Flestar áskriftir Alþingis eru að Morgunblaðinu

Alþingi er með 13 áskriftir að Morg­un­blað­inu auk netá­skrifta, sem og aðgang að gagna­safni mbl.is.

Alþingi borg­aði 1.171.560 krónur í áskrift að Morg­un­blað­inu árið 2018 og 508.032 krónur fóru í gagna­safn mbl.is. sem er lang­sam­lega hæsta upp­hæðin sem fór til fjöl­miðla í fyrra. Alþingi er með þrettán prentá­skriftir að Morg­un­blað­inu auk netá­skrifta. 

Þetta kemur fram í svari for­seta Alþingis, Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, við fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata um áskrift að dag­blöðum, tíma­ritum og öðrum miðlum en um er að ræða kostn­að­ar­tölur við árið 2018.

Björn Leví lagði fram sömu fyr­ir­spurn­ina á alla tólf ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar sem og for­seta Alþingis í byrjun mars­mán­aðar. Hann spurði hvaða dag­blöðum, tíma­ritum og öðrum miðlum ráðu­neytin – og stofn­anir og aðrir aðilar sem heyra undir þau – væru í áskrift að, hversu margar áskriftir væru að hverjum miðli og hver heild­ar­fjár­hæð áskriftar væri á ári fyrir hvern miðil.

Í svari Stein­gríms kemur fram að Alþingi sé með ell­efu prentá­skriftir að DV, þrjár að Við­skipta­blað­inu auk netá­skrifta og eina netá­skrift að Stund­inni. Alþingi fær fimmtán ein­tök af Frétta­blað­inu og átta af Bænda­blað­inu auk raf­ræns aðgangs.

Alþingi er með áskrift að sjö tíma­ritum: Gest­gjaf­anum, Lækna­blað­inu, Vís­bend­ingu, Tíma­riti lög­fræð­inga, Tímariti Úlfljót­, Tímariti Skóg­rækt­ar­fé­lagi Íslands og Tímariti Ægis.

Jafn­framt er Alþingi áskrif­andi að öðrum miðlum á borð við gagna­safni mbl.is, lands­að­gang­i tíma­rita og gagna­safna og heim­ilda­safni Fons Jur­is sem er aðgang­ur fyr­ir laga­skrif­stofu, nefnda­svið og upp­lýs­inga­þjón­ustu.

Tvö fjölmiðlafyrirtæki fá þriðjung af auglýsingafé ríkisins

Fram kom í frétt Kjarnans í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins að ráðu­neyti, rík­is­stofn­anir og fyr­ir­tæki á vegum hins opin­bera hefðu borgað tæpar 190 millj­ónir króna fyrir birt­ingu aug­lýs­inga fyrstu tíu mán­uði síð­asta árs. Tvö fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins og Árvakur útgef­andi Morg­un­blaðs­ins, fengu sam­tals tæp­lega þriðj­ung fjár­ins ­sem hið opin­bera eyddi í aug­lýs­inga­birt­ingar.

Kostn­aður hins opin­bera vegna aug­lýs­inga­birt­inga var 188 millj­ónir fyrstu tíu mán­uði árs­ins 2018, þá var ekki tal­in ­með vinna við gerð og hönnun aug­lýs­inga. Þar af fékk útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins 37 millj­ónir króna greitt fyrir aug­lýs­inga­birt­ingar og Árvak­ur, útgef­andi Morg­un­blaðs­ins og mbl.is, 21 milljón króna. Sam­an­lagt var það rétt tæp­lega þriðj­ungur allra aug­lýs­inga­kaupa ráðu­neyta, ­rík­is­stofn­ana og rík­is­fyr­ir­tækja á tíma­bil­inu.

Rík­is­út­varpið fékk greiddar rúmar tólf millj­ónir og Sýn, sem á Stöð 2, ýmsar útvarps­stöðvar og vef­inn Vísi, fékk fimm millj­ónir greiddar fyrir aug­lýs­inga­birt­ingar rík­is­ins.

Aug­lýs­inga­stofan Pipar er í þriðja sæti yfir þau fyr­ir­tæki sem fá mest greitt fyrir aug­lýs­inga­birt­ing­ar, með átján millj­ón­ir. Það er vegna birt­ing­ar­þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins við rík­is­stofn­an­ir, einkum Háskóla Íslands. Pipar sér um aug­lýs­inga­kaup fyrir við­skipta­vini og greiðsl­urnar dreifast því áfram á önn­ur ­fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár