Búið að vísa Klausturmálinu til siðanefndar Alþingis

Tveir tíma­bundnir vara­for­setar for­sætis­nefndar hafa vísað Klaust­ur­mál­inu, sem snýst um drykkju­tal sex þing­manna Mið­flokks­ins, til siða­nefndar Alþingis.

Klaust­ur­málið svo­kall­aða er komið til siða­nefndar Alþingis frá for­sætis­nefnd. Þetta stað­festir Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður Vinstri grænna og annar tíma­bund­inna vara­for­seta for­sætis­nefndar sem fjall­aði um málið, í sam­tali við Kjarnann.

[links]Steinunn og og Har­aldur Bene­dikts­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins voru kjörin vara­for­setar for­sætis­nefndar Alþingis í jan­úar síð­ast­liðnum til að fjalla um Klaust­ur­málið eftir að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, og allir vara­for­setar úr hópi þing­manna, sögðu sig frá umfjöllun um Klaust­ur­mál­ið, vegna van­hæfis þann 17. des­em­ber 2019.

Siða­nefnd hefur þegar skilað for­sætis­nefnd áliti vegna Klaust­ur­máls­ins, en það var birt í lok mars síð­ast­lið­ins. Steinunn Þóra og Haraldur höfðu óskað eftir álit­inu. Í því sagði meðal ann­ars: „„Al­þing­is­­menn eru op­in­ber­ar per­­són­­ur, sú hátt­­semi sem um ræðir átti sér stað á op­in­ber­um vett­vangi og teng­ist mál­um sem hafa verið áber­andi í þjóð­fé­lags­um­­ræð­unni. Þar sem hátt­ernið varðar al­­menn­ing verður ekki litið á þau at­vik sem hér um ræðir sem einka­­sam­tal.“

[adspot]Var það mat meiri­hluta nefnd­ar­innar að sam­ræð­urnar sem fóru fram á barnum Klaustri á milli sex þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins, á þeim tíma sem sam­ræð­urnar áttu sér stað, falli undir gild­is­svið siða­reglna þings­ins.

Sex þingmenn á bar

Klaust­ur­málið snýst um eft­ir­far­andi: Þriðju­dag­inn 20. nóv­em­ber fóru sex þing­menn – fjórir úr Mið­flokki og tveir úr Flokki fólks­ins – á bar­inn Klaustur, í námunda við Alþing­is­húsið. Þar sett­ust þeir niður, drukku áfengi og töl­uðu með niðr­andi og meið­andi hætti um sam­starfs­fólk sitt í stjórn­málum.

Þeir stærðu sig einnig að póli­tískum hrossa­kaupum með sendi­herra­stöður, þing­menn Mið­flokks­ins reyndu að telja þing­menn Flokks fólks­ins um að ganga til liðs við sig auk þess sem nið­ur­lægj­andi orð eru látin falla um Freyju Har­alds­dóttur, fyrr­ver­andi vara­þing­mann og þekktan bar­áttu­mann fyrir auknum rétt­indum fatl­aðra sem glímir við sjald­gæfan bein­sjúk­dóm, og þekktan sam­kyn­hneigðan tón­list­ar­mann.

Það sem þing­menn­irnir sex, þeir Sig­­mundur Dav­íð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins , Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður hans, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, rit­ari flokks­ins, Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins og Karl Gauti Hjalta­­son og Ólafur Ísleifs­­son úr Flokki fólks­ins, vissu ekki var að í nálægð við þá sat ein­stak­lingur sem upp­haf­lega kall­aði sig bara „Marvin“. Sá tók upp það sem fram fór. Og sendi á valda fjöl­miðla.

Upp­tök­urnar voru síðar birtar í fjöl­miðlum og „Marvin“ steig síðar fram sem Bára Hall­dórs­dóttir.

Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son hafa gengið til liðs við Mið­flokk­inn.

Þórhildur Sunna fyrst til að brjóta siðareglur

Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Pírata, varð í síð­ustu viku fyrst íslenskra þing­manna til að vera úrskurðuð brot­leg við siða­reglur þing­manna. Hún var talin hafa verið brot­leg við siða­reglur þing­manna með ummælum um meinta sjálftöku Ásmundar Frið­riks­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks, þegar hún sagði, í Silfrinu fyrr á þessu ári, eft­ir­far­andi: „Við sjáum það að ráð­herrar þjóð­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ing­um, þing­menn þjóð­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ing­um. Nú er uppi rök­studdur grunur um það að Ásmundur Frið­riks­son hafi dregið að sér fé, almanna­fé, og við erum ekki að sjá við­brögð þess efnis að það sé verið að segja á fót rann­sókn á þessum efn­um.“

Þór­hildur Sunna ræddi þessa nið­ur­stöðu í við­tali í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut á þriðju­dag. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár