Kostnaður vegna verkfalla óverulegur

Greiðslur úr vinnu­deilu­sjóðum Eflingar og VR munu lík­lega kosta félögin sam­an­lagt tutt­ugu til þrjá­tíu millj­ónir. Flestar umsóknir í sjóð­ina hafa verið sam­þykktar.

Reikna má með að heild­ar­greiðslur VR og Eflingar úr vinnu­deilu­sjóðum vegna verk­fall­anna í mars síð­ast­liðnum geti numið á bil­inu tutt­ugu til þrjá­tíu millj­ónir sam­an­lagt. VR hefur nú þegar greitt út 8,7 millj­ónir króna úr vinnu­deilu­sjóði og Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, segir í sam­tali við Kjarnann að reiknað sé með að Efling þurfi að greiða á bil­inu tíu til tutt­ugu millj­ónir. End­an­legar tölur liggja þó ekki fyrir hjá félög­unum þar sem frestur til að sækja um greiðslur er ekki lið­inn.

Flestar umsóknir samþykktar

Samkvæmt svari Odds Gunnars Jóns­sonar, for­stöðu­manns fjár­mála- og rekstr­ar­sviðs VR, við fyr­ir­spurn Kjarnans er opið fyrir umsóknir í vinnu­deilu­sjóð VR til fimmt­ánda maí næst­kom­andi og því liggi ekki fyrir hversu mikið félagið þurfi að greiða út. Í apríl sé hins vegar búið að greiða út 8,7 millj­ónir króna og þar af hafi 5,5 millj­ónir verið greiddar til félags­manna en 3,2 millj­ónir hafi farið til rík­is­sjóðs sem stað­greiðsla skatta.

Viðar segir að Efling þurfi lík­lega að greiða tíu til tutt­ugu millj­ónir úr verk­falls­sjóði en það liggi þó ekki end­an­lega fyrir. Hann segir að lang­flestar umsóknir um greiðslur úr verk­falls­sjóði félags­ins hafi verið sam­þykktar og að ekk­ert hafi komið þar á óvart. Greiðsl­urnar segir hann ekki vera mikið högg fyrir félagið, verk­falls­sjóð­ur­inn sé vel stæður og að áætl­ana­gerð félags­ins hafi náð yfir að farið yrði í fleiri verk­falls­að­gerðir. Hins vegar sé það alltaf svo að ákveðin óvissa ríki þegar farið sé í verk­falls­að­gerðir.

Árs­reikn­ingur Eflingar fyrir árið 2018 liggur ekki fyrir en í lok árs 2017 voru inni­stæður hans rúm­lega 2,6 millj­arðar króna. Í árs­reikn­ingi VR fyrir 2018 sem birtur er í árs­skýrslu félags­ins kemur fram að í vinnu­deilu­sjóði VR voru í lok árs­ins 3,8 millj­arðar. Það er því ljóst að greiðsl­urnar eru óveru­legar og ættu ekki að hafa áhrif á stöðu sjóð­anna.

Mismunandi aðferðir við kynningar

Munur er á því hvernig félögin tvö aug­lýstu greiðslur úr vinnu­deilu­sjóðum sínum. Samkvæmt Viðari var til­högun greiðslna úr vinnu­deilu­sjóði Eflingar kynnt með­fram atkvæða­greiðslum um verk­föll og var meðal ann­ars reynt að nálg­ast þá starfs­menn sem verk­föllin náðu til í gegnum trún­að­ar­menn þeirra vinnu­staða sem áttu í hlut.

VR sendi hins vegar tölvu­pósta á þá félags­menn fyr­ir­tækj­anna sem höfðu skráð net­fang hjá félag­inu. Áður en það var gert voru félags­menn hvattir til að upp­færa eða skrá net­föng sín á sér­stakri verk­falls­síðu félags­ins. Þá var einnig aug­lýst á sam­fé­lags­miðlum í aðdrag­anda verk­falla og á meðan á þeim stóð.

Kjara­samn­ingar félag­anna við Samtök atvinnu­lífs­ins voru sam­þykktir með ríf­lega 80 pró­sentum greiddra atkvæða. Í atkvæða­greiðslu Eflingar var kjör­sókn tíu pró­sent en tæp­lega 21 pró­sent hjá VR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár