Það helsta hingað til: WOW air fer á hausinn með látum

Kjarninn tók saman helstu frétta­mál íslensks sam­fé­lags á fyrstu mán­uðum árs­ins 2019. Ein stærsta frétt árs­ins hingað til er án efa gjald­þrot WOW air eftir lang­vinnt dauða­stríð sem fór fram fyrir opnum tjöldum.

Hvað?

Eftir mik­inn upp­gang árum saman lenti íslenska lág­far­gjald­ar­flug­fé­lagið WOW air í veru­legum vand­ræðum. Skulda­bréfa­út­boð upp á 50 millj­ónir dala (um sex millj­arða króna á gengi dags­ins í dag) sem félagið fór í í sept­em­ber 2018 dugði ekki til að laga stöð­una.

[links]Í kjöl­farið var reynt að selja WOW air til Icelandair (tvisvar) og Indigo Partners. Þau áform gengu ekki eft­ir. Síð­asta til­raun með Icelandair, sem stóð yfir seint í mars 2019, fór fram á þeim for­sendum að WOW Air væri fyr­ir­tæki á fallandi fæti.

Til að slíkar for­sendur haldi, en þær heim­ila til dæmis að sam­keppn­is­legum áhrifum sam­runa er vikið til hlið­ar, þá þarf að liggja fyrir að eng­inn raun­hæfur mögu­leiki sé á því að aðrir kaup­endur séu til stað­ar.

Íslenska ríkið taldi sig ekki hafa neinar for­sendur til að ganga inn í rekstur WOW air. Og að morgni 28. mars 2019 fór félagið í þrot.

Af hverju?

Ástæður þess voru nokkrar. Mikil og skörp hækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu, áfram­hald­andi styrk­ing krón­unnar og gríð­ar­lega hörð sam­keppni gerði öllum sem kepptu á mark­aðnum erfitt fyrir. En til við­bótar hafði WOW air vaxið mjög hratt á skömmum tíma og átti ekki sjóðs­stöðu til að takast á við þær sveiflur sem félagið lenti í.

[adspot]Áhrifin á WOW air voru mikil. Fyr­ir­tækið tap­aði 2,4 millj­örðum króna á árinu 2017 og um mitt ár 2018 átti fyr­ir­tækið of lítið eigið fé til að takast á við þá stöðu sem var uppi.

Frá haustið 2018, þegar íslenskir fjöl­miðlar birtu gögn um veru­lega dapra fjár­hags­stöðu WOW air, var félagið í líf­róðri. Í raun hafði starf­semi félags­ins dreg­ist saman um helm­ing áður en það hætti loks starf­semi, frá því hún var umfangs­mest, en þá var félagið að flytja til lands­ins 600 til 700 þús­und erlenda ferða­menn á ári. Flug­vél­unum sem það not­aði hafði fækkað úr 24 í 11.

Þetta dugði ekki til og WOW air vant­aði enn mikið fjár­magn til að lifa af. Þrátt fyrir margra mán­aða leit og ótelj­andi fundi með fjár­festum fékkst eng­inn til að leggja WOW air til það fé sem vant­aði upp á. Á end­anum voru það leigusalar WOW air sem kyrr­settu vélar félags­ins sem leiddu til þess að það fór í þrot.

Mikill þrýst­ingur mynd­að­ist á stjórn­völd um að stiga inn í og leggja félag­inu til fé en mat þeirra var að það væri ekki for­svar­an­legt. Sigurður Ingi Jóhanns­son, ráð­herra sam­göngu­mála, sagði í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut 6. apríl síð­ast­lið­inn að það hefði verið rétt ákvörðun að láta WOW air falla.

Það mat hefði byggt á umfangs­mik­illi ráð­gjöf, meðal ann­ars erlendis frá. „Ég held að það hafi verið rétt, ekki síst í ljósi þess að tvö fyr­ir­tæki á mark­aði, Icelandair í tvígang og Indigo Partners, fóru í nákvæm­lega sömu skoðun um hvort þeir ættu að fara inn í þetta. En mátu að það væri ekki skyn­sam­legt og of mikil áhætta fólgin í því fyrir þau fyr­ir­tæki.“

Skyn­sam­legra hefði verið fyrir ríkið, ef það vildi fara í flug­rekstur, að stofna sitt eigið flug­fé­lag frá grunni en að taka yfir WOW air.

Hver var niðurstaðan?

Þótt WOW air hafi farið í þrot er síð­asti kafl­inn í sögu þessa flug­fé­lags ekki enn að fullu skrif­aður. Skúli Mogensen, sem stofn­aði, stýrði og átti WOW air, hefur ásamt öðrum fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endum farið víða að und­an­förnu með við­skipta­á­ætlun sem felur í sér end­ur­reisn WOW air. Eina sem vantar er umtals­vert af ann­arra manna pen­ingum.

Einn slíkur fjár­festa­fundur fór fram 8. apríl. Á meðal þeirra sem sátu hann voru, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans Pálmi Har­alds­son, fyrr­ver­andi eig­andi Iceland Express Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fjár­festir­inn Guðni Eiríks­son, Bogi Guð­munds­son, stjórn­ar­for­maður Bustra­vel Iceland, full­trúi úr eig­enda­hópi Kea­hót­ela og ýmsir aðrir tengdir íslenskri ferða­þjón­ustu. Alls voru vel á annan tug aðila á fund­inum þegar teymið sem var á vegum Skúla og Arctica Finance, ráð­gjafa hans, var með talið.

[adspot]Hug­myndin er að end­ur­reisa WOW air með því að kaupa ýmis verð­mæti úr þrota­búi WOW air, meðal ann­ars vöru­merkið og bók­un­ar­kerf­ið. Svo er stefnt að því að taka þátt í leigu­verk­efnum í tólf vikur fyrir stórt evr­ópskt flug­fé­lag en frá júnílokum 2019 á hið end­ur­reista félag að fljúga til 13 áfanga­staða í Evr­ópu og Banda­ríkj­unum.

Upp­runa­lega á að gera þetta með því að nota fimm Air­bus-­vélar en strax á næsta ári á þeim að fjölga í sjö og svo í tíu vorið 2021. Sam­kvæmt áætlun á hið nýja WOW air að geta flutt tæp­lega 600 þús­und far­þega á síð­ari helm­ing þessa árs, um 1,5 millj­ónir á næsta ári og rúm­lega tvær millj­ónir árið 2021. Til sam­an­burðar flutti WOW air 3,5 millj­ónir far­þegar í fyrra.

Til þess að láta þessa hug­mynd ganga upp þá hafa Skúli og teymið hans, ásamt full­trúum frá Arctica Finance, verið að funda með fjöl­mörgum fjár­festum síð­ustu vik­urn­ar. Þeim vantar nefni­lega 40 millj­ónir dali, um 4,8 millj­arða króna, til að láta dæmið ganga upp. Ef ein­hver er til­bú­inn að leggja þeim til það fé eru Skúli og lyk­il­stjórn­end­urnir til­búnir að láta við­kom­andi eftir 49 pró­sent í end­ur­reistu flug­fé­lagi á móti 51 pró­sent hlut Skúla og hóps­ins í kringum hann. Sá hópur skuld­bindur sig líka til að taka á sig 30 pró­sent launa­lækkun frá því sem áður var. Vænt­an­legir fjár­festar fá einnig svo­kall­aðan „fyrstur inn, fyrstur út“ fyr­ir­vara, sem þýðir að þeir fá fjár­fest­ingu sína end­ur­greidda að fullu áður en að hluta­fénu verður skipt upp milli þeirra og WOW-hóps­ins.

Enn sem komið er hefur ekki hlaupið á snærið hjá Skúla og félögum og lík­urnar á því að WOW air verði end­ur­reist minnka með hverjum deg­inum sem líður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár