Alþingi greiðir einungis fyrir auglýsingar í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu

Alþingi hefur ekki aug­lýst á sam­fé­lags­miðlum hingað til og stefnir ekki á að gera það í náinni fram­tíð. Reglan er að Alþingi aug­lýsir aðeins í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alþingi hefur ekki aug­lýst á sam­fé­lags­miðlum, eins og Facebook, Instagram, YouTube og Twitter og hefur ekki áform um að gera það. Aug­lýs­inga­kostn­aður Alþingis er fyrst fremst aug­lýs­ingar um laus störf á skrif­stofu Alþingis og reglan hefur verið sú að birta þær aug­lýs­ingar í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu. Þetta kemur fram í svari Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis, við fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata.

Engin áform um að auglýsa á samfélagsmiðlum

Björn Leví spurði, í fyr­ir­spurn sinni, hvort Alþingi hafi haft ein­hver útgjöld af aug­lýs­ingum eða kost­aðrar dreif­ingar á sam­fé­lags­miðlum frá árinu 2015. Þing­for­seta svar­aði að Alþingi aug­lýsti ekki á sam­fé­lags­miðlum og hefur þingið því engan aug­lýs­inga­kostnað sem teng­ist þeim miðlum. Hann sagði þó að á vef Alþingis og Twitter-síðu þess séu hins vegar reglu­lega til­kynn­ingar um starf­semi Alþingis og við­burði á vegum þess. Svipað gildi um Hús Jóns Sig­urðs­sonar í Kaup­manna­höfn, en þar er efni miðlað á vef Jónshúss, Facebook, Instagram og Flickr.

Stein­grímur sagði að aug­lýs­inga­kostn­aður Alþingis sé fyrst og fremst aug­lýs­ingar um laus störf á skrif­stofu Alþingis og reglan verið sú að birta slíkar aug­lýs­ingar í þeim tveimur dag­blöðum sem gefin eru út, Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu. Þá birt­ist einnig sömu aug­lýs­ingar á vefnum starfa­torg.is, en þar er að finna upp­lýs­ingar um laus störf hjá rík­inu. Birting aug­lýs­inga á starfa­torgi er Alþingi að kostn­að­ar­lausu.

Auk þess sé aug­lýst eftir umsóknum um dvöl í fræði­manns­í­búðum í Jónshúsi og styrki til að rita meist­ara­prófs­rit­gerð í dag­blöðum og á vef Alþingis. Þá hafi ein­staka sinnum verið birtar aug­lýs­ingar í Rík­is­út­varp­inu eins og í tengslum við opið hús á Alþingi 2018.

Björn Leví spurði þá einnig hvaða stefnu for­seti Alþingis hefur hvað varðar aug­lýs­inga­kaup á sam­fé­lags­miðlum en sam­kvæmt Stein­grími eru engin áform um að birta aug­lýs­ingar frá Alþingi á sam­fé­lags­miðlum.

Tvö fjöl­miðla­fyr­ir­tæki fá þriðj­ung af aug­lýs­ingafé rík­is­ins

[links]Greint var frá því í Kjarn­anum í nóv­em­ber í fyrra að ráðu­­neyti, rík­­is­­stofn­­anir og fyr­ir­tæki á vegum hins opin­bera hefðu borgað tæpar 190 millj­­ónir króna fyrir birt­ingu aug­lýs­inga fyrstu tíu mán­uði síð­asta árs. Tvö fjöl­miðla­­fyr­ir­tæki, útgáfu­­fé­lag Frétta­­blaðs­ins og Árvakur útgef­andi Morg­un­­blaðs­ins, fengu sam­tals tæp­­lega þriðj­ung fjár­­ins sem hið opin­bera eyddi í aug­lýs­inga­birt­ing­ar.

Kostn­aður hins opin­bera vegna aug­lýs­inga­birt­inga var 188 millj­­ónir fyrstu tíu mán­uði árs­ins 2018, þá var ekki tal­in ­með vinna við gerð og hönnun aug­lýs­inga. Þar af fékk útgáfu­­fé­lag Frétta­­blaðs­ins 37 millj­­ónir króna greitt fyrir aug­lýs­inga­birt­ingar og Árvak­­ur, útgef­andi Morg­un­­blaðs­ins og mbl.is, 21 milljón króna. Sam­an­lagt var það rétt tæp­­lega þriðj­ungur allra aug­lýs­inga­­kaupa ráðu­­neyta, ­rík­­is­­stofn­ana og rík­­is­­fyr­ir­tækja á tíma­bil­inu.

Rík­­is­út­­varpið fékk greiddar rúmar tólf millj­­ónir og Sýn, sem á Stöð 2, ýmsar útvarps­­­stöðvar og vef­inn Vísi, fékk fimm millj­­ónir greiddar fyrir aug­lýs­inga­birt­ingar rík­­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

auglýsingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár