Bandarískur fjárfestingarsjóður kaupir 11,5 prósent í Icelandair á 5,6 milljarða

Fjár­fest­inga­sjóður frá Boston hefur keypt 11,5 pró­sent hlut í Icelandair Group. Um er að ræða útgáfu á nýju hlutafé.

Banda­ríski fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn PAR Capital Mana­gement, sem er með heim­il­is­festi í Boston, hefur keypt 625 millj­ónir nýrra hluta í Icelandair Group á 5,6 millj­arða króna.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá félag­inu til Kaup­hallar Íslands.

Samþykkt var á hlut­hafa­fundi Icelandair 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­ins, dag­inn eftir að félagið ákvað að hætta við að kaupa WOW air í fyrra skiptið, að auka hlutafé um 11,5 pró­sent. Nú hefur PAR Capital Mana­gement ákveðið að kaupa það allt.

Kaup­verðið er 9,03 kr. á hlut og heild­ar­kaup­verð því 5.643.750.000 krónur. Í til­kynn­ing­unni segir að kaup­verðið sam­svari með­al­dagsloka­gengi síð­ustu þriggja mán­aða. „Sam­komu­lagið er bundið fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar og því að hlut­hafar afsali sér for­gangs­rétti að hinum nýju hlutum. Icelandair Group mun boða til hlut­hafa­fundar sem hald­inn verður 24. apríl nk.“

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, segir að PAR Capital Mana­gement sé góð við­bót við sterkan hlut­hafa­hóp. Það sé mat félags­ins að aðkoma PAR Capital Mana­gement verði verð­mæt. „Það er enn­fremur ánægju­legt að svo stór og öfl­ugur fjár­festir deili trú okkar á fram­tíð­ar­horfur félags­ins.”

PAR Capital Mana­gement er fjár­fest­ing­ar­sjóður stað­settur í Boston sem hefur 4 millj­arða banda­ríkja­dala í stýr­ingu. Sjóð­ur­inn var stofn­aður árið 1990 og leggur áherslu á lang­tíma­fjár­fest­ingar í ferða­þjón­ustu og staf­rænum miðlum.

Verður næst stærsti eigandi Icelandair

Túristi.is greinir frá því í morgun að PAR Capital Mana­gement eigi í mun fleiri flug­fé­lögum en bara Icelandair. Á meðal þeirra fyr­ir­tækja sem sjóð­ur­inn hefur fjár­fest í eru United Airlines, Delta, Alaska Air, Southwest Airlines, Alleg­i­ant og JetBlue.

PAR Capital Mana­gement verður næst stærsti eig­andi Icelandair Group á eftir Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna, sem mun eiga um 13,3 pró­sent í Icelandair að teknu til­liti til hins nýja hluta­fjár sem gefið verður út vegna kaupa PAR Capital Mana­gement. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru sam­an­lagt áfram sem áður langstærsti eig­andi Icelandair Group. Saman eiga þeir um helm­ing í félag­inu.

Mark­aðsvirði Icelandair Group var 44,3 millj­arðar króna við lok við­skipta í gær. Verð­mið­inn á Icelandair Group fór yfir 180 millj­arða króna þegar best lét í apríl 2016, en virði félags­ins hefur dreg­ist veru­lega saman á síð­ustu þremur árum sam­hliða versn­andi rekstr­ar­að­stæðum í flug­heim­inum.

Þungur rekstur

Rekst­ur Icelanda­ir Group ­gekk nokkuð erf­ið­lega á síð­asta ári og nam tap félags­ins 55,6 millj­ónum Banda­ríkja­dala, jafn­virði um 6,7 millj­arða króna. Þá dróst EBIT­DA ­fé­lags­ins veru­lega saman á milli ára og var 76,5 millj­ónir dala borið saman við 170 millj­ónir dala árið 2017.

Á þessu ári hefur félagið staðið frammi fyrir ýmsum áskor­unum. Í síð­asta mán­uði ákvað það að taka Boeing 737 MAX 8 flug­vélar sínar úr rekstri um óákveð­inn tíma. Félagið er með þrjár slíkar vélar í rekstri eftir að tvær slíkar vélar höfðu hrapað með skömmu milli­bili.

Í byrjun viku var greint frá því að Icelandair hefði gengið frá leigu á tveimur Boeing 767 breið­þotum út sept­em­ber til að tryggja að flu­á­ætlun félags­ins rask­ist sem minnst á meðan að MAX vél­arar eru kyrr­settar. Þá vinnur Icelandair að því að fá þriðju vél­ina leigða, meðal ann­ars til að bregð­ast við gjald­þroti WOW air í síð­ustu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár