Starfsmenn WOW air geta sótt um atvinnuleysisbætur

Vinnu­mála­stofnun vekur athygli starfs­manna WOW air á því að þeir geta sótt um atvinnu­leys­is­bætur. Stofn­unin hvetur starfs­menn til að sækja um bæt­urnar sem fyrst þar sem atvinnu­leys­is­bætur eru greiddar frá þeim degi sem umsókn berst.

Vinnumálastofnun vekur athygli á því að þeir sem hafa starfað hjá WOW air geta sótt um atvinnuleysisbætur á heimasíðu stofnunarinnar. Stofnun hvetur fólk til að hefja umsóknarferlið sem fyrst þar sem atvinnuleysisbætur eru greiddar frá þeim degi sem umsókn berst. Þetta kemur fram í orðsendingu Vinnumálastofnunar til starfsmanna WOW air.

Ef WOW air verður tekið til gjaldþrotaskipta þá þarf fólk að hafa samband við stéttarfélag eða lögmann

Í orðsendingunni kemur fram að á morgun, föstudaginn 29. mars, verður opið á þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar í Kringlunni 1, í Reykjavík og Krossmóum 4 í Reykjanesbæ, á milli klukkan 13 og 16 fyrir starfsfólk WOW air. Þar verða frekari upplýsingar veittar og aðstoðað verður við umsókn um atvinnuleysisbætur fyrir þá sem þess óska. Áætlað er að afgreiðsla umsókna fyrir atvinnuleysisbætur taki fjórar til sex vikur eftir að öll gögn hafa borist.

Jafnframt segir í orðsendingunni að ef WOW air verður tekið til gjaldþrotaskipta þá þurfi fólk að hafa samband við stéttarfélag sitt eða lögmann og fá aðstoð við að lýsa kröfu í væntanlegt bú. Ekki sé greitt úr Ábyrgðarsjóði launa fyrr en í fyrsta lagi eftir að kröfu hefur verið lýst og skiptastjóri samþykkt hana.

Ekki búin að fá neina tilkynningu frá WOW air um starfsmenn

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, sagði í samtali við Kjarnann í morgun að stofnuninni væri ekki búið að berast nein formleg tilkynningu frá WOW air um hversu marga starfsmenn sé að ræða. Hún sagði jafnframt að Vinnumálastofnun hefði nú þegar sett af stað viðbragðsáætlun og fylgist grannt með stöðu mála. Auk þess hefði stofnunin þegar aukið mannskap í þjónustuveri og lengt opnunartíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár