Fjölmiðlanefnd vill að sum hlaðvörp skrái sig sem fjölmiðla

Fjöl­miðla­nefnd hefur beðið þrjá íslenska hlað­varps­þætti um að skrá sig form­lega sem fjöl­miðla og er að skoða að biðja fleiri um hið sama. Kveikjan að þessum beiðnum nefnd­ar­innar virð­ast vera ábend­ingar um ólög­legar veð­mála­aug­lýs­ingar.

Fjölmiðlanefnd hefur beint því til þriggja íslenska hlaðvarpsþátta að þeir séu fjölmiðlar og beðið þá um að skrá sig sem slíka hjá nefndinni.
Fjöl­miðla­nefnd hefur beint því til þriggja íslenska hlað­varps­þátta að þeir séu fjöl­miðlar og beðið þá um að skrá sig sem slíka hjá nefnd­inni. Mynd: Pexels

Stjórn­endur þriggja íslenskra hlað­varps­þátta hafa að und­an­förnu fengið bréf frá fjöl­miðla­nefnd, stjórn­sýslu­nefnd sem hefur eft­ir­lit með lög­gjöf um fjöl­miðla, þar sem óskað er eftir því að hlað­vörpin skrái sig form­lega sem fjöl­miðla.

Til skoð­unar er að senda slíkar beiðnir á fleiri hlað­varps­stjórn­endur, sam­kvæmt svari fjöl­miðla­nefndar við fyr­ir­spurn Kjarnans, en nefndin hefur að und­an­förnu verið að skoða íslenska hlað­varps­mark­að­inn.

Ekki öll hlaðvörp fjölmiðlar, bara sum

Hlaðvörp eru til­tölu­lega nýtt form miðl­unar og vax­andi þáttur af fjöl­miðla­neyslu margra. Margir hefð­bundnir fjöl­miðlar eru með sínar hlað­varps­rásir og miðla efni þar, eins og Kjarninn hefur gert árum saman. En einnig hafa sjálf­stæðir hlað­varps­þættir um hin ýmsu efni sprottið fram og náð eyrum margra. Það eru slíkir þættir sem fjöl­miðla­nefnd er nú að beina sjónum sínum að.

Ekkert sjálf­stætt hlað­varp er í dag skráð sem fjöl­mið­ill, sam­kvæmt athugun blaða­manns á yfir­liti yfir skráða fjöl­miðla á vef fjöl­miðla­nefndar.

Samkvæmt svörum frá nefnd­inni falla hlað­vörp hins vegar undir lög um fjöl­miðla, „svo lengi sem þau upp­fylla skil­yrði lag­anna um að telj­ast fjöl­miðlar.“

[adspot]

Fjöl­mið­ill er, sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla frá árinu 2011, „hvers konar mið­ill sem með reglu­bundnum hætti miðlar til almenn­ings efni er lýtur rit­stjórn. Til fjöl­miðla telj­ast m.a. dag­blöð og tíma­rit, ásamt fylgi­ritum þeirra, net­miðlar, hljóð- og mynd­miðlar og aðrir sam­bæri­legir miðlar.“

„Það er því ekki þannig að öll hlað­vörp myndu telj­ast fjöl­miðlar í skiln­ingi laga um fjöl­miðla en fjöl­miðla­nefnd metur hvert til­vik fyrir sig. Þegar lögin voru sett var ekki hægt að sjá fyrir þá þróun sem orðið hefur á hlað­varps­mark­aðnum með til­komu nýrrar tækni og miðl­un­ar­leiða. Hlaðvörp voru áður fyrr mun minni í sniðum og meira í lík­ingu við blogg­síður. Á síð­ustu árum hafa hlað­vörp hins vegar notið sífellt meiri vin­sælda og stækkað í takt við það. Mörg þeirra hafa nú fjölda kostenda eða aug­lýs­inga og þús­undir hlust­ana á hvern þátt,“ segir í skrif­legu svari Antons Emils Ingi­mars­sonar, lög­fræð­ings fjöl­miðla­nefndar, við fyr­ir­spurn blaða­manns sem beint var til nefnd­ar­innar.

Ábendingar um ólöglegar auglýsingar virðast kveikjan

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa að minnsta kosti tvö þeirra þriggja hlað­varpa sem fjöl­miðla­nefnd vill að skrái sig sem fjöl­miðla við sama tæki­færi fengið meld­ingu frá nefnd­inni vegna ólög­mætra við­skipta­boða í þátt­unum.

Þar er átt við aug­lýs­ingar frá veð­mála­vef­síð­unni Coolbet, sem hefur aug­lýst tölu­vert mikið í íslenskum hlað­varps­þáttum sem fjalla um fót­bolta og aðrar íþróttir, en hefur ekki leyfi til þess að reka sína starf­semi hér á landi.

Fjöl­miðla­nefnd hefur óskað eftir upp­lýs­ingum og sjón­ar­miðum frá hlað­vörp­unum vegna ætl­aðra brota þeirra gegn fjöl­miðla­lögum.

Fjallað er um veð­mála­aug­lýs­ingar í lögum um fjöl­miðla og það er á grunni ábend­inga um ætluð brot hlað­varpanna gegn þeim laga­á­kvæðum sem fjöl­miðla­nefnd er að hafa sam­band. Síðan eru hlað­vörpin beðin um að skrá sig sem fjöl­miðla í leið­inni.

Þess má geta að ekki er ein­göngu bannað sam­kvæmt fjöl­miðla­lögum að aug­lýsa veð­mála­starf­semi sem ekki hefur leyfi hér á landi, heldur er það einnig bannað sam­kvæmt lögum um happ­drætti og geta fésektir eða allt að sex mán­aða fang­els­is­refs­ing legið við slíkum brotum.

En hvenær verður hlaðvarp fjölmiðill?

Eins og áður segir er það mat fjöl­miðla­nefndar að sum hlað­vörp séu fjöl­miðlar, en önnur ekki. Blaða­maður spurði hvaða við­miða væri horft til þegar nefndin væri að leggja mat á þetta.

„Við mat á því hvort hlað­varp telj­ist fjöl­mið­ill er m.a. horft til skil­grein­inga laga um fjöl­miðla ásamt lög­skýr­ing­ar­gögnum og til 2. gr. starfs­reglna fjöl­miðla­nefndar nr. 1363. Regl­urnar eru hins vegar frá 27. des­em­ber 2011 og líkt og á við um lögin sjálf var ekki hægt að sjá fyrir þá þróun sem orðið hefur á hlað­varps­mark­aðnum með til­komu nýrrar tækni og miðl­un­ar­leiða. Fjöl­miðla­nefnd horfir því einnig til ann­arra þátta við á mat því hvort hlað­varp telj­ist fjöl­mið­ill í skiln­ingi lag­anna,“ segir í svari fjöl­miðla­nefndar.

Í starfs­regl­unum segir meðal ann­ars að það sé „skýr vís­bend­ing“ um að miðlun efni falli undir hug­takið fjöl­mið­ill þegar fjöl­miðla­veita hafi af því atvinnu að miðla fjöl­miðla­efni.

Vistun utan Íslands ekki úrslitaatriði

Blaða­maður spurði einnig hvort það breytti ein­hverju um það hvort hlað­vörp gætu talist íslenskir fjöl­miðlar ef öll hýs­ing þeirra væri utan land­stein­anna, en hlað­vörpum er flestum ein­ungis dreift inn á erlendar streymi­veitur

„Það að hlað­varp sé vistað að öllu leyti utan Íslands er ekki úrslita­at­riði um hvort það geti talist fjöl­mið­ill sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla eða ekki,“ segir í svari fjöl­miðla­nefndar um það atriði.

Þar segir einnig að nefndin þurfi „að skoða og meta hvert til­vik fyrir sig,“ og að á meðal þeirra þátta sem litið sé til við skil­grein­ingu á því hvort fjöl­mið­ill telst miðla efni handa almenn­ingi hér á landi í skiln­ingi fjöl­miðla­laga er það hvort rit­stjórn­ar­efni og við­skipta­boðum sé miðlað á íslensku.

Í svar­inu er síðan vísað til dóms hér­aðs­dóms Reykja­víkur frá árinu 2018, í máli 365 miðla gegn fjöl­miðla­nefnd, sem sner­ist um tíma­ritið Glamour.

Þar komst hér­aðs­dómur að þeirri nið­ur­stöðu að Glamour heyrði undir lög­sögu íslenska rík­is­ins, þrátt fyrir að útgáfu­fé­lag þess væri skráð til heim­ilis í Bret­landi, meðal ann­ars á grund­velli þess að rit­stjórn­ar­efni og aug­lýs­ingar í tíma­rit­inu væru á íslensku og efni fjöl­mið­ils­ins því beint að íslenskum almenn­ingi.

365 miðlar höfðu borið því við að útgáfu­fé­lag tíma­rits­ins væri skráð í Bret­landi og því utan lög­sögu íslenska rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

auglýsingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár