Starfslok stjórnenda Sýnar kostuðu 137 milljónir

Bók­færður sölu­hagn­aður vegna sam­ein­ingar dótt­ur­fé­lags skil­aði Sýn réttu megin við á fyrsta árs­fjórð­ungi. Sam­dráttur var í tekjum hjá flestum tekju­stoðum félags­ins. Brott­rekstur þorra fram­kvæmd­ar­stjórnar félags­ins var dýr.

Mikill kostn­aður vegna starfs­loka fram­kvæmda­stjóra, gjald­þrot WOW air, kjara­samn­ingar, óhag­stætt gengi og sölu­hagn­aður vegna sam­ein­ingar dótt­ur­fé­lags eru allt þættir sem hafa mikil áhrif á upp­gjör fjar­skipta- og fjöl­miðla­fé­lags­ins Sýnar fyrir fyrstu þrjá mán­uði árs­ins.

Upp­gjörið var birt í Kauphöll Íslands í dag.

[links]Hagnaður Sýnar nam 670 millj­ónum króna á fyrsta árs­fjórð­ungi, sem er hækkun um 619 millj­ónir króna milli ára. Lyk­ilá­stæða þess að Sýn skil­aði hagn­aði á árs­fjórð­ungnum er vegna þess að bók­færður sölu­hagn­aður vegna sam­runa P/F Hey, dótt­ur­fé­lags Sýnar hf. í Færeyjum og Nema, dótt­ur­fé­lag Tjaldurs, gekk í gegn á fjórð­ungnum og er 49,9 pró­sent hlutur Sýnar hf. í nýju sam­ein­uðu félagi færður sam­kvæmt hlut­deild­ar­að­ferð og því ekki hluti af sam­stæðu­reikn­ings­skilum Sýnar hf. frá byrjun þessa árs. Alls nemur bók­færður sölu­hagn­aður vegna þessa 817 millj­ónum króna. Án hans hefði verið tap á rekstri Sýnar á árs­fjórð­ungnum.

[adspot]Tekjur Sýnar á tíma­bil­inu voru 4.975 millj­ónir króna sem er lækkun um eitt pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra, þegar tekjur voru 5.030 millj­ónir króna. Ef verð­bólga er tekin inn í dæmið þá var sam­drátt­ur­inn í raun­tekjum meiri en áður­nefnt eitt pró­sent. Kostn­að­ar­verð jókst að sama skapi og dróst fram­legð saman um 118 millj­ónir króna milli ára.

Tekjur Sýnar sam­an­standa úr nokkrum stoðum. Sú eina þeirra sem skil­aði meiri tekjum í ár en á sama árs­fjórð­ungi 2018 var sala á inter­net­þjón­ustu. Tekjur vegna fjöl­miðl­unar, far­síma, fast­línu og vöru­sölu dróg­ust allar saman.

Í fjár­festa­kynn­ingu Sýnar vegna upp­gjörs­ins kemur fram að óhag­stæð þróun gengis hafi haft nei­kvæð áhrif á upp­gjörið miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þá hafi gjald­þrot WOW air og kjara­samn­ingar haft nei­kvæð áhrif á aug­lýs­inga­tekjur á árs­fjórð­ungnum.

Kostaði 137 milljónir að skipta um stjórnendur

Miklar svipt­ingar hafa verið hjá Sýn und­an­farin miss­eri, en kaupin á fjöl­miðl­unum hafa ekki skilað þeim árangri sem áætl­anir gerðu ráð fyr­ir. Hagn­aður félags­ins í fyrra var til að mynda 473 millj­ónir króna, sem var langt undir vænt­ing­um. Ekk­ert félag í Kaup­höll­inni lækk­aði meira í virði en Sýn á síð­asta ári, en virði bréfa þess fór niður um 38,3 pró­sent.

Þá misstu fjöl­miðlar Sýn rétt­inn af einni af sínum vin­sæl­ustu vörum, Enska bolt­an­um, í lok árs í fyrra og fær­ast sýn­ingar á honum yfir til Sím­ans frá og með næsta haust­i.

Þrír stjórn­endur Sýnar hafa verið látnir fara á þessu ári. Í lok febr­ú­ar, rúmum tveimur mín­útum eftir að upp­gjör félags­ins vegna árs­ins 2018 var birt, barst til­kynn­ing um að Stefán Sig­urðs­son, for­stjóri félags­ins, hefði náð sam­komu­lagi um að hætta störf­um.

Í byrjun árs voru tveir aðrir rekn­ir, þar á meðal Björn Víglunds­son, sem var yfir miðlum félags­ins. Hans hlut­verk hafði sér­stak­lega verið að leiða sam­þætt­ingu fjöl­miðla­hluta Sýnar við aðrar ein­ingar Fjar­skipta og vinna að vöru­þró­un.

Í árs­upp­gjör­inu kemur fram að áhrif starfs­loka stjórn­enda hjá Sýn á fyrsta árs­fjórð­ungi hafi numið 137 millj­ónum króna.

[adspot]Í lok apríl var greint frá því að Heiðar Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur og fjár­fest­ir, hefði verið ráð­inn for­stjóri Sýn­ar. Hann hætti á sama tíma sem stjórn­ar­for­maður félags­ins, en Heiðar er einn stærsti hlut­hafi Sýnar með 6,4 pró­sent eign­ar­hlut. Heiðar hafði gegnt starfi for­stjóra tíma­bundið í nokkrar vikur áður en að hann var ráð­inn í starf­ið.

Nokkrum dögum síðar var greint frá því að Þór­hallur Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Kast­ljóss, hefði verið ráð­inn sem fram­kvæmda­stjóra Miðla hjá fyr­ir­tæk­inu. Hann tekur við starf­inu 22. maí næst­kom­andi en undir sviðið heyra meðal ann­ars fjöl­miðl­arnir Stöð 2, Stöð 2 sport og útvarps­stöðv­arnar Bylgj­an, FM957 og Xið977 auk Vís­is.

Á sama tíma var Signý Magn­ús­dóttir ráðin fjár­mála­stjóri Sýnar frá og með 1. júní næst­kom­andi.

Ítarleg kynning á stefnumótun í næsta uppgjöri

Í fjár­festa­kynn­ingu félags­ins kemur fram að nýtt ferli sé hafið í stefnu­mótum hjá Sýn og að því verði lokið snemma sum­ars. Von er á ítar­legri kynn­ingu á þeirri stefnu­mótun í milli­upp­gjöri félags­ins.

Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýnar, segir að þeir sem nú komi inn í fram­kvæmda­stjórn Sýnar hafi unnið áður sem ráð­gjafar fyrir félagið og þekki það vel sem gerir það að verkum að þeir þurfi ekki tíma til aðlög­unar. „Ég tel félagið ein­stak­lega heppið með sam­setn­ingu hinnar nýju fram­kvæmda­stjórnar og hlakka til að taka slag­inn á mark­aði með þessum úrvals­hópi. Félagið mun klára stefnu­mótun og skerpa á rekstr­inum strax í júní. Við ætlum að veita við­skipta­vinum okkur úrvals þjón­ustu og vera í far­ar­broddi með nýj­ungar. Vegna árs­tíða­sveiflu í rekstri verða næstu fjórð­ungar árs­ins betri. Við erum enn viss­ari um að horfur árs­ins náist og horfum björtum augum fram á við."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár