit­andi.

Alls nam skulda­bréfa­út­gáfa WOW air, sem varð gjald­þrota í lok mars síð­ast­lið­ins, 60 millj­ónum evra að nafn­virði, eða um 8,3 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag. Nordic Trustees & Agency hafa lýst kröfu í þrota­búið fyrir hönd allra skulda­bréfa­eig­enda. Reliquum stendur á bak við þá kröfu­lýs­ingu eins og aðrir skulda­bréfa­eig­endur.

[adspot]Í svari Ragn­hildar segir að hlut­hafar geti að sjálf­sögðu ekki lýst kröfum í félög sín, svo kröfu­lýs­ingin stað­festi að til­lögur um breyt­ingu krafna í hlutafé hafi aldrei náð aldrei fram að ganga. For­sendur fyrir þeirri breyt­ingu voru þær að nýir fjár­festar kæmu inn með aukið hlutafé, sem hafi aldrei gerst. „Björgólfur Thor var því aldrei hlut­hafi í WOW, eins og rang­lega er sagt í bók­inni.“

Birti færslu

Björgólfur Thor birti í dag færslu á heima­síðu sinni, www.btb.is, um málið. Þar end­ur­tók hann að mestu það sem fram hafði komið í svörum Ragn­hildar til Kjarnans og bætti við að hann hafi sam­þykkt þær til­lögur sem lagðar voru fyrir skulda­bréfa­eig­endur um að hugs­an­lega breyta kröfum í hlutafé, í þeim til­gangi að bjarga verð­mætum. Forsenda þess hafi þó verið sú, líkt og áður hefur verið rakið, að nýir fjár­festar kæmu með hlutafé inn í WOW air, sem gekk ekki eftir.

Hann segir missi af WOW air og að leitt sé að ekki hafi tek­ist að koma félag­inu fyrir vind. „Ég leyfi mér þó að vona að umfjöllun um mál­efni félags­ins verði rétt og sann­gjörn og að rang­færslur, á borð við þá að ég hafi verið hlut­hafi í WOW eða átt ein­hverja aðkomu þar aðra en kaup á skulda­bréfum sl. haust, heyri sög­unni til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár