Kröfu Miðflokksmanna í Klaustursmáli hafnað

Bára Hall­dórs­dóttir hafði betur í Lands­rétti eins og í hún hafði í hér­aði, þegar krafa um gagna­öfl­un­ar­vitna­leiðslur var umfjöll­unar.

Bára Halldórsdóttir
Bára Hall­dórs­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Lands­réttur stað­festi í dag úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli þing­manna Mið­flokks­ins gegn Báru Hall­dórs­dóttur, en Stundin greindi fyrst frá mál­inu.

Kröfu þing­manna Mið­flokks­ins um gagna­öfl­un­ar­vitna­leiðslur fyrir dómi vegna hugs­an­legar mál­sókn á hendur Báru, fyrir að hljóð­rita sam­töl þeirra á Klaust­ur­bar, var hafnað í hér­aði 19. des­em­ber og hefur sú nið­ur­staða nú verið stað­fest í Lands­rétti.

Þing­menn­irnir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir höf­uðu málið, en eins og kunn­ugt er tók Bára upp sam­tal þeirra á Klaustur bar þar sem þeir úthúðu sam­starfs­fólki sínu í stjórn­málum og töl­uðu meðal ann­ars með niðr­andi hætti um konur þegar þeir voru ölv­aðir.

Í við­tali við mbl.is segir Ragnar Aðal­steins­son hrl., lög­maður Báru, að úrskurð­ur­inn hafi verið stað­festur og að það byggi að sumu leyti á sömu for­send­um og fyrri nið­ur­staða, það er að laga­skil­yrði hafi ekki verið upp­fyllt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár