Jónsson & Le’macks og Aton sameinast

Ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Aton og aug­lýs­inga­stofan Jónsson & Le‘macks hafa nú sam­ein­ast undir nafn­inu Aton.JL.

Eigendur Aton.JL. Frá vinstri: Agnar Tr. Lemacks, Ingvar Sverrisson, Viggó Örn Jónsson og Huginn Freyr Þorsteinsson.
Eigendur Aton.JL. Frá vinstri: Agnar Tr. Lemacks, Ingvar Sverr­is­son, Viggó Örn Jónsson og Huginn Freyr Þor­steins­son. Mynd: Aton. JL.

Aug­lýs­inga­stofan Jónsson & Le‘macks og ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Aton hafa nú sam­ein­ast undir nafn­inu Aton.JL. Í frétta­til­kynn­ingu frá nýja félag­inu segir að með sam­run­anum verði til þekk­ing­ar­fyr­ir­tæki af nýrri teg­und, sér­hæft sam­skipta­fé­lag, sem veiti ráð­gjöf á sviði sam­skipta og stefnu­mót­unar. 

Anton. JL verður til húsa að Lauga­vegi 26 en starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins verða með sam­ein­ing­unni 42 tals­ins, 30 í Reykja­vík og 12 í Belgrad í Serbíu. Fram­kvæmda­stjóri Anton. JL verður Ingvar Sverr­is­son sem er jafn­framt eig­andi ásamt Agnari Tr. Lemacks, stjórn­ar­for­manni, Dr. Hugin Frey Þor­steins­syni, ráð­gjafa og Viggó Erni Jónssyni, ráð­gjafa.

Haft er eftir Ingvari í til­kynn­ing­unni að nýja félagið geri þeim kleift að þjón­usta við­skipti vini sína betur og sama tíma mæta þörf sem þeir hafi orðið vör við á mark­aðnum.

„Jónsson & Le‘macks hefur á síð­ustu miss­erum verið að þró­ast úr því að vera hefð­bundin aug­lýs­inga­stofa í að sinna ráð­gjöf og skipu­lagðri upp­lýs­inga­gjöf. Með því að sam­ein­ast Aton verður til mjög öfl­ugt sam­skipta­fé­lag sem opnar við­skipta­vinum ný tæki­færi,” segir Agnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

auglýsingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár