Mikil pressa á Boeing úr öllum heimshornum

Flug­véla­fram­leið­and­inn Boeing er með öll spjót á sér, eftir tvö flug­slys með skömmu milli­bili. Fyr­ir­tækið seg­ist engin gögn hafa fundið ennþá sem bendi ein­dregið til þess að vélar fyr­ir­tæk­is­ins séu gall­aðar.

Þrátt fyrir að um 30 pró­sent af Boeing 737 Max 8 vél­unum í heim­inum hafi staðið ónot­aðar á flug­völlum, eftir tvö flug­slys með skömmu milli­bili þar sem vélar af fyrr­nefndri teg­und hröp­uðu, þá var það ekki talið til­efni til að taka allar vél­arnar úr umferð.

Engin gögn bendi á Boeing

Boeing hefur sagt í yfir­lýs­ingu, bæði í gær og í dag, að enn sem komið er hafi ekki komið fram nein gögn sem bendi ein­dregið til þess að rétt sé að banna flug á öllum flug­vélum af gerð­inni 737 Max 8. Flug­véla­fram­leið­and­inn seg­ist eiga í góðum sam­skiptum við við­skipta­vini sína - sem eru flug­fé­lög í öllum heims­hornum - en ennþá séu ekki komnar fram neinar upp­lýs­ingar sem bendi til þess að Boeing þurfi að gefa nýja leið­sögn um vél­arnar eða stýr­ingu þeirra.

Seattle Times hefur fjallað ítar­lega um Boeing, sem hefur verið með hjartað í fram­leiðslu sinni frá stofnun, árið 1916, á Seattle svæð­inu, og slysin tvö.

Í umfjöllun mið­ils­ins, sem Dominic Gates, sér­hæfður blaða­maður mið­ils­ins á sviði Boeing og flug­mála, hefur komið fram að rann­sóknin innan Boeing, á slys­inu í Indónesíu í októ­ber, bein­ist að svo­nefndu MACS-kerfi (Ma­neu­ver­ing Charact­er­ist­ics Aug­menta­tion System) í vél­unum og mögu­legum galla í skynj­urum, sem hafi mögu­lega orsakað slysið og stýrt vél­inni í hafið - án þess að flug­menn hafi getað hindrað það - með þeim afleið­ingum að allir um borð lét­ust, 189 tals­ins.

Í yfir­lýs­ingu eftir slysið hefur Boeing sagt berum orðum að félagið hafi upp­fært fyrr­nefnd kerfi í vél­unum, með það að mark­miði að bæta þau og mögu­leika flug­manna til að bregð­ast við aðstæðum, þar sem fyrr­nefnt kerfi gæti ann­ars gripið inn í. Afdrátt­ar­laus nið­ur­staða um hvað olli fyrr­nefndum slysum liggur þó ekki fyrir.

Þá vitnar Seattle Times til þess í dag, að for­stjóri Boeing, Dennis Mui­len­burg, hafi í ávarpi til starfs­fólks Boeing sagt að fyr­ir­tækið væri nú að gera það sem það gæti, til að styðja við fram­leiðslu­ferla fyr­ir­tæk­is­ins fyrir 737 Max vél­arnar og að afla upp­lýs­inga sem þyrfti til að kom­ast til botns í því hvað hefði gerst.

Hann sagði enn fremur að atburðir eins og skelfi­leg flug­slys hefðu mikil áhrif á allan flug­geir­ann í heild sinni. Atburð­irnir væru áminn­ing um að mik­il­vægi örygg­is­mála og hversu mik­il­væg störfin væru sem fólkið hjá Boeing væri að sinna. Fyr­ir­tækið væri í leið­toga­hlut­verki sem ekki væri hægt að koma sér undan. Í yfir­lýs­ingu frá fyr­ir­tæk­inu hefur það sagt vera með öryggi far­þega í for­gangi og að það hafi fullt traust á 737 Max vél­unum, þrátt fyrir allt.

Í umfjöllun Seattle Times segir að slysin tvö að und­an­förnu hafi sett fram­leiðslu­ferla hjá Boeing í upp­nám - og fyr­ir­tækið undir mikla pressu - og að fjár­hags­legt högg fyrir fyr­ir­tækið geti orðið veru­legt, en enn sem komið er sé of snemmt að segja til um hver áhrifin verði.

Sér­stak­lega á Boeing mikið undir þegar kemur að við­skiptum við flug­iðnað í Kína, en um þriðj­ungur allra 737 Max véla í fram­leiðslu er fyrir þann markað. Kínversk yfir­völd brugð­ust strax við slys­inu í Eþíópíu með því að banna notkun á 737 Max 8 vélum, og taka þær alveg úr umferð, þar til frek­ari upp­lýs­ingar kæmu fram.

Hver hugsar um sig

Flug­mála­yf­ir­völd um allan heim hafa fylgst með rann­sókn­inni og slysið í Eþíópíu, þar sem 157 lét­ust þegar vél Ethopia Airlines hrap­aði til jarðar sex mín­útum eftir flug­tak, hefur leitt til þess að bæði flug­mála­yf­ir­völd og flug­fé­lög hafa gripið til þess að hætta notkun á vél­unum í far­þega­flugi. Aðgerðir eins og þessar eru risa­vaxnar og hafa mikil marg­feld­is­á­hrif enda skil­virk flug­um­ferð eitt af gang­verkum í dag­legu lífi í sam­fé­lag­inu. Áhrif á ferða­þjón­ustu geta orðið veru­leg, enda skapa svona flug­slys óör­ygg­is­til­finn­ingu hjá við­skipta­vinum flug­fé­laga.

En ákvarð­anir um bann á fyrr­nefndum flug­vélum hafa þó ekki verið teknar, eftir flug­slysin skelfi­legu í Indónesíu, í októ­ber í fyrra, og í Eþíópíu á sunnu­dag­inn. Frekar hefur verið gripið til tíma­bund­inna aðgerða um að hætta notkun á vél­unum. Nú síð­ast tók Icelandair ákvörðun um að hætta notkun á þremur Max 8 vélum, en fjöl­mörg flug­fé­lög um allan heim hafa tekið ákvörðun slíkt hið sama á und­an­förnum tveimur dögum. Mark­aðsvirði Icelandair féll um 5 pró­sent í dag eftir 9,66 pró­sent fall í gær.

Verðhrun um allan heim

Mark­aðsvirði flug­fé­laga hefur hrunið um allan heim síð­ustu tvo daga. Það sama á við um mark­aðsvirði Boeing, sem fallið hefur um 6,6 pró­sent þegar þetta er ritað. Farið úr 222 millj­örðum Banda­ríkja­dala eftir mikið fall í gær (rúm­lega 5 pró­sent) í 210 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um rúm­lega 25 þús­und millj­örðum króna.

Starfs­menn Boeing eru tæp­lega 80 þús­und á Seattle svæð­inu en eins og greint var frá á vef Kjarnans í gær, þá er mikil fram­leiðslu­pressa á fyr­ir­tæk­inu, meðal ann­ars til að koma til móts við við­skipta­vini um afhend­ingar á nýjum 737 Max vélum. Gert er ráð fyrir að fyr­ir­tækið skili af sér um 57 slíkum vélum á mán­uði, í fullum afköstum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár