Prentmiðlar fá mestu auglýsingatekjurnar

Prent­miðlar fá stærstu hlut­deild aug­lýs­inga­tekna af öllum inn­lendum fjöl­miðlum, þrátt fyrir að hlut­deild þeirra hafi lækkað all­nokkuð á síð­ustu fjórum árum.

Dagblöð eru enn verðmætari en vefsíður í augum auglýsingafyrirtækja
Dagblöð eru enn verð­mæt­ari en vef­síður í augum aug­lýs­inga­fyr­ir­tækja Mynd: Pexels

Prent­miðlar fengu mest aug­lýs­ingafé allra fjöl­miðla á Íslandi í fyrra, sam­kvæmt ráð­stöfun fimm stærstu birt­ing­ar­húsa lands­ins. Hlut­deild prent­miðl­anna hefur þó minnkað sam­hliða auknu vægi inn­lendra vef­miðla, en í Evrópu eru vef­miðlar orðnir verð­mæt­ari aug­lýsendum en prent­miðlar. Þetta kemur fram í nýjum tölum Fjöl­miðla­nefndar.

Tölurnar sem um ræðir eru unnar úr ráð­stöfun birt­inga­fjár frá fimm stærstu birt­ing­ar­húsum Íslands: ABS fjöl­miðla­húsi, Birt­ing­ar­hús­inu, MediaCom, H:N Mark­aðs­sam­skiptum, og Ratsjá Media, sem Pipar-TBWA fellur einnig undir. Þetta er í fjórða skipt­ingi sem nefndin birtir sam­an­tekt um skipt­ingu birt­inga­fjár, sem er sú fjár­hæð sem fyr­ir­tæki verja til aug­lýs­inga í fjöl­miðlum.

Samkvæmt sam­an­tekt­inni ráð­stöf­uðu birt­ing­ar­húsin fimm á Íslandi aug­lýs­ingafé fyrir um 5,416 millj­arða króna. Sú upp­hæð er nokkru lægri en sú sem birt­ing­ar­húsin vörðu í aug­lýs­ingar árið 2016, en það ár nam sam­an­lagt birt­ingafé um 5,512 millj­örðum króna.

Prentmiðlar halda velli

Enn er hlut­deild prent­miðla stærst af birt­ingafé allra fjöl­miðla á Íslandi, en þeir ná 28% af öllum keyptum aug­lýs­ingum. Fjöl­miðla­nefnd telur þessa tölu einnig vera van­mat, þar sem aug­lýs­ingar og kynn­ingar séu í mörgum til­fellum keyptar milli­liða­laust af prent­miðl­unum sjálfum. Næst á eftir þeim koma svo sjón­varps­stöðvar með 25,1 % og útvarps­stöðvar með 18,6%. Inn­lendir vef­miðlar eru hins vegar minnsti flokkur inn­lendra fjöl­miðla, en 17,9% allra aug­lýs­inga renna til þeirra.

Ef litið er á þró­un­ina má þó sjá að inn­lendir vef­miðlar hafa aukið hlut­deild sína mest af áður­nefndum flokkum, en árið 2014 fengu þeir aðeins 12,4% af birt­ingafé fyr­ir­tækj­anna fimm. Sömu­leiðis hefur hlut­deild prent­miðla farið minnk­andi, en hún nam 37% árið 2014 og hefur farið stöðugt lækk­andi síðan.

Ef aug­lýs­ingar á vef­miðlum eru skoð­aðar sér­stak­lega sést að hlut­falls­leg skipt­ing milli inn­lendra og erlendra vef­miðla breytt­ist lít­il­lega frá fyrri árum, iðu­lega fá erlendir miðlar rúman fimmt­ung af öllu birt­ingafé vef­miðla.

Annað umhverfi í Evrópu

Í kynn­ingu Fjöl­miðla­nefndar segir einnig að staða aug­lýs­inga­sölu til fjöl­miðla sé nokkuð frá­brugðin hér­lendis en ann­ars staðar í Evrópu. Þar séu vef­miðlar stærsti aug­lýs­inga­selj­and­inn á fjöl­miðla­mark­aðnum, en hlut­deild þeirra jókst fyrst fram yfir prent­miðla árið 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

auglýsingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár