Segir það þjóðarskömm að skattleggja fátækt

Formaður Flokks fólks­ins segir að þeir sem hafa í raun­inni sjaldan þurft að dýfa hendi í kalt vatn og vita ekki hvað það er að berj­ast í fátækt virð­ist engan veg­inn geta sett sig í spor þeirra sam­landa sinna sem eiga virki­lega bágt.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, gerði kjör eldri borg­ara að umtals­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Hún spurði hvað gæti komið í veg fyrir að leyfa fátæku fólki að reyna sig á vinnu­mark­aði ef það hefði heilsu og getu til. „Hvað í ver­öld­inni getur komið í veg fyrir að aldr­aður ein­stak­lingur sem vill vinna áfram skuli vera skertur slíkt og því­líkt að ekki er nokkur hagur af því heldur er hann lát­inn fara heim og sitja þar og bíða eftir sinni hinstu ferð?“

Sagði hún að það væri ekk­ert nema ávinn­ingur af því að gefa fólki kost á því að bjarga sér sjálft í stað þess að með vit­und og vilja stjórn­valda væri algjör­lega ein­beittur vilji til að halda þessu fólki áfram í ramm­gerðri fátækt. „Það er þjóð­ar­skömm að skatt­leggja fátækt,“ sagði hún.

„Þessi kúgun“ bitnar á fátækasta fólkinu í landinu

Inga hélt áfram og benti á að Flokkur fólks­ins hefði mælt fyrir frum­varpi sem kveður á um 350.000 króna lág­marks­fram­færslu, skatta- og skerð­ing­ar­laust.

„Hvernig er farið með það? Þeir sem hafa í raun­inni sjaldan þurft að dýfa hendi í kalt vatn og vita ekki hvað það er að berj­ast í fátækt virð­ast engan veg­inn geta sett sig í spor þeirra sam­landa sinna sem eiga virki­lega bágt. Þessir sömu háu herrar, æðstu emb­ætt­is­menn þjóð­ar­innar, furða sig hvað mest á því hvernig stendur á öllum þessum and­legu bág­indum. Af hverju líður okkur svona illa? Við skulum ekki gleyma því að þetta ástand, þessi kúgun, bitnar á fátæk­asta fólk­inu í land­inu og bitnar fyrst og síð­ast á börn­unum sem eiga að byggja landið,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár