Fjórð­ungi birt­ing­ar­kostn­aðar varið til aug­lýs­inga­kaupa hjá erlendum fyr­ir­tækj­um

Samkvæmt rann­sókn Hag­stof­unnar um kaup íslenskra fyr­ir­tækja á aug­lýs­ingum á net­inu var að með­al­tali fjórð­ungi birt­ing­ar­kostn­aðar varið til aug­lýs­inga­kaupa hjá erlendum fyr­ir­tækjum.

Nýleg rann­sókn Hagstofu Íslands um kaup fyr­ir­tækja á aug­lýs­ingum á net­inu leiddi í ljós að helm­ingur íslenskra fyr­ir­tækja með að lág­marki 10 starfs­menn greiddu fyrir aug­lýs­ingar á net­inu árið 2017.

Að með­al­tali var fjórð­ungi birt­ing­ar­kostn­aðar varið til aug­lýs­inga­kaupa hjá erlendum fyr­ir­tækjum. Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar.

Rann­sóknin var lögð fyrir 959 fyr­ir­tæki með að lág­marki 10 starfs­menn og var svar­hlut­fall 80 pró­sent.

[adspot]

Til skoðunar að skattleggja kaup á erlendum netauglýsingum 

Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra kynnti í síð­ustu viku aðgerðir sem snúa að því að 400 millj­ónum króna verður varið til þess að bæta rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla hér á landi.

Ein aðgerðin snýr að skatt­lagn­ingu vegna kaupa á aug­lýs­ingum. Til stendur að sam­ræma gjald­töku við kaup á aug­lýs­ingum svo íslenskir fjöl­miðlar standi jafn­fætis erlendum net­miðlum.

Til skoð­unar er að skatt­leggja kaup á erlendum netaug­lýs­ingum til þess að jafna stöðu inn­lendra fjöl­miðla og erlendra vef­miðla sem taka til sín ört stækk­andi hluta aug­lýs­inga­mark­aðar. Horft er til nágranna­landa og Evr­ópu­ríkja sem einnig hafa sam­bæri­leg mál til skoð­unar.

Jafn­framt er lagt til að gagn­sæi í opin­berum aug­lýs­inga­kaupum verði aukið. Segir í til­lög­unum að hið opin­bera myndi þá kaupa fjölda aug­lýs­inga í fjöl­miðlum. „Mik­il­vægt er að gagn­sæi sé til staðar í kaupum opin­berra aðila á aug­lýs­ingum. Það er hægt að gera til dæmis með notkun vefs­ins opn­ir­reikn­ingar.is eða með skilum á árlegri skýrslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

auglýsingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár