Boeing kyrrsetur allar 737 Max þotur

Banda­ríski flug­véla­fram­leið­and­inn Boeing hef­ur kyrr­sett all­an 737 Max flug­flot­ann eft­ir að rann­sókn leiddi í ljós ákveðin lík­indi milli flug­slysanna tveggja. Alls er 371 þota af Boeing 737 Max gerð­inni í notk­un í heim­in­um.

Banda­ríski flug­véla­fram­leið­and­inn Boeing hefur ákveðið að kyrr­setja allar 737 Max far­þega­þotur í heim­inum eftir ný sönn­un­ar­gögn fund­ust á vett­vangi flug­slyss­ins þar sem þota Ethi­opian Airlines fórst á sunnu­dag­inn. Rann­sak­endur komust að því að ákveðin lík­indi eru með flug­slys­inu í Eþíópíu og flug­slys­inu í Indó­nes­íu í októ­ber en þá lét­ust 189, eða all­ir um borð. Báðar flug­vél­arnar voru Boeing 737 Max þotur. Frá þessu er greint á vef breska rík­is­út­varps­ins, BBC.

Líkindi milli slysanna

[links]Banda­ríska flug­mála­eft­ir­litið, Federal Aviation Administration, ákvað að kyrr­setja allar 737 Max vélar í Banda­ríkj­unum þegar í ljós kom ákveðin lík­inda á milli slysanna tveggja. Auk þess höfðu nýjar upp­lýs­ingar úr gervi­hnöttum ýtt undir þá nið­ur­stöðu. Fyrr í vik­unni höfðu flug­mála­yf­ir­völd í Bret­landi, Kína, Suður-Afríku, Singapúr, Indónesíu, Ástralíu og Mexíkó bannað umferð flug­véla af þess­ari gerð. Auk þess höfðu flug­fé­lögin Easter Jet, Norwegian og Icelandair kyrr­sett allar 737 Max þot­urnar sínar.

Skömmu eftir ákvörðun banda­ríska flug­mála­eft­ir­lits­ins ákvað flug­véla­fram­leið­and­inn Boeing að kyrr­setja flot­ann eins og hann leggur sig, en 371 þota hefur verið smíðuð af þess­ari gerð.

Boeing hafði sagt í yfir­lýs­ingum í vik­unni að ekki hafi komið fram nein gögn sem benti ein­dregið til þess að rétt væri að banna flug á öllum flug­vélum af gerð­inni 737 Max 8. Í umfjöllun BBC er greint frá því að Boeing hafi enn mikla trú öryggi 737 Max flug­vél­arnar en eftir að hafa ráð­fært sig við FAA hafi fyr­ir­tæki ákveðið að kyrr­setja vél­arnar til að gæta fyllstu var­úðar og til að vinna aftur traust far­þega á öryggi vél­anna.

Íslenska flug­fé­lagið Icelandair á þrjár 737 Max flug­vélar og á von á fleirum í nán­ustu fram­tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár