Miðflokkurinn að reyna að auka stuðning með hálfsannleik

Þing­maður Við­reisnar telur mál­þóf Mið­flokks­ins í umræðum um þriðja orku­pakk­ann vera flokknum til vansa. Hann efast um heil­indi flokks­ins í mál­inu.

„Ég held að Mið­flokks­menn séu fyrst og fremst hafi metið það þannig að með þess­ari veg­ferð geti þeir nálg­ast meiri stuðn­ing úti í sam­fé­lag­inu með hálf­sann­leik og með því að vera að sá alls­konar efa­semd­ar­fræjum, að mínu mati full­kom­lega með hætti sem er inni­stæðu­laus. Og er nátt­úru­lega flokknum til vansa og umræð­unni.“

Þetta sagði Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni þar sem þeir ræddu mál­þóf Mið­flokks­ins vegna þriðja orku­pakk­ans.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan:

Umræðu um þriðja orku­pakk­ann var frestað í gær­morgun um óákveð­inn tíma til að gera fram­göngu ann­arra mála á Alþingi ger­lega. Mið­flokk­ur­inn hafði þá staðið fyrir mál­þófi í umræðu um þriðja orku­pakk­ann dögum saman, eða alls íu 134 klukku­stundir og átta mín­útur. Umræðan um málið er nú klukku­stund styttri en umræðan um Icesave og er orðin hálfum öðrum sól­ar­hring lengri en umræðan um EES-­samn­ing­inn. Umræðan um EES-­samn­ing­inn var lengi lang­lengsta umræðan á Alþingi og sú fyrsta sem náði því að standa yfir í hund­rað klukku­stund­ir. Þar sem umræðu um þriðja orku­pakk­ann er ekki lokið má telja lík­legt að hún slái met Icesave-umræð­unnar þegar hún hefst að nýju.

[adspot]Jón Steindór sagði þetta ástandi og þennan veru­leika í þing­inu vera óvið­un­andi. „Það er eitt­hvað að þegar starf þings­ins er tekið í her­kví með þessum hætti.“

Málið sé full­rætt. „Það sé ekk­ert nýtt að koma. Það liggur algjör­lega fyrir að það er mjög ríf­legur meiri­hluti í þing­inu fyrir mál­inu. Þarna er einn flokkur sem her­tekur þingið.“

Hann vill að flokkar lands­ins taki sig saman og kom­ist að sam­komu­lagi um breyt­ingar á þing­sköpum sem tak­marki það að hægt sé að taka þingið í her­kví með þessum hætti. Afleið­ingin nú verði sú að þingið muni fjalla um ýmis nauð­syn­leg mál af miklu meiri hraða en ann­ars hefði verið gert, vegna þess að búið sé að sóa miklu tíma í mál­þóf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár