Ólafur og Karl Gauti ganga til liðs við Miðflokkinn

Tveir fyrr­ver­andi þing­menn Flokks fólks­ins, sem voru reknir þaðan eftir Klaust­urs­málið, hafa gengið í Mið­flokk­inn.

Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son, sem voru kjörnir á þing fyrir Flokk fólks­ins haustið 2017, eru gengnir til liðs við þing­flokk Mið­flokks­ins. Sá þing­flokkur telur nú níu þing­menn og er sá þriðji stærsti á þingi.

Í til­kynn­ingu frá þeim segir: „Áherslur okkar hafa birst í ein­dregnum stuðn­ingi við lág­launa­fólk og þá sem standa höllum fæti í íslensku sam­fé­lagi og þar eigum við sam­leið með Mið­flokknum. Við erum sam­mála um nauð­syn þess að leið­rétta kjör hinna lægst laun­uðu og skapa öldruðum og öryrkjum tæki­færi til að bæta hag sinn með auk­inni vinnu án skerð­ingar almanna­trygg­inga­bóta. Við erum sam­mála um áherslur í mál­efnum hins sístækk­andi hóps aldr­aðra sem geti notið ævi­kvölds­ins á heim­ili sínu eins lengi og unnt er, með öruggu fram­boði hjúkr­un­ar­rýma þegar nauð­syn knýr á um slík úrræði.

Á Alþingi höfum við átt sam­leið í áherslu á nútíma­legt fjár­mála­kerfi laust við okur­vexti og verð­trygg­ingu, þrótt­mikið atvinnu­líf og fjár­hags­legt öryggi íslenskra heim­ila. Við erum sam­mála um mik­il­vægi rétt­ar­rík­is­ins, mann­rétt­inda og að standa gegn hvers kyns vald­níðslu. Við viljum stór­á­tak í sam­göngu­málum og styðja við sókn­ar­færi í hinum dreifðu byggðum lands­ins.

Á vett­vangi Mið­flokks­ins teljum við okkur geta náð betri árangri í bar­áttu­málum okkar og styrkt mál­efna­stöðu flokks­ins. Við höfum sam­eig­in­lega sýn á sjálf­stæði og full­veldi þjóð­ar­innar, yfir­ráð hennar á auð­lindum sínum og mik­il­vægi vest­rænnar sam­vinnu.

Við teljum að á vett­vangi Mið­flokks­ins styrkjum við stöðu okkar á Alþingi til að knýja á um fram­gang þeirra mál­efna, sem kjós­endur treystu okkur fyrir í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum.“

Reknir vegna Klausturmálsins

Karl Gauti og Ólafur voru reknir úr Flokki fólks­ins í lok nóv­em­ber. Ástæðan var alvar­legur trún­að­ar­brestur sem átti sér stað á drykkju­fundi þeirra með fjórum þing­mönnum Mið­flokks­ins, þeim Sig­­mundi Dav­íð G­unn­laugs­­syni, Berg­þóri Óla­­syni, Gunn­­ari Braga Sveins­­syni og Önnu Kol­brúnu Árna­dótt­­ur, á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.Á fund­inum töl­uðu þeir með niðr­andi hætti um konur sér­­stak­­lega, og lét Karl Gauti hafa eftir sér að Inga Sæland gæti ekki stjórnað Flokki fólks­ins. Þá var umtals­vert rætt um það á fund­inum að þeir tveir myndu ganga til liðs við Mið­flokk­inn.

Þeir hafa starfað sem óháðir þing­menn síðan þetta gerð­ist.

Staða Ólafs og Karl Gauta á þingi hefur verið mikil til umræðu hjá þing­mönnum að und­an­förnu. Fyrir lá að þeir gætu raskað fyr­ir­liggj­andi valda­jafn­vægi mjög mikið ef þeir myndu ákveða að ganga til liðs við nýjan flokk frekar en að vera áfram óháðir.

Miðað við mál­efna­stöðu þeirra og for­tíð komu ein­ungis tveir flokkar til greina sem nýtt heim­ili. Sá fyrri var aug­ljós­lega Mið­flokk­ur­inn, flokk­ur­inn sem fund­ur­inn á Klaustri í nóv­em­ber sner­ist um að ná þeim í. Mikil mál­efna­leg sam­leið hefur verið á milli Ólafs og Karls Gauta ann­ars vegar og Mið­flokknum hins vegar í stórum málum. Hinn var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

Nú er ljóst hvar hið nýja heim­ili mann­anna tveggja er.

Voru á Klaustri til að svíkja flokkinn

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, skrif­aði harð­orða grein í Morg­un­blaðið um þessa tvo fyrr­ver­andi félaga sína í jan­úar. Þar sagði hún menn­ina tvo ein­ungis hafa átt eitt erindi á Klaustur Bar þetta kvöld og að þeir hafi mæta­vel vitað hvað til stóð. „Þeir voru að svíkja flokk­inn sem kom þeim á þing. Er upp­víst varð hvað þarna hafði farið fram átti stjórn Flokks fólks­ins engan annan kost en að fara fram á afsögn þess­ara tveggja þing­manna.“

Inga sagði að eng­inn stjórn­mála­flokkur hefði getað látið for­ystu­menn þing­flokks síns eins og Ólaf og Karl Gauta kom­ast upp með önnur eins svik og framin hafi verið á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn án þess að slíkir stjórn­mála­menn hefðu verið látnir axla ábyrgð. „Með þá Ólaf og Karl Gauta áfram inn­an­borðs hefði þing­flokkur Flokks fólks­ins ekki aðeins verið óstarf­hæfur heldur einnig með­sekur í þeirri and­styggð sem fram fór á Klaustur Bar.“

Inga sagði fyrrum félaga sína, þá Ólaf og Karl Gauta, nú vera farna í sögu­bæk­urnar sem fyrstu þing­menn lýð­veld­is­sög­unnar sem séu látnir sæta ábyrgð fyrir gjörðir sínar með því að þeir eru reknir úr sínum eigin flokki fyrir afbrot sín. „Engir nema þeir sjálfir frömdu þau ótrú­legu afglöp að fara til sam­sær­is­fundar við stjórn flokks póli­tískra and­stæð­inga Flokks fólks­ins á Klaustur Bar, stein­snar frá Alþing­is­hús­inu þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Öll heims­byggðin hefur þegar fengið að frétta af því í fjöl­miðlum hvað gerð­ist þar.“

Inga sagði að fund­ur­inn á Klaust­ur­bar hafi haft skýrt mark­mið: að fá Ólaf og Karl Gauta til að ganga til liðs við Mið­flokk­inn. „Þess vegna sat gervöll stjórn Mið­flokks­ins á barnum Klaustri með þeim. Til­efni fund­ar­ins aug­ljóst, þessi „hættu­legi“ flokkur fátæka fólks­ins sem auð­mað­ur­inn Sig­mundur Davíð [Gunn­laugs­son] og félagar hans vildu fyrir hvern mun koma fyrir katt­ar­nef.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár