Sveinn Andri og Þorsteinn skipaðir skiptastjórar yfir búi WOW air

Hæsta­rétt­ar­lög­menn­irnir Sveinn Andri Sveins­son og Þor­steinn Ein­ars­son hafa verið skip­aðir skipta­stjórar yfir þrota­búi WOW air. Skipta­stjór­arnir tveir eru nú á leið­inni á fund með stjórn­endum WOW á skrif­stofu félags­ins.

Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður
Sveinn Andri Sveins­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður Mynd: Flickr

Flug­fé­lagið Wow air var úrskurðað gjald­þrota í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur eftir hádegi í dag. Hæsta­rétt­ar­lög­menn­irnir Sveinn Andri Sveins­son og Þor­steinn Ein­ars­son hafa verið skip­aðir skipta­stjórar yfir þrota­búi WOW air. Sveinn Andri stað­festi þetta í sam­tali við Kjarnann.

Tveir skipta­stjórar voru skip­aður yfir búinu vegna stærðar félags­ins. Skipta­stjór­arnir tveir eru nú á leið­inni á fund með stjórn­endum WOW air á skrif­stofu flug­fé­lags­ins.

Gjaldþrot WOW air

Líkt og greint hefur verið frá til­kynnti WOW air í nótt að flug hefði verið stöðvað þar til samn­ingar við nýjan eig­enda­hóp væru kláraðir. Í morgun var síðan til­kynnt um átta leitið að flug­fé­lagið hefði hætt starf­sem­i. WOW air skil­aði síðan flug­rekstr­ar­leyfi sínu til Sam­göngu­stofu klukkan átta í morgun.

[links]Skúli Mogensen, stofn­andi og for­stjóri WOW air, sagði í við­tali við frétta­stofu RÚV í dag að hann hafi verið njörv­aður niður í það sæti að sætta sig við stað­reyndir máls­ins í morgun. Hann sagð­ist jafn­framt trúa því ennþá að ef félagið hefði fengið aðeins meiri tíma þá hefði verið hægt að klára end­ur­fjár­mögnun.[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið undanfarið ár