Fara fram á að Sveinn Andri verði settur af sem skiptastjóri WOW air

Arion banki, einn stærsti kröfu­haf­inn í þrota­búi WOW air, hefur farið fram á að Sveinn Andri Sveins­son hæsta­rétt­ar­lög­maður og nýskip­aður skipta­stjóri þrota­bús WOW air verði settur af vegna van­hæfis.

Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður
Sveinn Andri Sveins­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður Mynd: Flickr

Arion banki hefur óskað eftir því að Sveinn Andri Sveins­son hæsta­rétt­ar­lög­maður verði settur af sem skipta­stjóri þrota­bús WOW air vegna van­hæfis. Flug­fé­lagið var tekið til gjald­þrota­skipta í síð­ustu viku og er Arion banki einn stærsti kröfu­haf­inn í búinu. Haraldur Guðni Eiðsson, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Arion banka, segir þetta tengj­ast ágrein­ingi bank­ans vegna þrotabú tölvu­fyr­ir­tæk­is­ins Data Cell. Sveinn Andri er einnig skipta­stjóri í því búi og Arion banki stærsti kröfu­haf­inn. Greint er frá þessu í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Umdeild skipun

[links]Í síð­ustu viku var greint frá því að hæsta­rétt­ar­lög­menn­irnir Þor­steinn Ein­ars­son og Sveinn Andri Sveins­son voru skip­aðir skipta­stjórar þrota­bús WOW air. Skipunin hefur verið gagn­rýnd en stjórnir Lög­manna­fé­lags Íslands og Félags kvenna í lög­mennsku hafa meðal ann­ars óskað sér­stak­lega eftir upp­lýs­ingum um hvaða verk­lags­reglur gilda í slíkum til­fellum.

Lög­menn­irn­ir Kristrún Elsa Harð­ar­dótt­ir og Saga Ýrr Jóns­dótt­ir sögðu í Morg­un­út­varp­inu í síð­ustu viku að nauð­syn­legt væri að gerðar séu breyt­ing­ar á ógagn­sæju ferli við skip­un skipta­stjóra í þrota­bú­um. Þær sögðu að svo virð­ist sem konum sé ekki treyst fyrir þessum stóru búum. Þá sögðu þær í sam­tali við mbl.is að gagn­rýni á skip­un­ina snú­ist frek­ar að því að verið sé að skipa Svein Andra skipta­stjóra þar sem hann sé nú þegar skipta­stjóri yfir stóru búi, EK 1923. Þær veltu því fyrir sér hvort heppi­legt væri að lög­maður sé skipta­stjóri yfir tveimur stórum þrota­búum sam­tímis líkt og raunin er í til­felli Sveins Andra.

Auk þess bentu þær á að ágrein­ings­mál væri til með­ferðar í Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur þar sem fjór­ir kröfu­haf­ar hafa lagt fram kvört­un gegn Sveini Andra þar sem þau telja að hann hafi ekki upp­lýst kröfu­hafa um mik­inn áfall­inn kostnað, meðal ann­ars vegna máls­höfð­ana gegn fyrr­ver­andi eig­anda fé­lags­ins og fé­laga í hans eigu.

Þórður Már Jónsson lög­maður skrif­aði Facebook-færslu þar sem hann gagn­rýndi skip­un­ina og sagði hann Svein Andra fá fleiri þrotabú til skipt­anna en aðrir. Símon Sig­valda­son dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, sem skip­aði skipta­stjór­ana yfir þrotabú WOW air, hefur hins vegar vísað því alfarið á bug að hann hygli suma lög­menn umfram aðra við skipun skipta­stjóra og hafn­aði því jafn­framt að hann úti­loki konur frá slita­búum.

Þarf mikið til að skiptastjóri sé settur af

Haraldur Guðni segir í sam­tali við Mannlíf að málið sé í far­vegi og verði því ekki rekið frekar í fjöl­miðlum. Arnar Þór Stef­áns­son, lög­maður hjá LEX lög­manns­stofu, segir hins vegar að mikið þurfi til þess að skipta­stjóri þrota­bús verði settur af eftir að hafa verið skip­aður. Í sam­tali við Mannlíf segir hann að und­an­far­inn sé yfir­leitt á þá leið að sett hafi verið fram aðfinnsla við Hér­aðs­dóm á störfum við­kom­andi og að Hér­aðs­dómur hafi fall­ist á rétt­mæti aðfinnsl­anna. Hann segir að ef Hér­aðs­dómur telur að þessar aðfinnslur séu nægi­lega miklar þá geti dóm­ari sett við­kom­andi af.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár