Vilja láta reyna á ábyrgðartryggingar stjórnenda WOW air

Skulda­bréfa­eig­endur WOW air vilja láta reyna á ábyrgð­ar­trygg­ingar stjórn­enda WOW air á grund­velli þess að þeir hafi ekki fengið full­nægj­andi upp­lýs­ingar í skulda­bréfa­út­boði flug­fé­lags­ins síð­asta haust, sam­kvæmt heim­ildum Mark­aðs­ins.

Skulda­bréfa­eig­endur vilja láta reyna á ábyrgð­ar­trygg­ingar stjórn­end­anna WOW air á grund­velli þess að þeir hafi ekki fengið full­nægj­andi upp­lýs­ingar um fjár­hags­stöðu félags­ins og fram­kvæmd skulda­bréfa­út­boðs flug­fé­lags­ins síð­asta haust. Talið er að minna en helm­ingur þeirrar fjár­hæðar sem safn­að­ist í skulda­bréfa­út­boð­inu hafi verið nýtt fjár­magn. Yfir­drátt­ar­láni WOW air hjá Arion banka var til að mynda breytt í skulda­bréf að sömu fjár­hæð í útboð­inu en sú skuld­breyt­ing nam nærri tíu pró­sentum af heild­ar­stærð skulda­bréfa­út­gáf­unnar. Frá þessu er greint í Mark­að­inum í dag.

Skuldbreyttu 550 milljóna yfirdráttarláni WOW

Samkvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins hefur full­trúi skulda­bréfa­eig­enda óskað eftir því að skipta­stjórar þrota­bús WOW air veiti þeim upp­lýs­ingar um skil­mála ábyrgð­ar­trygg­inga stjórn­enda flug­fé­lags­ins. Stjórn­end­urnir kunni að hafa bakað sér per­sónu­lega skaða­bóta­skyldu á grund­velli þess að þeir hafi ekki veitt full­nægj­andi upp­lýs­ingar um skulda­bréfa­ú­boðið síð­asta haust. Við þeirri beiðni hafi skipta­stjór­arnir hins vegar ekki enn getað orðið að þar sem erlent trygg­inga­fé­lag, sem WOW air hafði keypt stjórn­enda­trygg­ingar af, hafi lagst gegn því að afhenda þau gögn sem óskað er eftir.

Skipta­stjórar þrota­bús­ins skoða jafn­framt hvort að efni sé til rift­unar á því sam­komu­lagi sem Arion banki og WOW air gerðu með sér í fyrra um að breyta fimm millj­óna dala yfir­drátt­ar­láni í skulda­bréf að sömu fjár­hæð í flug­fé­lag­inu í skulda­bréfa­út­boð­inu. Bankinn lagði félag­inu því ekki til neitt nýtt fjár­magn heldur var um að ræða skuld­breyt­ingu á kröfum. Ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Deloitte hefur verið fengið þrota­bú­inu til aðstoðar til að kanna hvort að rifta eigi umræddu sam­komu­lagi en ekk­ert hefur verið ákveðið í þeim efnum.

Talið er að minna en helmingur hafi í reynd verið nýtt fjármagn

Skuld­breyt­ingin láns­ins frá Arion banka nam tæp­lega tíu pró­sentum af stærð skulda­bréfa­út­gáfu WOW air en talið er að innan við helm­ingur þeirra 50 milljón evra sem söfn­uð­ust í útboð­inu var nýtt fjár­magn en á þeim tíma var lausa­fjár­staða flug­fé­lags­ins afar slæm. Mark­að­ur­inn greinir frá því að margir þeirra fjár­festa sem lögðu félag­inu til nýtt fjár­magn séu afar óánægðir en félögin hefðu lík­leg­ast ekki lagt flug­fé­lag­inu til fjár­magn ef þeim hefði verið kunn­ugt um að stærstur hluti fjár­hæð­ar­innar sem safn­að­ist í útboð­inu hafði verið umbreyt­ing á kröfum í skulda­bréf . Upp­lýs­ingar um slíkt hafi ekki legið fyrir þegar fjár­festa­kynn­ingar voru haldnar eða þegar nið­ur­stöður útboðs­ins voru kunn­gjörðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár