Allra augu á Boeing

Hörmuleg flug­slys í Indónesíu og Eþíópíu hafa beint spjót­unum að flug­véla­fram­leið­and­anum Boeing. Mörg flug­fé­lög hafa þegar tekið ákvörðun um að hætta að nota þá teg­und flug­véla sem hefur hrapað í tvígang.

Í októ­ber lét­ust 189 þegar Boeing 737 Max 8 vél Lion Air hrap­aði skyndi­lega eftir flug­tak í Jakarta í Indónesíu og í gær lét­ust 157 þegar flug­vél af sömu teg­und hrap­aði skyndi­lega, sex mín­útum eftir flug­tak í Eþíópíu.

Á und­an­förnum tveimur árum hafa um 350 vélar af þess­ari teg­und verið í notkun, þar á meðal er Icelandair með þrjár vélar.

Ethi­opian Airlines hefur þegar tekið þær sjö Max 8 átta vélar sem það er með í sínum flota úr notkun, en félagið er með 23 slíkar vélar í fram­leiðslu­ferli hjá Boeing eftir pöntun á þeim, segir í umfjöllun Seattle Times.

Yfir 100 vélar hafa verið teknar út notkun nú þegar, hjá nítján flug­fé­lögum, en níu flug­fé­lög hafa ekki tekið ákvörðun um að hætta flugi á vél­unum. Þar á meðal er Icelandair, sem hefur sagt í yfir­lýs­ingu í dag að félagið bíði eftir því að fá nán­ari upp­lýs­ingar, en fylgist grannt með gangi mála.

Yfirvöld í Kína og á Inlandi hafa tekið ákvörðun um að taka allar vélar af fyrr­nefndri teg­und úr umferð, þar til frek­ari upp­lýs­ingar koma fram um hvað olli slys­unum.

Samkvæmt umfjöllun breska rík­is­út­varps­ins BBC má búast við því að fleiri flug­fé­lög taki vélar úr notkun á næst­unni, þar sem óvissa ríkir um öryggi vél­anna.

Dominic Gates, blaða­maður Seattle Times á sviði flug­mála, hefur fylgst náið með Boeing um margra ára skeið en fram­leiðslu­stöðvar Boeing eru á Seattle svæð­inu og er fyr­ir­tækið stærsti ein­staki vinnu­veit­andi svæð­is­ins með um 80 þús­und starfs­menn.

Í umfjöllun hans í dag segir að félagið eigi mikið undir, þegar kemur að fram­leiðslu á Max 8 vél­unum og nær öll fram­leiðsla fyr­ir­tæk­is­ins snú­ist um að standa við þær pant­anir sem hafa nú þegar verið lagðar inn fyrir þessar vélar.

Þetta séu vél­arnar sem fyr­ir­tækið hafi veðjað á í sínum áætl­unum og í fullum afköstum sé stefnt á að koma 57 vélum úr fram­leiðslu í hverjum mán­uði.

Í umfjöllun Seattle Times segir að rann­sókn á flug­slys­inu í Jakarta bein­ist meðal ann­ars að svoköll­uðu MCAS-kerfi (Maneu­ver­ing Characteristics Augmentation System) í flug­vél­inni og hvort skynjarar hafi ekki virkað rétt, með þeim afleið­ingum að vélin missti hæð og skall að lokum sjó­inn, með þeim afleið­ingum að allir um borð lét­ust.

Þau flug­fé­lög sem eru enn með Max 8 vélar í notkun, sam­kvæmt umfjöllun Seattle Times, eru:

American Air­lines - 24 vél­ar, Sout­hwest Air­lines - 34 vél­ar, Norweg­i­an Air­lines - 18 vél­ar, SilkA­ir - 6 vél­ar.

TUI Aviati­on - 15 vél­ar. Icelanda­ir - 3 vél­ar. Fiji Airways - 2 vél­ar. WestJet - 13 vél­ar. Flydu­bai - 11 vél­ar.

Búast má við því að Boeing sendi frá sér frek­ari yfir­lýs­ingu, vegna rann­sóknar á slys­unum, en fyr­ir­tækið hefur þegar sagt í yfir­lýs­ingu það muni vinna hörðum höndum að því að upp­lýsa um hvað gerð­ist í þessum tveimur hörmu­legu flug­slysum, með þeim yfir­völdum sem eftir því óska. Í báðum til­fellum voru vél­arnar svo til nýjar, en Ethopian Airlines tók vél­ina í notkun í nóv­em­ber, sem hrap­aði í gær.

Flug­fé­lög hafa víða hrunið í verði í dag, vegna flug­slys­ana. Icelandair féll um 9,66 pró­sent í dag, en gengi Boeing hefur fallið um rúm­lega 7 pró­sent í dag. Mark­aðsvirði Boeing er í dag 222 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur rúm­lega 26 þús­und millj­örðum króna. Félagið var stofnað í Seattle 1916 og er enn með hjartað í starf­semi sinni á Seattle svæð­inu. Höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins er í Chicago.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár