Uppfærslu á hugbúnaðinum í 737 Max flugvélunum lokið

Banda­ríski flug­véla­fram­leið­and­inn Boeing hefur lokið við upp­færslu á hug­bún­að­inum í 737 Max flug­vél­unum sem talið er að hafi valdið tveimur flug­slysum í vetur.

Banda­ríski flug­véla­fram­leið­and­inn Boeing til­kynnti í morgun að upp­færslu á hug­bún­að­inum, sem talið er að hafi valdið tveimur flug­slysum síð­asta vetur, sé nú lokið. Fyr­ir­tækið hefur prófað upp­færði bún­að­inn í 207 flug­ferðum á 737 Max vél­unum, en þær hafa verið kyrr­settar um heim allan vegna slysanna. Frá þessu er greint á vef BBC.

Ekki liggur fyrir hvenær kyrr­setn­ing­unni verður aflétt

[links] Kyrr­setn­ingin á Max- vélum Boieng kom til eftir flug­slys í Eþíópíu, 13. mars síð­ast­lið­inn, þegar 157 lét­ust skömmu eftir flug­tak Max vélar Ethi­opian Airlines. Það var þá annað slysið á skömmum tíma þar sem Max vél hrap­aði með þeim afleið­ingum að allir um borð lét­ust. Fyrra slysið var 29. októ­ber í fyrra, þegar vél Lion Air í Indónesíu hrap­aði skömmu eftir flug­tak. Þá lét­ust 189, allir um borð. Eftir seinna slysið var notkun á Max-­vél­unum bönnuð á heims­vísu, og vél­arnar kyrr­sett­ar. Sú kyrr­setn­ing hefur haft miklar afleið­ingar í ferða­þjón­ustu í heim­in­um, þar meðal á Íslandi.

Frum­nið­ur­stöður rann­sókna á slys­unum hafa beint spjót­unum að svo­nefndu MCAS-kerfi í vél­unum, sem á að sporna gegn ofrisi. Yfirvöld í Indónesíu hafa kynnt frum­nið­ur­stöður rann­sóknar sinnar og segja að flug­menn hafi brugð­ist rétt við aðstæðum, en ekki náð valdi á vél­inni vegna þess að hún virt­ist sífellt tog­ast niður til jarðar. Loka­nið­ur­stöður rann­sókna liggja þó ekki fyrir.

Í næstu viku mun Boeing reyna sannfæra flugmálayfirvöld

Á mánu­dag­inn sagði Daniel Elwell, yfir­maður flug­mála­yf­ir­valda í Banda­ríkj­unum, frammi fyrir þing­nefnd Banda­ríkja­þings, að leið­ar­vísir fyrir flug­menn Boeing 737 Max véla, hafi ekki verið nægi­lega góð­ur, þegar kemur að útskýr­ingum á því hvernig ætti að lýsa hinu svo­nefnda MCAS-­kerfi sem á að sporna gegn ofrisi.

Boeing hefur und­an­farið unnið að því að upp­færa bún­að­inn í vél­unum og end­ur­heimta á þeim traust, hjá flug­mála­yf­ir­völdum um allan heim. Boeing til­kynnti í morgun að upp­færsla hug­bún­að­inum sé nú lokið og að fyr­ir­tækið hafi afhent Banda­ríska flug­mála­eft­ir­lit­inu upp­lýs­ingar um hvernig flug­mönnum ber að bregð­ast við ólíkum aðstæðum og að sér­stök flug­hermis­próf hafi verið gerð til að þjálfa betur flug­menn.

Þá hafa opin­ber flug­próf verða ákveðin í sam­ráði við Flug­mála­eft­ir­litið en að því loknu geti Boeing sótt aftur um flug­leyfi fyrir Max 737 vél­arnar. Eftir það tekur við vinnan við að end­ur­heimta traust á flug­vél­unum en fundað verður um Max-­vél­arnar 23. maí næst­kom­andi og mun Boeing þar reyna að sann­færa full­trúa flug­mála­yf­ir­valda víðs vegar um heim­inn, að Max-­vél­arnar séu traust­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár