Krefjast upplýsinga um greiðslur inn á reikning Báru

Lögmaður fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins hefur farið fram á að fá upp­lýs­ingar frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum um greiðslur inn á reikn­ing Báru Hall­dórs­dóttur á tíma­bil­inu 15. nóv­em­ber til 15. des­em­ber 2018.

Lögmaður fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins, sem leit­uðu til Per­sónu­verndar vegna Klaust­urs­máls­ins, hefur lagt fram kröfu um að fá upp­lýs­ingar frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum um greiðslur inn á reikn­ing Báru Hall­dórs­dóttur á mán­að­ar­tíma­bil­inu 15. nóv­em­ber til 15. des­em­ber. Auk þess er farið fram á frek­ari vökt­un­ar­efni úr örygg­is­mynda­vélum og upp­lýs­ingum frá fjar­skipta­fyr­ir­tækjum um sím­töl og smá­skila­boð til og frá Báru. Frá þessu er greint á RÚV.

Fara einnig fram á efni úr öryggismyndavélum og upplýsingum frá fjarskiptafyrirtækjum

[links]Þing­menn­irnir fjórir eru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, Gunnar Bragi Sveins­son, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir og Berg­þór Óla­son. Bára Hall­dórs­dótt­ur tók upp sam­ræður þing­mann­anna á Klaust­ur­barnum þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Per­sónu­vernd hefur haft erindi þing­manna til umfjöll­unar síðan í des­em­ber. Þá sendi lög­maður fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins stofn­un­inni bréf þar sem þess var kraf­ist að rann­sakað yrði hver hefði staðið að upp­tök­unni á Klaustri. Málið hefur hins vegar verið í bið á meðan þing­menn Mið­flokks­ins fóru með málið fyrir Hér­aðs­dóm og síðar Lands­rétt þar sem kröfu þeirra var síðan hafnað.

Helga Þór­is­dóttir, for­stjóri Per­sónu­verndar, stað­festi í sam­tali við frétta­stofu RÚV að lög­maður fjór­menn­inga hafi nú lagt fram kröfu til Per­sónu­verndar um aukna gagna­öflun í mál­inu. Krafan snýst um frekara vökt­un­ar­efni úr örygg­is­mynda­vélum Klaust­urs og Kvosar­innar Downtown Hotels rétt fyrir og eftir að Bára sat þar sem sem og upp­lýs­ingum frá fjar­skipta­fyr­ir­tækjum um smá­skila­boð og sím­töl til og frá Báru á tveggja daga tíma­bili. Enn fremur er þess kraf­ist að fá upp­lýs­ingar frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum um greiðslur inn á reikn­ing Báru á tíma­bil­inu 15. nóv­em­ber til 15. des­em­ber.[adspot]

Áhugavert að bera saman greiðslur þingmannanna við Báru

Bára segir í sam­tali við Vísir um málið að hún hafi ekki nokkrar áhyggjur. „Þeir geta haldið fund, komið og sýnt sínar greiðslur og ég mínar. Það verður mjög áhuga­verður sam­an­burður,“ segir Bára. Hún segir jafn­framt að hún telji að erindi þing­mann­anna teng­ist mögu­lega und­ir­bún­ingi þeirra á einka­máli sem þeir ætli að höfða. Bára seg­ist þó löngu hætt að skilja hvernig þing­menn­irnir hugsi.

Krafan verður afgreidd á stjórn­ar­fundi Per­sónu­verndar á mánu­dag­inn næsta og má gera ráð fyrir nið­ur­staðan verði birt á þriðju­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár