Efling kallar eftir ábendingum um vanefndir

Efling hefur fengið ábend­ingar um að fyr­ir­tæki hafi brugð­ist við launa­hækk­unum í nýjum kjara­samn­ingi með því að taka af starfs­fólki bónusa, auka­greiðslur og ýmis konar hlunn­indi. Félagið kallar eftir frek­ari ábend­ingum frá félags­mönnum um slíkar aðgerðir.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Efling kallar eftir ábend­ingum frá félags­mönnum um að fyr­ir­tæki hafi brugð­ist við launa­hækk­unum í nýjum kjara­samn­ingi með því að taka af starfs­fólki bónusa, auka­greiðslur og ýmis konar hlunn­indi. Mark­miðið er að safna gögnum og öðl­ast betri yfir­sýn yfir efndir lífs­kjara­samn­ing­anna. Félagið mun svo bregð­ast við með við­eig­andi hætti. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu.

[links]Samkvæmt Eflingu hefur félagið fengið ábend­ingar um slíkar aðgerðir. Stétt­ar­fé­lagið hefur sent Samtökum atvinnu­lífs­ins erindi vegna vegna hóp­upp­sagnar hót­el­stjór­ans Árna Vals Sól­ons­sonar á launa­kjörum starfs­fólks síns eftir sam­þykkt kjara­samn­ing­anna og hefur óskað eftir fundi með SA.

Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, segir van­efndir á kjara­samn­ingum vera grafal­var­legt mál og að þær hljóti að telj­ast sér­stak­lega sið­lausar í ljósi þess að verka­lýðs­hreyf­ingin hafi fall­ist á mjög hóf­samar launa­hækk­anir á fyrsta ári samn­ings­tím­ans. „Er það til of mik­ils mælst að fólk fái sína launa­hækkun upp á 17 þús­und krónur?“ spyr hann.

Viðar segir dæmið á hót­elum Árna Vals Sól­ons­sonar því miður ekki vera það eina. „Það er mjög miður að Samtök atvinnu­lífs­ins verji þessa hegðun. Við þetta vakna ansi margar spurn­ingar, til dæmis varð­andi mögu­leik­ann á riftun, eins og mið­stjórn ASÍ hefur bent á í ályktun sinni frá 15. maí síð­ast­liðnum.“

Hér er hægt að skoða ákallið til félags­manna Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár