Segir að leiðarvísir flugmanna fyrir Max-vélarnar hafi átt að vera betri

Yfir­maður banda­ríska flug­mála­yf­ir­valda sat fyrir svörum þing­nefndar Banda­ríkja­þings í dag.

Daniel Elwell, yfir­maður flug­mála­yf­ir­valda í Banda­ríkj­unum (Federal Aviation Administration), sagði frammi fyrir þing­nefnd Banda­ríkja­þings í dag, að leið­ar­vísir fyrir flug­menn Boeing 737 Max véla, hafi ekki verið nægi­lega góður, þegar kemur að útskýr­ingum á því hvernig ætti að lýsa hinu svo­nefnda MCAS-kerfi sem á að sporna gegn ofrisi.

Þingmenn bæði Repúblik­ana og Demókrata sóttu hart að full­trúum yfir­valda, og beindu spurn­ingum sínum ekki síst að því hvernig sam­skiptin hefðu verið milli banda­rískra flug­mála­yf­ir­valda og Boeing.

Boeing er stærsta útflutn­ings­fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna, og hefur í gegnum tíð­ina átt í umfangs­miklu við­skipta­sam­bandi við banda­ríska ríkið, ekki síst í gegnum við­skipti Banda­ríkja­hers.

Talið er að flug­slys í Indónesíu 29. októ­ber í fyrra og Eþíópíu 13. mars, megi rekja til galla í hug­bún­aði skynjara, sem MCAS-kerfið byggir á, en sam­tals létus 346 í fyrr­nefndum slysum, allir um borð í báðum vélum.

Loka­nið­ur­stöður rann­sókna flug­mála­yf­ir­valda í Indónesíu og Eþíópíu liggja ekki fyrir, en Boeing hefur við­ur­kennt að hafa vitað um galla sem tengj­ast bún­að­inum, fyrir slysin.

Eftir seinna slysið var notkun á Max-vél­unum bönnuð á heims­vísu, og vél­arnar kyrr­settar.

Sú kyrr­setn­ing hefur haft miklar afleið­ingar í ferða­þjón­ustu í heim­inum, þar meðal á Íslandi, eins og rakið var í ítar­legri frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Ekki liggur fyrir hvenær kyrr­setn­ing­unni verður aflétt, en Boeing vinnur nú að því að upp­færa bún­að­inn í vél­unum og end­ur­heimta á þeim traust, hjá flug­mála­yf­ir­völdum um allan heim.

Fundað verður um Max-vél­arnar 23. maí næst­kom­andi, sam­kvæmt umfjöllun Seattle Times, og mun Boeing þar reyna að sann­færa full­trúa flug­mála­yf­ir­valda víðs vegar um heim­inn, að Max-vél­arnar séu traustar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár