Rússíbanareið á markaði eftir fall WOW air - Svigrúm til mótvægisaðgerða fyrir hendi

Eins og við mátti búast komu fram nokkuð mikil við­brögð á mark­aði í dag, vegna falls WOW air. Upp­sagna­hrina er farin í gang í ferða­þjón­ustu. En hvað ger­ist næstu miss­erin? Hverju má búast við?

Fall WOW air hafði mikil áhrif á mark­aði í dag og beitti Seðla­banki Íslands inn­gripum á gjald­eyr­is­mark­aði til að koma í veg fyrir að gengi krón­unnar félli meira gagn­vart helstu við­skipta­myntum. Krónan veikt­ist um 0,73 pró­sent gagn­vart evru, þrátt fyrir inn­grip, og 0,91 pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal. Evran kostar nú tæp­lega 138 krónur og Banda­ríkja­dalur tæp­lega 123 krónur.

Upp­sagn­ar­hrina hefur farið í gang í ferða­þjón­ust­unni. Kynn­is­ferðir hafa sagt upp 59 starfs­mönnum, svo dæmi sé tekið, og segir fram­kvæmda­stjór­inn að fall WOW air sé vega­mik­ill þáttur í þeirri ákvörðun.

Hluta­bréfa­vísi­talan lækk­aði um 1,27 pró­sent, en bréf Kviku banka voru tekin ný til við­skipta að aðal­mark­aði í dag, og hækk­aði gengi bréfa bank­ans um 0,6 pró­sent.

Fyrir utan þá þús­und starfs­menn sem missa vinn­una hjá WOW air - og fyr­ir­sjá­an­lega nokkur hund­ruð til við­bótar sem hafa verið að þjón­usta fyr­ir­tækið og far­þega þess - þá er lík­legt að áhrifin á ferða­þjón­ust­una verði umtals­verð, á næstu miss­erum.

Erfitt er að segja til, en vonir standa til þess að höggið verði ekki of þungt - það er að það bitni ekki of mikið á hag­vexti í land­inu, þó við­búið sé að það verði raunin.

Sviðs­myndir sem unnar voru fyrir stjórn­völd í fyrra gerðu ráð fyrir að fall WOW air, miðað við stöð­una eins og hún var síð­sum­ars, hefði getað valdið því að lands­fram­leiðsla myndi falla nokkuð, um allt að 3 pró­sent. En frá þeim tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar og umfang rekst­urs WOW air hefur skroppið veru­lega saman, um meira en helm­ing, nú þegar kom að enda­stöð.

Því má segja að höggið hafi lin­ast og það sé búið að koma fram ákveðin kólnun í hag­kerf­inu. Minni eft­ir­spurn og meiri hæga­gangur í nýráðn­ingum hafa verið leið­ar­stefið í hag­spám fyrir þetta ár og næsta, en þó er gert ráð fyrir að hag­vöxtur verði áfram á bil­inu 1,5 til 3 pró­sent á þessu ári og til fram­tíðar.

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, gerði stöðu hag­kerf­is­ins að umtals­efni í ræðu á aðal­fundi Seðla­banka Íslands í dag. „Hér er um að ræða getu þjóð­ar­bús­ins og fjár­mála­kerf­is­ins til að takast á við áföll vegna ágætrar ytri stöðu, stórs gjald­eyr­is­forða og til­tölu­lega góðrar eig­in­fjár­stöðu heim­ila og fyr­ir­tækja. Staða bank­anna er einnig sterk eins og ég hef nú farið yfir. Þá er svig­rúm hag­stjórnar til að bregð­ast við tölu­vert og mun meira en víða um heim. Það er afgangur á rík­is­sjóði og skuldir hins opin­bera eru litlar í sögu­legu sam­hengi. Svigrúm til lækk­unar vaxta er hér mikið ef aðstæður kalla á, ólíkt mörgum við­skipta­löndum, þar sem þeir eru tölu­vert fyrir ofan núll hér á landi," sagði Már.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár