Icelandair tekur þrjár Boeing vélar úr rekstri

Icelandair Group hefur ákveðið að taka Boeing 737 MAX 8 flug­vélar sínar úr rekstri um óákveð­inn tíma.

Icelandair Group hefur ákveðið að taka Boeing 737 MAX 8 flug­vélar sínar úr rekstri um óákveð­inn tíma. Félagið er með þrjár slíkar vélar í rekstri. Félagið fylgist náið með þróun mála og vinnur áfram með flug­mála­yf­ir­völdum á Íslandi, í Evrópu og Banda­ríkj­unum varð­andi næstu skref.

[links]Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu til Kaup­hall­ar­innar.

„Miðað við þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir, þá örygg­is­ferla sem félagið fylgir, sem og þjálfun áhafna þess, telur félagið vél­arnar öruggar. Til skamms tíma mun þessi ráð­stöfun hafa óveru­leg áhrif á rekstur félags­ins þar sem aðeins er um 3 vélar að ræða af 33 far­þega­vélum í flota félags­ins og því hefur félagið svig­rúm til að bregð­ast við á næstu vikum,“ segir í til­kynn­ing­inni. 

Bretar banna ferðir flugvélanna um lofthelgi sína

Flug­mála­yf­ir­völd í Bret­landi bönn­uðu í dag þotum af gerð­inni Boeing 737 MAX 8 að lenda og taka á loft frá flug­völlum í land­inu. Bretar eru fyrstir Evr­ópu­þjóða til að banna ferðir flug­véla af þess­ari gerð um loft­helgi sína. Norska flug­fé­lagið Norwegian hefur einnig kyrr­sett allar sínar vélar, að því er til­kynnt var síð­degis og birt­ist í frétt RÚV um málið.

Umferð flug­véla af þess­ari gerð hefur áður verið bönnuð í Kína, Suður-Afríku, Singapúr, Indónesíu, Ástralíu, Brasilíu og Mexíkó. Þá hefur suð­ur­kóreska flug­fé­lagið Eastar Jet kyrr­sett allar 737 MAX átta þotur sínar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár