Lokað á truflandi auglýsingar í nýjum vafra Vivaldi

Nýrri upp­færslu er ætlað að koma í veg fyrir að aug­lýs­ingar sem noti tækni á óvið­eig­andi hátt og villa fyrir fólki opn­ist.

Jón Von Tetzchner, stofnandi Vivaldi.
Jón Von Tetzchner, stofn­andi Vivaldi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Per­sónu­vernd er helsta áhersla nýrrar útgáfu Vivaldi vafrans, ásamt því að hægt er að loka á aug­lýs­ingar sem telj­ast „ótil­hlíði­legar og trufl­andi,“ að því er kemur fram í frétta­til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Í til­kynn­ing­unni segir að ný aug­lýs­ingasía loki á trufl­andi aug­lýs­ingar „sem nota tækn­ina á óvið­eig­andi hátt og eru hann­aðar til þess að villa um fyrir fólki. Aðgerðin lokar á aug­lýs­ingar frá síðum sem valda not­endum ónæði, eins og til dæmis spretti­gluggar sem koma í veg fyrir að hægt sé að yfir­gefa síðu.“

[adspot]Aug­lýs­ing­arnar sem lokað er á eru til að mynda aug­lýs­ingar sem spila pirr­andi hljóð til að ná athygli, aug­lýs­ingar sem loka á aðgang að síðum þar til smellt er á hana, eða aug­lýs­ingar sem spretta upp í sífellu, að því er kemur fram í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Enn fremur verður komið í veg fyrir að aug­lýs­ingar taki yfir skjái not­enda eða færi þá yfir á annan stað og reyni þannig að fiska eftir per­sónu­upp­lýs­ingum.

Jón von Tezchner, stofn­andi Vivaldi, segir að aðgerðin sem notuð er til að virkja aðgang vafrans að svoköll­uðum lok­un­ar­lista sem dulkóð­aður er hjá Vivaldi sé skref í þá átt að treysta ekki á þjón­ustur þriðja aðila, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

auglýsingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár