Pálmi orðinn stærsti einkafjárfestir í hluthafahópi Icelandair

Pálmi Har­alds­son er kom­inn í hóp stærstu fjár­festa Icelandair Group. Þrjú félög í eigu Pálma áttu sam­an­lagt um 51,3 millj­ónir hluta í flug­fé­lag­inu, jafn­virði um 423 millj­óna króna miðað við núver­andi gengi bréfa Icelandair.

Pálmi Haraldsson
Pálmi Har­alds­son Mynd: Skjáskot/RÚV

Pálmi Har­alds­son, fjár­festir, er orð­inn stærsti ein­staki einka­fjár­festir­inn í hlut­hafa­hópi Icelandair Group með rúm­lega eins pró­sents eign­ar­hlut. Þrjú félög í eigu Pálma, sem var áður aðal­eig­andi flug­fé­lags­ins Iceland Express, áttu sam­an­lagt um 51,3 millj­ónir hluta, jafn­virði um 423 millj­óna króna miðað við núver­andi gengi bréfa Icelandair, í lok síð­ustu viku. Mark­aðsvirði Icelandair er um 41 millj­arður. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inuí dag. 

Hlutur Pálma metinn á 423 milljónir

[links]Pálmi Har­alds­­son er fyrr­ver­andi eig­andi Fons og áður aðal­eig­andi flug­fé­lags­ins Icelandair express. Hann var á sínum tíma hlut­hafi í Icelandair og sat í stjórn flug­fé­lags­ins á árunum 2003 og 2004. Eign­ar­hlutur Pálma í Icelandair er nú meðal ann­ars í gegnum eign­ar­halds­fé­lögin Sólvöll og Ferða­skrif­stofu Íslands en það fyr­ir­tæki rekur ferða­skrif­stof­urnar Sum­ar­ferðir, Úrval Útsýn og Plús­ferðir.

Hluta­bréfa­verð Icelandair hefur lækkað um 14 pró­sent frá ára­mótum og stendur nú í 8,25 krónum á hlut. Mark­aðsvirði félags­ins er um 41 millj­arður Stærsti hlut­hafi Icelandair er Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna með um 14 pró­senta hlut en sam­an­lagt eiga íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir meira en helm­ings­hlut í félag­inu. Ekki má finna marga inn­lenda einka­fjár­festa í hlut­hafa­hóp Icelandair en á lista yfir tutt­ugu stærstu hlut­hafa félags­ins er þar núna aðeins að finna fjár­fest­inga­fé­lagið Væntingu, sem er í eigu Bláa lóns­ins, með eins pró­sents hlut. Þá eiga félög í eigu Pálma sem fyrr segir sam­tals um 1,03 pró­senta hlut. Eign­ar­halds­fé­lagið Trað­ar­hyrna átti um skeið nærri tveggja pró­senta hlut í Icelandair í gegnum safn­reikn­ing hjá Kviku banka en sam­kvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins er óljóst er hversu stór hlutur félags­ins er í dag.

Rekstur Icelandair Group gekk nokkuð erf­ið­lega á síð­asta ári og nam tap félags­ins 55,6 millj­ónum Banda­ríkja­dala, jafn­virði um 6,7 millj­arða króna. Þá dróst EBITDA félags­ins veru­lega saman á milli ára og var 76,5 millj­ónir dala borið saman við 170 millj­ónir dala árið 2017.

Þórunn býður sig fram til stjórnar

Þórunn Reyn­is­dóttir, for­stjóri Úrvals Útsýnar, mun bjóða sig fram til stjórnar á aðal­fundi flug­fé­lags­ins sem fer fram 8. mars næst­kom­andi og nýtur hún stuðn­ings Pálma, sam­kvæmt Frétta­blað­inu. Þórunn starf­aði um ára­bil hjá Icelandair, meðal ann­ars sem stöðv­ar­stjóri í Kaup­manna­höfn og hót­el­stjóri Hótels Loft­leiða. Ást­hildur Margrét Othars­dóttir, sem hefur verið stjórn­ar­maður frá árinu 2012, hefur ákveðið að gefa ekki áfram kost á sér í stjórn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár