Undirbúa viðbrögð eftir fall WOW air

Bæj­ar­yf­ir­völd í Suð­ur­nesjabæ og Reykja­nesbæ harma að WOW air hafi hætt starf­semi. Bæjarráð Reykja­nes­bæjar segir ljóst að áfallið muni hafa mikil sam­fé­lags­leg áhrif til skamms tíma. Suð­ur­nesja­bær fylgist grannt með gangi mála og und­ir­býr við­brögð.

Bæj­ar­yf­ir­völd í Suð­ur­nesjabæ og Reykja­nesbæ harma þá nið­ur­stöðu að WOW air hafi hætt starf­semi. Í frétta­til­kynn­ingum frá bæj­ar­yf­ir­völd­unum segir að ljóst sé að þetta áfall muni hafa sam­fé­lags­leg áhrif þar sem mik­ill fjöldi íbúa sveit­ar­fé­lag­anna tveggja störf­uðu hjá WOW air eða í fyr­ir­tækjum sem veittu flug­fé­lag­inu beina eða óbeina þjón­ustu. Stjórn­enda­hópur Suð­ur­nesja­bæjar hefur fundað um málið og und­ir­býr við­brögð og aðgerðir vegna máls­ins.

Fyrirtæki sem veittu WOW air þjónustu þurfa að draga saman starfsemi sína

Í frétta­til­kynn­ingu frá Suð­ur­nesjabæ, Sand­gerði og Garður mynda sveit­ar­fé­lagið Suð­ur­nesjabæ, segir að afleið­ingar gjald­þrots WOW air séu að miklu leyti óljósar ennþá en hins vegar sé ljóst að áhrifa þessa muni gæta víða í þjóð­fé­lag­inu og hafa áhrif á efna­hags­mál þjóð­ar­innar.

Þá segir að þótt ekki liggi fyrir hver bein áhrif verða á Suð­ur­nesjabæ og íbúa sveit­ar­fé­lags­ins þá megi reikna með því að þau verði nokkur. Flugstöð Leifs Eiríks­sonar og fjöl­mörg þjón­ustu­fyr­ir­tæki á flug­stöðv­ar­svæð­inu eru stað­sett í Suð­ur­nesjabæ og fjöldi íbúa sveit­ar­fé­lags­ins starfa hjá þeim fyr­ir­tækjum. Þá megi reikna með því að fall WOW air muni hafa áhrif á starf­semi ann­arra ferða­þjón­ustu­fyr­ir­ækja, þó þær upp­lýs­ingar liggi ekki fyrir. Auk þess hafi allt starfs­fólk WOW air misst sín störf og segir í til­kynn­ing­unni að fram hafi komið að ein­stök fyr­ir­tæki sem hafa veittu flug­fé­lag­inu beina og óbeina þjón­ustu þurfi að draga saman starf­semi sína og því muni vænt­an­lega fylgja upp­sagnir starfs­fólks.

Í til­kynn­ing­unni segir jafn­framt að Suð­ur­nesja­bær fylgist náið með fram­vindu mála. Magnús Stef­áns­son, bæj­ar­stjóri Suð­ur­nesja­bæjar ásamt for­ystu­mönnum bæj­ar­stjórnar og bæj­ar­ráðs hafa verið í sam­skiptum við ýmsa aðila sem málum tengj­ast, meðal ann­ars til að meta aðstæður og leggja á ráðin um við­brögð. „Suð­ur­nesja­bær beinir því til allra hlut­að­eig­andi að hugað sé að vel­ferð og hags­munum allra þeirra sem stöðvun starf­semi WOW air hefur áhrif á, hvort sem um er að ræða starfs­fólk og fjöl­skyldur þeirra eða fyr­ir­tæki,“ segir að lokum í til­kynn­ing­unni

Ljóst að þetta áfall muni hafa mikil samfélagsleg áhrif á Reykjanesbæ

Bæjarráð Reykja­nes­bæjar sendi einnig frá sér bókun vegna WOW air í gær. Þar kemur fram að bæj­ar­ráðið harmi að starf­semi WOW air hafi verið stöðvuð. Þá segir að ljóst sé að þetta áfall muni hafa mikil sam­fé­lags­leg áhrif til skamms tíma, ekki síst fyrir Reykja­nesbæ þar sem mikil fjöldi starfs­manna býr. Þá segir að bæj­ar­ráðið leggi áherslu á að hugað sé að vel­ferð og hags­munum allra starfs­manna og fyr­ir­tækja sem þetta mun hafa áhrif á.

Má búast við fleiri uppsögnum

[links]Jónína Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri mannauðs­sviðs WOW air, sagði að 900 til 1.000 manns missa vinn­una hjá WOW air, í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær. Gróflega séu þetta 200 flug­menn, 400 flug­liðar, 50 flug­virkjar og starfs­fólk í Keflavík og höf­uð­stöðv­unum. Í des­em­ber sagði flug­fé­lagið upp 110 fast­ráðnum starfs­mönnum og verk­tökum og laus­ráðnum starfs­mönnum, alls um 350 manns.

Unnur Sverr­is­dóttir. for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV í gær að aldrei hafi jafn­margir misst vinn­una í einu líkt og í gær. Þá er talið að störfum fækki hjá þjón­ustu­að­ilum flug­fé­lags­ins sem og störfum hjá fjölda ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja sem byggt hafi afkomu sína að hluta á far­þegum sem komu með WOW. Sem dæmi má nefna að 59 manns var sagt upp hjá Kynn­is­ferðum í gær.

Vinnu­mála­stofnun vakti athygli á því í gær að þeir sem störf­uðu hjá WOW air ­geti sótt um atvinnu­leys­is­bætur á heima­síðu stofn­un­ar­inn­ar. Stofnun hvetur fólk til að hefja umsókn­ar­ferlið sem fyrst þar sem atvinnu­leys­is­bætur eru greiddar frá þeim deg­i ­sem umsókn berst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár