Krefjast fundar með SA hjá ríkissáttasemjara vegna vanefnda

Efling hefur kraf­ist fundar með fram­kvæmda­stjóra SA vegna hóp­upp­sagnar hót­el­stjór­ans Árna Vals Sól­ons­sonar á launa­kjörum starfs­fólks síns rétt eftir sam­þykkt kjara­samn­ing­anna. Fram­kvæmda­stjóri Eflingar segir allan kjara­samn­ing­inn við SA vera í húfi.

Efling, stétt­ar­fé­lag, hefur kraf­ist fundar með fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins, Halldóri Benjamín Þor­bergs­syni, í húsa­kynnum rík­is­sátta­semj­ara vegna van­efnda á nýund­ir­rit­uðum kjara­samn­ingi. Málið kemur til vegna hóp­upp­sagnar hót­el­stjór­ans Árna Vals Sól­ons­sonar á launa­kjörum starfs­fólks síns umsvifa­laust eftir sam­þykkt kjara­samn­ing­anna. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Eflingu.

Áskilinn réttur til að rifta kjarasamningum

[links]Í tilkynningunni segir að Efling hafi sent bréf til Árna Val, sem stýrir CityPark, CityCenter og CapitalInn hótelunum, til að fá skýringar á þessu. Í uppsagnarbréfi hótelstjórarns til starfsmanna kom fram að þetta væri „til að lækka launakostnað“ vegna „væntanlegs kostnaðarauka“. Rekstrarfélög Árna Vals tilheyra Samtökum atvinnulífsins og innti Efling því einnig eftir viðbrögðum frá SA.

Miðstjórn ASÍ lýsti því yfir í kjölfarið að stéttarfélögum væri áskilinn réttur til að rifta kjarasamningum gagnvart þeim atvinnurekendum sem ekki virtu þá sem samið hefur verið um. Þar með væru lögmætar þvingunaraðgerðir á borð við verkföll í spilinu.

„Við semjum í góðri trú, með það að markmiði að bæta kjör félagsmanna okkar,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar. „Þetta er blaut tuska í andlitið, að bregðast við með því að fella niður kjör sem starfsmenn hafa notið. Það er engu líkara en verið sé að refsa félagsmönnum fyrir að hafa samið um launahækkun.“

„Kóa með verstu sort af kapítalista“

Samkvæmt tilkynningunni hafa Samtök atvinnulífsins sent bréf til Eflingar þar sem þau þverneita að þetta séu undanbrögð vegna launahækkana í kjarasamninginum. Engin skýring er gefin á þeim orðum uppsagnarbréfsins, sem starfsmönnum var skipað að skrifa undir á staðnum, að „væntanlegur kostnaðarauki“ væri ástæða uppsagnanna.

„Þau eru einfaldlega að kóa með verstu sort af kapítalista,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. „Þeirri sort sem er til í að setja fólk á strípaðan taxta þegar þau semja um launahækkun, þeirri sort sem reynir að stækka hótelið sitt í leyfisleysi síðasta haust, sem bjó svo illa um byggingarverkamennina að það þurfti að loka framkvæmdunum því þeir voru taldir í lífshættu. Manni sem reyndi að koma í veg fyrir að starfsfólkið hans fengi að kjósa um verkfallið sitt. Manni sem hefur oft stært sig af að borga starfsfólkinu sínu meira en aðrir hótelstjórar, sem er einfaldlega ósatt. Manni sem sagði að hann ætlaði að búa til sitt eigið stéttarfélag fyrir starfsfólkið sitt, því honum fannst Efling ekki nógu gott. Þetta er maðurinn sem SA ganga nú fram fyrir skjöldu til að verja.“

Viðar Þorsteinsson segir allan kjarasamninginn við SA vera í húfi. „Spurningin er hvort samtökin séu að gefa grænt ljós á allsherjar vanefndir á kjarasamningnum sem þau undirrituðu sjálf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

AðsentKjaramál

Jóhannes Hraunfjörð Karlsson

Fleygur í þjóð­ar­sál: Hug­leið­ingar um almanna­trygg­ingar, við­bót­ar­líf­eyri og dóm um líf­eyr­is­sjóði í árs­lok 2021

Jóhannes Hraun­fjörð Karlsson segir að núver­andi for­sæt­is­ráð­herra hafa fært almennt sið­ferði niður. Í hennar tíð hafi laun þing­manna og emb­ætt­is­manna marg­fald­ast og séu nú að auki vísi­tölu­bundin en slíkt tíðk­ist hvergi nema um lág­marks­laun.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár