ASÍ: Uppsagnir jafngildi því að ætla ekki að standa við samninga

Mið­stjórn ASÍ hefur sent frá sér harð­orða ályktun, vegna upp­sagna fyr­ir­tækja.

Mið­stjórn ASÍ harmar við­brögð þeirra atvinnu­rek­enda sem í kjöl­far nýgerðra kjara­samn­inga hafa gripið til upp­sagna á launa­kjörum starfs­manna sinna að sögn vegna þess kostn­að­ar­auka sem til kemur vegna gild­is­töku samn­ing­anna.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ASÍ. Í ályktun mið­stjórn­ar­innar segir meðal ann­ars að ein­hliða riftun á samn­ingum komi til greina, ef atvinnu­rek­endur ætla ekki að standa við samn­inga.

„Mið­stjórn leggur áherslu á, að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins semja og gera kjara­samn­inga í góðri trú um að við und­ir­ritun þeirra verði af báðum aðilum unnið að stað­fest­ingu þeirra og í fram­hald­inu að því að hrinda þeim í fram­kvæmd skv. efni sínu. Þeir atvinnu­rek­endur sem gripið hafa til upp­sagna á ráðn­ing­ar­kjörum starfs­manna sinna nú í kjöl­far und­ir­rit­unar og sam­þykkis kjara­samn­inga ganga gegn mark­miðum samn­ing­anna og lýsa því bein­línis yfir að þeir hygg­ist ekki efna þá. Mið­stjórn ASÍ skorar á við­kom­andi atvinnu­rek­endur að draga nú þegar til baka allar upp­sagnir byggðar á fram­an­greindum for­sendum. Jafn­framt áskilur ASÍ öllum aðild­ar­sam­tökum sínum rétt til þess að lýsa yfir ein­hliða riftun nýgerðra kjara­samn­inga við þessa sömu atvinnu­rek­endur vegna þess ásetn­ings þeirra að ætla sér ekki að virða þá og hrinda í fram­kvæmd,“ segir í álykt­un­inni.

Auk þess segir að ASÍ áskilji sér rétt til þess að hefja aðgerðir til þess að „knýja á um gerð nýs kjara­samn­ings við við­kom­andi aðila og beita til þess öllum til­tækum og lög­mætum þving­un­ar­að­gerðum til þess að knýja á um gerð þeirra, þar með talið með verk­föllum.“

Nokkuð hefur borið á upp­sögnum hjá fyr­ir­tækjum að und­an­förnu. Sér­stak­lega á það við um fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu, en mik­ill sam­dráttur hefur verið í grein­inni und­an­farin miss­eri, eftir fall WOW air. Í apríl komu 18 pró­sent færri ferða­menn til lands­ins heldur en á sama tíma í fyrra, og ný hag­vaxt­ar­spá Hagstofu Íslands gerir ráð fyrir 0,2 pró­sent sam­drætti í lands­fram­leiðslu á þessu ári, sam­an­borið við 4,6 pró­sent hag­vöxt í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár