Tvö fjölmiðlafyrirtæki fá þriðjung af auglýsingafé ríkisins

Kostn­aður hins opin­bera vegna aug­lýs­inga­birt­inga var tæpar 190 millj­ónir fyrstu tíu mán­uði árs­ins. Þar af fengu útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins og Árvakur, útgef­andi Morg­un­blaðs­ins, sam­an­lagt þriðj­ung allra aug­lýs­inga­kaupa hins opin­bera.

Ráðuneyti, ríkisstofnanir og fyrirtæki á vegum hins opinbera borguðu tæpar 190 milljónir króna fyrir birtingu auglýsinga fyrstu tíu mánuði ársins. Tvö fjölmiðlafyrirtæki, útgáfufélag Fréttablaðsins og Árvakur útgefandi Morgunblaðsins, fengju samtals tæplega þriðjung fjárins sem hið opinbera eyddi í auglýsingabirtingar það sem af er ári. Frá þessu er greint á fréttavef Rúv í dag en upplýsingarnar má finna á vefnum Opnir reikningar.

Fréttablaðið og Morgunblaðið fá þriðjung

Kostnaður hins opinbera vegna auglýsingabirtinga var 188 milljónir fyrstu tíu mánuði ársins, þá er ekki talin með vinna við gerð og hönnun auglýsinga. Þar af fékk útgáfufélag Fréttablaðsins 37 milljónir króna greitt fyrir auglýsingabirtingar og Árvakur, útgefandi Morgunblaðsins og mbl.is, 21 milljón króna. Samanlagt er það rétt tæplega þriðjungur allra auglýsingakaupa ráðuneyta, ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja á tímabilinu.

Ríkisútvarpið fékk greiddar rúmar tólf milljónir og Sýn, sem á Stöð 2, ýmsar útvarpsstöðvar og vefinn Vísi, fékk fimm milljónir greiddar fyrir auglýsingabirtingar ríkisins.

Auglýsingastofan Pipar er í þriðja sæti yfir þau fyrirtæki sem fá mest greitt fyrir auglýsingabirtingar, með átján milljónir. Það er vegna birtingarþjónustu fyrirtækisins við ríkisstofnanir, einkum Háskóla Íslands. Pipar sér um auglýsingakaup fyrir viðskiptavini og greiðslurnar dreifast því áfram á önnur fyrirtæki. Frá þessu er greint í umfjöllun Rúv. [adspot]

Prentmiðlar fá enn mestu auglýsingatekjurnar

[links]Í júlí fjallaði Kjarninn um hvernig prentmiðlar fá enn stærstu hlutdeild auglýsingatekna af öllum innlendum fjölmiðlum hér á landi, þrátt fyrir að hlutdeild þeirra hafi lækkað allnokkuð á síðustu fjórum árum. Prent­miðlar fengu mest aug­lýs­ingafé allra fjöl­miðla á Íslandi í fyrra, sam­kvæmt ráð­stöfun fimm stærstu birt­ing­ar­húsa lands­ins en þeir ná 28 prósent af öllum keyptum aug­lýs­ing­um. Hlut­deild prent­miðl­anna hefur þó minnkað sam­hliða auknu vægi inn­lendra vef­miðla, en í Evr­ópu eru vefmiðlar orðnir verð­mæt­ari aug­lýsendum en prent­miðl­ar. Þetta kemur fram í tölum Fjöl­miðla­nefndar.

Ríkið kaupir auglýsingar af sjálfu sér

Í umfjöllun Rúv er greint frá því að það eru fleiri en aðeins fjöl­miðlar sem fá greitt fyrir aug­lýs­inga­birt­ingar heldur fær ríkið til dæmis sjálft ell­efu millj­ónir af því fé sem stofn­anir rík­is­ins greiða fyrir aug­lýs­inga­birt­ingar. Það er vegna aug­lýs­inga í útgáfu Stjórn­ar­tíð­inda og Lög­birt­inga­blaðs­ins. Alls námu greiðslur rík­is­ins fyrir birt­ingu aug­lýs­inga í Stjórn­ar­tíð­indum rúm­lega tíu millj­ónum króna og tæpri milljón fyrir birt­ingar í Lög­birt­inga­blað­inu á tíu mán­uðum.

Ríkið keypti einnig birt­ingu aug­lýs­inga á öðrum miðlum þar á meðal fyrir tæpar fjórar millj­ónir af síma­skrár­vefnum Já og AFA JCDecaux fékk greiddar rúmar 1.400 þús­und krónur fyrir birt­ingu aug­lýs­inga á skiltum fyr­ir­tæk­is­ins.

Tvö fyr­ir­tæki sem gefa út fjöl­miðla á ensku fengu greitt fyrir birt­ingu aug­lýs­inga hjá rík­inu. 1,3 millj­ónir voru greiddar fyrir birt­ingar í Reykja­vík Grapevine og MD Reykja­vík sem gefur út Iceland Review og What‘s On fékk 3,4 millj­ónir.

Á lands­byggð­inni virð­ist hið opin­bera frekar aug­lýsa í dag­skrár­blöðum en frétta­miðlum, N4 og Ásprent Stíll fengu um tvær millj­ónir króna hvor vegna aug­lýs­inga­birt­inga. Bæði fyr­ir­tækin gefa út dag­skrár­blöð. N4 heldur einnig út sam­nefndri sjón­varps­stöð og Ásprent gefur út hér­aðs­frétta­blöðin Skarp og Vikudag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár