Sýning sem þjóðin þarf að sjá!

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fór að sjá Súper eftir Jón Gnarr í Þjóð­leik­hús­inu.

Þjóðleikhúsið: Súper

Höfundur: Jón Gnarr

Leik­stjóri: Benedikt Erlings­son

Leikmynd: Grétar Reyn­is­son

Búningar: Fillippía I. Elís­dóttir

Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústs­son

Hljóð­mynd: Aron Þór Arn­ars­son

Leik­endur: Arn­mundur Ernst Backman, Snæ­fríður Ingv­ars­dóttir, Sólveig Arn­ars­dóttir, Vigdís Hrefna Páls­dóttir, Hall­grímur Ólafsson, Jón Gnarr, Edda Björg­vins­dóttir, Eggert Þor­leifs­son.

Rétt eins og Shakespe­are mun hafa sagt að öll ver­öldin væri leik­svið gæti Jón Gnarr hugs­an­lega stað­hæft að allt Ísland sé kjör­búð. Súper heitir ekki aðeins í höf­uðið á nýrri kjör­búð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, verkið ger­ist í kjör­búð, sem í mynd Grétars Reyn­is­sonar er einna lík­ast fang­elsi sem ekki verður úr kom­ist fyrr en fund­ist hefur maður sjálfur, vit­und manns, til­gangur lífs­ins og ekki síður allt það annað sem vantar til að full­komna þetta jarð­líf – hvort sem þar um ræðir mán­að­ar­skammt­inn til heim­il­is­ins eins og sveita­hjúin Bjössi og Gugga koma til að sækja eða puls­urnar í kósí­kvöld barn­anna með ömm­unni eins og ein­stæða móð­irin Elín. Nú eða þá bara drátt af því að kyn­hvötin reyn­ist vera óseðj­andi og það verður að taka á því. Enda eru ein­kunn­ar­orð Súper: “þar sem kjöt snýst um fólk” – og mann­legra getur það varla orðið. Eða?

[adspot]Við kynn­umst eins konar með­al­úr­taki þjóð­ar­innar, sem á leið í kjör­búð­ina Súper til að afla sér matar og lífsinni­halds – þarna eru ungu hjónin Einar og Guðrún, leikin af Arnmundi Ernst Backman og Snæfríði Ingv­ars­dóttur sem eru á önd­verðum meiði varð­andi barn­eignir og áhuga á kyn­lífi, þá er hann Hannes sem býr einn með móður sinni eftir að faðir hans dó, sem varð til þess að hann gekk sjálfum sér í föður stað sem og móður sinni í eig­in­manns stað, þarna er Elín sem hefur ákveðnar skoð­anir á því hvers konar kyn­líf hún vill og undir hlé birt­ast þau Bjössi og Gugga, leikin af Eddu Björg­vins­dóttur og Eggerti Þor­leifs­syni. Í mið­punkti kjör­búð­ar­innar Súper er svo að finna Kristján kaup­mann sem leik­inn er af höf­undi sjálfum, Jóni Gnarr.

Upphaf verks­ins er undir sterkum áhrifum frá einum af meist­urum absúr­dism­ans, Ionesco og verki hans, Sköll­óttu söng­kon­unni; per­sónur leiks­ins rjúfa fjórða vegg­inn milli sviðs og salar, tala við áhorf­endur og gera grein fyrir sjálfum sér, hverjar þær eru, hvað þær vilja og við hverju þær búast af líf­inu. Eins og vænta má af jafn satírískum höf­undi og Jón Gnarr er sjálfs­mynd hvers ein­asta karakt­ers í tómu tjóni, en járna­bind­ingin er hin sama hjá öllum og tengir per­són­urnar: þær leggja ofurá­herslu á að þær eru íslenskar og trúa og treysta á allt það sem íslenskt er. Þetta er ósvikin háðsá­deila á hin íslensku, íhalds­sömu og borg­ara­legu gildi, þau hin sömu og ráku okkur til sjálf­stæðis á veikum grunni versl­un­ar­frelsis án þess að litið væri til hinna and­legu gilda og æðri verð­mæta – sem gætu hugs­an­lega veitt svör við því hvað það er sem raun­veru­lega tengir okkur saman sem þjóð.

Þarna er Jón Gnarr á heima­velli, hann sýnir í höf­und­ar­verki sínu að hann er absúr­disti – og satí­ríker! – fram í fing­ur­góma. Textinn er hitt­inn og hnytt­inn og vekur oftar en ekki hlátur sem á end­anum stendur í manni af því ver­andi Íslend­ingur verður manni fátt um svör – enda nú eru upp runnir tímar gló­bal­isma, gömul og íhaldsöm gildi eiga alls ekki lengur við, tím­inn löngu hlaup­inn framúr okkur hvað það varðar: slag­orðið gamla, sem mark­aði upp­haf lýð­ræðis: frelsi, jafn­réttir og bræðra­lag hefur öðl­ast nýja merk­ingu þar sem ein­stak­ling­ur­inn einn og sjálfur en ekki sam­fé­lags­veran sem hluti af þjóð fær það verk­efni að aðlaga sig að nýjum veru­leika og nýjan veru­leika að sér. Þessi dýnamík er kannski torskilin en Jón Gnarr er á heima­velli, hann hefur fattað djó­kið og gerir sér óspart mat úr því. Og séð frá hans sjón­ar­hóli verður það eitt­hvað svo út í hött, svo ámát­legt að deila um það hver mun­ur­inn sé á pólskum pylsum og íslenskum. Hvað gerir pylsu pólska? Hvað gerir hana íslenska? Hvað gerir mann að karli eða konu? Er það í lagi – eða ekki – að kona sæk­ist eftir óheftu kyn­lífi á hennar eigin for­sendum. Jón Gnarr er ekki ein­asta á heima­velli, hann er í ess­inu sínu og leikur af öryggi á fyr­ir­bæri eins og þjóð­ar­til­finn­ingu, sam­hug þjóðar, þjóð­ar­sál og skiln­ing þjóðar á sjálfri sér.

Jón Gnarr er að kalla þjóð­ina til sam­tals og íhug­unar og hann gerir það bara býsna vel. Það er fátt sem vekur ekki til umhugs­unar hér og átaka­flöt­ur­inn er fjöl­breyti­legur og marg­slung­inn og texti sýn­ing­ar­innar situr í manni löngu eftir að sýn­ingu lýkur. Kannski – von­andi! – er hér á ferð­inni verk sem má kalla lykil að ástand­inu í Lýð­veld­inu Íslandi og sem slíkt lyk­il­verk á það erindi við unga sem aldna sem mega svo vel velta því fyrir sér hvort við höfum gengið til góðs hingað til og hvert við ætlum að ganga til fram­tíðar og í hvaða takti. Það er ekki á hverjum degi sem færi gefst á að gera það þar sem hár­beittur húmor og vel grund­aður skiln­ingur fer saman og gefur tón­inn.

Leik­stjóri og leik­hópur nálg­ast við­fangs­efnið á ákaf­lega real­ískan máta en um leið stílíser­aðan. Real­ískan í þeim skiln­ingi að hvert and­ar­tak á sér rætur í raun­veru­leika sem við þekkjum og hvað það varðar vottar hvergi fyrir mála­miðl­unum – hér á sér stað mis­kunn­ar­laus krufn­ing á sam­fé­lags­á­standi og hún er ýkt, gerð skýr­ari með því að fært er í stíl­inn, end­ur­tekið, talað hraðar, meira að segja æði­bunu­lega og öllum brögðum hins óvænta húmors beitt þannig að jafn­vel það sem virð­ist í fyrstu vera aula­húmor og við hlæjum að og teljum okkur þekkja snýst við og hlát­ur­inn stendur í okkur af því aula­húmor­inn hittir okkur fyrir þar sem verst svíður.

[adspot]Ádeilan verður þó aldrei grimm. Jón Gnarr er eng­inn Artaud, hann er umburð­ar­lynd­ari en Artaud og þykir vænna um okkur en svo að hann vilji særa okkur – það hefðu enda verið svik í þessu sam­hengi. Jón Gnarr er góð­lát­legur gagn­rýn­andi og það er frekar eins og hann vilji spyrja okkur, hvort það sé nú raun­veru­lega svona sem við viljum hafa hlut­ina? Gagnrýni borin fram af kær­leik og vænt­um­þykju – en engu að síður hár­beitt og hittin.

Leik­stjór­inn Benedikt Erlings­son er ekki síður á heima­velli staddur þegar um ádeilu af þessu tagi er að ræða, enda hafa þeir Jón Gnarr iðu­lega unnið saman á liðnum árum og þarf ekki að fjöl­yrða um það. Leik­stjórn­ar­lega og reyndar leik­lega líka er sýn­ingin í óað­finn­an­legu sam­ræmi við hug­mynd og hand­rit.

Leik­ar­arnir, allir með tölu, ná að sam­sama sig svo full­kom­lega karakt­erum sínum að það er eins og verkið sé skrifað ofan í þá og skýrir og stíl­hreinir bún­ingar Fillippíu I. Elís­dóttur leyfir hverjum og einum að blómstra á sínum eigin for­sendum. Hvað sem líður stílís­er­ingu koma per­sónur Súper fyrir sem ekta af holdi og blóði, þær gætu verið kunn­ingjar manns eða vinir, þær gætu verið nágrann­inn. Hver og ein þeirra gæti verið við sjálf!

Þessi gagn­rýni birt­ist á síð­ustu stundu. Þjóð­leik­húsið hefur aug­lýst síð­ustu sýn­ingu og við því verður ekki brugð­ist nema fara þess á leit að leik­húsið end­ur­skoði þá afstöðu – þetta er sýn­ing, sem fleiri eiga eftir að sjá – sem þjóðin þarf að sjá!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár