WOW skuldaði Isavia rúman millj­arð í júlí

WOW air skuld­aði Isavia 1.033 millj­ón­ir króna í lok júlí síð­asta árs. Í fund­ar­gerðum Isavia kemur fram að WOW fékk að safn­a upp skuldum vegna vissu Isavia um að fé­lagið hefði ör­ugg­an halds­rétt í ein­hverri af þeim vél­um sem WOW hafði á leigu.

Flug­fé­lagið WOW air skuld­aði Isavia rúman millj­arð króna í lok júlí á síð­asta ári og hafði skuldin þá tvö­fald­ast á einum mán­uði. Í fund­ar­gerðum stjórnar Isavia kemur fram að WOW fékk að safn­a upp skuldum vegna vissu Isavia um að fé­lagið hefði ör­ugg­an halds­rétt í ein­hverri af þeim vél­um sem WOW hafði á leigu. Frá þessu er greint í Við­skipta­blað­inu í dag.

Skuld WOW tvöfaldaðist á einum mánuði

Í fund­ar­gerðum stjórnar Isavia, sem Við­skipta­blaðið hefur undir hönd­unum, má finna greiðslu­á­ætlun vegna van­skila WOW sem lá fyrir í lok sept­em­ber á síð­asta ári. Í áætl­un­inni kemur fram að skuldir flug­fé­lags­ins námu 509 millj­ónum króna í júní árið 2018 og höfðu tvö­fald­ast mán­uði síðar „Af því má ráð að staða WOW hafi verið orðin nokkuð þung áður en skulda­bréfa­út­boð félags­ins hófst,“ segir í umfjöllun Við­skipta­blaðs­ins. Skulda­bréfa­út­boði WOW air lauk þann 18. sept­em­ber á síð­asta ári og safn­aði flug­fé­lagið 60 millj­ónum evra í útboð­inu.

Í fund­ar­gerðum stjórnar Isavia kemur jafn­framt fram að mán­uði áður en greint er frá skulda­bréfa­út­boði WOW air var tveggja millj­arða króna heim­ild fyrir „rekst­ar­lána­lína og/ eða yfir­drátt­ar­lán“ sam­þykkt á stjórn­ar­fundi Isavia. Ekki er til­greint um til­efni lána­lín­unn­ar.

Töldu ákvæði loftferðalaga tryggja skuld WOW

Greiðslu­á­ætl­unin kvað á um að fyrsta greiðslan yrði fram­kvæmd þann 1. nóv­em­ber 2018 og sú síð­asta ári síðar. Fyrstu sjö mán­uð­ina skyldi WOW greiða 30 millj­ónir mán­að­ar­lega, auk vaxta, en frá og með júní 2019 myndi mán­að­ar­greiðslan nema 145 millj­ónum. Árs­vextir félags­ins voru 9 pró­sent. Jafn­framt er kveðið á um í áætl­un­inni að ávallt sé hið minnsta ein flug­vél Wow air stað­sett á Kefla­vík­ur­flug­velli eða á leið til vall­ar­ins og komin með stað­festan komu­tíma.

Í fund­ar­gerð­unum kemur jafn­framt fram að stjórn Isavia hafi talið að ákvæði loft­ferða­laga tryggja skuld Wow við félagið meðal ann­ars á grund­velli hér­aðs­dóms frá 2014. „Ljóst er að Isavia hefur ríka heim­ild til að stöðva loft­far og með því tryggja greiðslu gjalda sem fallið hafa til hjá flug­rek­and­anum. Þá getur félagið bundið frestun ýmsum frek­ari skil­yrðum sem auð­veldar félag­inu beit­ingu slíkra stöðv­un­ar­heim­ilda,“ segir í fund­ar­gerð­inni sem Við­skipta­blaðið hefur undir hönd­unum.

Telur mögulegt að heimfæra fyrirgreiðslu stjórnenda Isavia til WOW undir umboðssvik

[links]Air Lease Corporation hef­ur lagt fram aðfar­ar­beiðni gegn Isavia og krefst þess að flug­vél í eigu ALC sem WOW hafði á leigu verði af­hent taf­ar­laust. Málið verður flutt munn­lega fyr­ir Hér­aðs­dómi Reykja­ness í dag og mun úr­sk­urður dóm­stóls­ins vænt­an­lega liggja fyr­ir síð­deg­is.

Í umfjöllun Við­skipta­blaðs­ins er haft eftir Oddi Ást­ráðs­syni, lög­manni leigu­sala WOW, að hann telji mögu­legt að heim­færa fyr­ir­greiðslu stjórn­enda Isavia til WOW undir umboðs­svik. Isavia hafi farið langt út fyrir umboð sitt með end­ur­greiðslu­sam­komu­lagi sínu við WOW. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár