Efling vísar kjaradeilu við Reykjavíkurborg til ríkissáttasemjara

Efling hefur vísað kjara­deilu félags­ins við Reykja­vík­ur­borg til rík­is­sátta­semj­ara. „Okkur þykir miður að hafa ekki skynjað raun­veru­legan samn­ings­vilja frá borg­inni í þessum við­ræðum,“ segir for­maður Eflingar.

Efling hefur vísað kjara­deilu félags­ins við Reykja­vík­ur­borg til rík­is­sátta­semj­ara. Formaður Eflingar sendi rík­is­sátta­semj­ara skrif­lega til­kynn­ingu þess efnis síð­degis í gær, 16. sept­em­ber. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu.

Efling lítur svo á að við­ræður við Reykja­vík­ur­borg hafi reynst árang­urs­lausar en þær hafa staðið síðan í febr­úar á þessu ári. Kjara­samn­ing­ur­inn sem í hlut á rann út þann 31. mars síð­ast­lið­inn.

Eitt helsta ágrein­ings­málið í við­ræð­unum felur í sér kröfu um stytt­ingu vinnu­vik­unnar, sam­kvæmt Eflingu. Reykja­vík­ur­borg hefur lýst því yfir að til­rauna­verk­efni á þessu sviði hafi skilað jákvæðum árangri. Engu að síður hefur ekki náðst við­un­andi árangur í sam­tali þar um milli deilu­að­ila. Þá hefur Eflingu ekki tek­ist að koma að ýmsum öðrum þáttum í kröfu­gerð sinni.

Þykir miður að skynja ekki raunverulegan samningsvilja frá borginni

„Við erum með öfl­uga, fjöl­menna og sam­henta samn­inga­nefnd skip­aða fólki með mikla starfs­reynslu hjá borg­inni. Hún var ein­róma sam­mála því að vísa við­ræðum, af þeirri ein­földu ástæðu að kröfu­gerðin okkar sem skrifuð var með almennum félags­mönnum fæst í raun ekki rædd,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar við til­efnið.

„Okkur þykir miður að hafa ekki skynjað raun­veru­legan samn­ings­vilja frá borg­inni í þessum við­ræðum. Með því að vísa von­umst við til að breyta því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár