Isavia beitti stöðvunarheimild á flugvél WOW air

Ljóst þykir að brott­hvarf WOW air muni hafa áhrif á rekstur Kefla­vík­ur­flug­vallar. Isavia mun á næst­unni fara yfir hver þau áhrif kunni að verða.

Í nótt bár­ust Isavia fregnir af því að flug­vélar WOW air færu ekki frá Banda­ríkj­unum aftur til Íslands. Í kjöl­farið beitti Isavia stöðv­un­ar­heim­ild á grund­velli loft­ferða­laga á flug­vél WOW air, sem stað­sett var á Kefla­vík­ur­flug­velli, til trygg­ingar á ógreiddum not­enda­gjöldum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Isavia.

Í henni segir að Isavia harmi það að WOW air hafi hætt rekstri enda hafi félagið flutt fjöl­marga far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl síð­ast­liðin sjö ár og verið mik­il­vægur hlekkur í vel­gengni Kefla­vík­ur­flug­vallar og upp­bygg­ingu ferða­þjón­ustu á Íslandi.

[links]Það sé ljóst að brott­hvarf WOW air muni hafa áhrif á rekstur Kefla­vík­ur­flug­vallar. Isavia muni á næst­unni fara yfir hver þau áhrif kunni að verða.

Starfs­fólk Isavia á Kefla­vík­ur­flug­velli mun aðstoða far­þega WOW air eftir bestu getu í dag og næstu daga, segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár