Píratar nálgast Samfylkinguna í fylgi

Sam­fylk­ingin mæld­ist með 13,8% fylgi í nýrri MMR könnun og Píratar með 13,6%. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina minnk­aði lít­il­lega en 41,8% sögð­ust styðja rík­is­stjórn­ina nú sam­an­borið við 42,8% í síð­ustu mæl­ingu.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist með stuðn­ing 23,6 pró­sent lands­manna í nýrri könnun MMR sem fram­kvæmd var dag­ana 11. til 14. mars. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins jókst um tæpt pró­sentu­stig frá síð­ustu mæl­ingu sem lauk 15. febr­úar.

Sam­fylk­ingin mæld­ist með 13,8 pró­sent fylgi, sem er rúm­lega tveimur pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn mæld­ist með í síð­ustu könnun. Píratar mæld­ust með 13,6 pró­sent fylgi, sem er rúmum þremur pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu mæl­ingum.

Þá minnk­aði fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins um rúm tvö pró­sentu­stig en fylgi Mið­flokks­ins hækk­aði um tæp tvö pró­sentu­stig frá síð­ustu mæl­ingum.

[adspot]

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina minnk­aði lít­il­lega en 41,8 pró­sent sögð­ust styðja rík­is­stjórn­ina nú sam­an­borið við 42,8 pró­sent í síð­ustu mæl­ingu.

1025 ein­stak­lingar svör­uðu könn­un­inni – 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár